Morgunblaðið - 19.05.2021, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 2021
Gítarleikarinn Andrés Þór kemur
fram með nýju tríói sínu á tón-
leikum í Mengi við Óðinsgötu í
kvöld kl. 21. Með Andrési leika
Nicholas Moreaux kontrabassaleik-
ari og Magnús Trygvason Eliassen
trommuleikari. Á efnisskránni er
glænýtt efni eftir Andrés sem hann
samdi sérstaklega fyrir hópinn.
Vegna takmarkaðs sætaframboðs
eru gestir hvattir til að bóka miða
fyrirfram.
Tríó Andrésar Þórs í
Mengi í kvöld kl. 21
Tríó Andrés Þór, Nicholas Moreaux og
Magnús Trygvason Eliassen leika saman.
Systurnar Áslaug og Rósa Jóns-
dætur sýna nú saman í Mjólkurbúð-
inni, sal Myndlistarfélagsins á
Akureyri. Þótt hugmyndirnar á
bak við verkin séu ólíkar þá vinna
hringformin saman í rýminu, segir í
tilkynningu og að sýningin verði
opin kl. 14-17 frá fimmtudegi til
sunnudags og ljúki á annan í hvíta-
sunnu. Áslaug sýnir myndaröðina
„Lesið í bolla“ sem hefur verið í
vinnslu frá árinu 2019 og koma þar
ýmsir fyrirboðar við sögu. Rósa
sýnir verk sem hún kallar „Um-
breytingar“ sem hún vann í fyrra
og á þessu ári. Endurspegla þau
vangaveltur hennar um einhvers
konar stökkbreytingar byggðar á
endurnýtingu og endursköpun, skv.
tilkynningu.
Systur sýna í
Mjólkurbúðinni
Systrasýning Úr Mjólkurbúðinni.
Gjörningurinn MOM Air eftir lista-
manninn Odee er nú kominn á upp-
boð hjá Galleríi Fold. Gjörninginn
framdi hann í nóvember í fyrra og
gekk hann út á að setja upp falska
ásýnd lággjaldaflugfélags, MOM
Air, en merki félagsins var alveg
eins og merki WOW Air heitins
nema hvað stafirnir voru á hvolfi og
mynduðu orðið MOM. Í tölvupósti
frá Odee segir að þetta muni vera í
fyrsta sinn sem óáþreifanleg hug-
myndalist sé til sölu hjá Fold og um
sé að ræða eignaraðild á gjörningi
sem gerst hafi í tíma og rúmi.
Odee segir ekki um svokallaða
NFT-list að ræða (NFT er skamm-
stöfun fyrir Non-Fungible Token
sem byggir á sk. bálkakeðjutækni)
heldur sé gefið út vottorð í samstarfi
við fyrirtækið Verisart sem skrásett
hafi verið á bálkakeðjuna (e.
blockchain). Samhliða uppboðinu
hafi hann svo sett á laggirnar ný-
listafélag gjörningalistamanna sem
nefnist Gjörva og gangi út á að gefa
gjörningalistamönnum tækifæri til
að slá eignarhaldi um framkvæmd
gjörninga með stafrænum hætti.
CNN fjallaði um MOM Air
Odee heitir réttu nafni Oddur Ey-
steinn Friðriksson og var MOM Air
lokaverkefni hans í myndlistar-
áfanga við Listaháskóla Íslands,
Leiðir og úrvinnsla. Var hið nýstofn-
aða flugfélag kynnt til sögunnar í
byrjun nóvember í fyrra og var því
fyrst haldið fram að um raunveru-
legt fyrirtæki væri að ræða en hul-
unni síðar svipt af hinum gam-
ansama gjörningi. Tókst Oddi að
rata í fréttir erlendra miðla með
gjörningnum og þá m.a. CNN sem
sagði í tvígang fréttir af flugfélag-
inu.
Oddur segir hugmyndina og til-
ganginn með MOM Air hafa verið að
sýna hversu auðvelt væri að brengla
raunveruleika fólks með því einu að
búa til heimasíðu og senda út nokkr-
ar fréttatilkynningar. „Það fór ein-
hvern veginn allt á hvolf,“ segir Odd-
ur kíminn. Mikið hafi verið fjallað
um stofnun nýrra flugfélaga eftir fall
WOW Air sem myndaði kjör-
aðstæður fyrir gjörning sem þenn-
an.
Hafði mikil áhrif
„Ég var búinn að hafa mikið fyrir
þessu,“ segir Oddur um MOM Air.
„Ég var með heimasíðu, búinn að
láta 3D-teikna fyrir mig flugvél,
opna samfélagsmiðla, senda út
fréttatilkynningar og ég var með
fullt af markaðsefni. Ég setti upp
falska bókunarvél og tíu þúsund
manns reyndu að bóka sér flug,“
segir Oddur sposkur. Það bitu því
ansi margir á agnið, ef svo mætti
segja.
Þessi mikla eftirspurn var í miðju
kófinu og segist Oddur hafa boðið
upp á Covid- og „Non-Covid“-flug.
Hann segir mikið hafa verið fjallað
um MOM Air í fjölmiðlum og stórt
flugleigufélag hafi boðið honum að
leigja flugvélar. „Það sló mig hvað
þetta hafði mikil áhrif og allt þetta
er ég að fara að rannsaka í sumar,
áhrifin og fleira,“ segir Oddur.
Oddur hefur í árafjöld búið til tví-
víð klippiverk í anda popplistar, verk
mikið til í anda eignarnámslistar.
„Þú tekur eitthvað eignarnámi og
skapar eitthvað nýtt úr því,“ segir
Oddur. Eftir að hann hóf nám í
myndlist í Listaháskóla Íslands hef-
ur hann ekkert sinnt slíkri list,
meira verið í hugmyndalist og gjörn-
ingum.
Gjörningurinn lifir
Oddur er að lokum spurður að því
hvað kaupandi verksins muni eign-
ast, seljist verkið yfirleitt á uppboð-
inu, það er að segja. „Hann eignast
gjörninginn, fær vottorð um eign-
araðild á gjörningnum MOM Air í
heild sinni. Þetta er opið vottorð sem
þýðir að listaverkið er í rauninni
„ongoing“,“ svarar Oddur. Gjörn-
ingnum sé því ekki lokið. „Það er
verið að viðhalda gjörningnum og
boðskapnum, gjörningurinn lifir enn
þá,“ útskýrir Oddur.
Vottorð fyrir gjörninginn má
skoða á slóðinni verisart.com/works-
/154e55c0-3164-4166-93eb-78b9cb-
19e6ba og vefsíðu MOM Air má
finna á momair.is. helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Odee Oddur Eysteinn í Galleríi Fold sem býður upp gjörninginn hans,
MOM Air, sem fjallað hefur verið um í innlendum og erlendum fjölmiðlum.
Þúsundir reyndu að bóka flug
- MOM Air, umtalaður gjörningur listamannsins Odee, kominn á uppboð í Gall-
eríi Fold - Óáþreifanlegt verk sem er ekki lokið - Lokaverkefni í áfanga í LHÍ
Á hvolfi Eins og sjá má er MOM Air stæling á flugfélaginu WOW Air.