Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 vfs.is SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is EIN RAFHLAÐA + öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég var að leita í legstaðaskránni (gardur.is) að manni sem hét Ásgeir Ásgeirsson og fletti fram og til baka. Þá áttaði ég mig á því að þar vantaði nafn Ásgeirs Ásgeirssonar forseta og einnig nafn konu hans Dóru Þórhallsdóttur. Mér þótti það forvitnilegt og vakti athygli á þessu,“ segir séra Hreinn S. Há- konarson, ritstjóri Kirkjublaðsins (kirkjubladid.is). Hann birti þar greinina Þau hvíla í kórveggnum um leit sína að leg- stað forseta- hjónanna. Hreinn komst að því að duftker þeirra hjóna eru geymd í kórvegg Bessastaðairkju, hægra megin við altaristöfluna, og á bak við minn- ingarskjöld með nöfnum þeirra. Vinstra megin við altarið eru skildir til minningar um Svein Björnsson og Georgíu Björns- son og Kristján Eldjárn og Hall- dóru Eldjárn. Hreinn segir þá spurningu áleitna hvers vegna Ás- geir vildi láta varðveita ösku sína á þennan hátt. „Við getum velt því fyrir okkur hvort Ásgeir hafi viljað halda uppi virðingu forsetaembættisins með því. Líklega hafði Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands, einnig í huga að láta grafa duftker sitt í Bessa- staðakirkju. Svo var kirkjunni um- turnað milli 1945 og 1948 og Sveinn var mjög ósáttur við þær breyt- ingar. Georgía Björnssson ekkja hans ákvað að hann skyldi því ekki hvíla í kirkjunni,“ segir Hreinn. Í legstaðaskránni eru tvær misvísandi setningar um Svein, að sögn Hreins. „Önnur segir að duftker hans sé varðveitt í Bessastaðakirkju en hin að það sé varðveitt í reit 84 sem er norðanmegin við kirkjuna. Hann hvílir norðanmegin ásamt skáldinu Grími Thomsen og frú Georgíu eig- inkonu sinni.“ Legstaður tilgreindur í dagbók Hann komst að því að í Dagbók bálstofu hjá Kirkjugörðum Reykja- víkurprófastsdæmis var skráð að jarðneskar leifar forsetahjónanna Ásgeirs og Dóru væru í Bessastaða- kirkju. Í legstaðaskránni eru til- greindir grafreitir í Bessastaða- kirkjugarði, þar á meðal grafreitur 85 inni í kirkjunni. Þar voru skráð nöfn Magnúsar Gíslasonar amt- manns (d. 1766), konu hans Þór- unnar Guðmundsdóttur (d. 1766), Páls Stígssonar hirðstjóra (d. 1566) og Matthíasar Söfrensen fógeta (d. 1651). „Síðast voru þau Magnús amtmaður og Þórunn kona hans jörðuð í kirkjugólfi Bessastaða- kirkju. Nöfn forsetahjónanna Ás- geirs og Dóru hafi þegar verið skráð í þennan reit 85,“ segir Hreinn. Hann segir ótrúlega marga ekki vita af duftkerum þeirra Ásgeirs og Dóru í kirkjuveggnum. Dóra lést 10. september 1964 og var því fyrst gengið frá duftkeri hennar á þess- um stað. Duftker Ásgeirs var sett þar eftir andlát hans 15. september 1972. Önnur forsetahjón hafa ekki fengið þar hinstu hvílu. Forseta- hjónin Kristján Eldjárn og Halldóra Eldjárn voru jarðsett í Fossvogs- kirkjugarði. Guðrún Katrín Þor- bergsdóttir forsetafrú var jarðsett sunnan við Bessastaðakirkju. Hreinn nefnir að í Hóladómkirkju séu einar átta grafir. Þar eru m.a. grafin Guðbrandur Þorláksson bisk- up, Halldóra Guðbrandsdóttir og fleiri. Legsteinarnir eru í gólfinu. Þetta var lenska fyrr á tímum. „Ég hef aðeins fundið tvær rit- aðar heimildir frá þessari öld þar sem greint er frá legstað Ásgeirs og Dóru. Það er annars vegar í færslu um Bessastaðakirkju á Íslenska ferðavefnum (https://is.nat.is/ bessastadakirkja/). Hins vegar í bók Tryggva Pálssonar, barnabarns þeirra hjóna, Ásgeir Ásgeirsson – maðurinn og meistarinn [Reykjavík 2019],“ bætir Hreinn við. Hann bendir á það í greininni að svo virðist sem sá gjörningur að leggja duftker forsetahjónanna í kórvegg Bessastaðakirkju hafi ekki verið í samræmi við þágildandi lög. Samkvæmt lögum um kirkjugarða sem þá giltu var óheimilt að varð- veita duftker annars staðar en í kirkjugarði. Eins var bannað að taka gröf innan kirkju. Að sögn Hreins var síðast jarð- sett í kirkju hér á landi árið 1997. Ísafjarðarkirkja brann á síðustu öld og var ný og stærri kirkja byggð á sama stað 1991. Nýbyggingin náði yfir nokkur leiði. Settur var upp minningarskjöldur um þau sem hvíldu undir kirkjugólfinu en eitt grafstæðið var frátekið fyrir eigin- konu þess sem þar hvíldi. Þegar hún lést var kirkjugólfið rofið og konan jarðsett við hlið manns síns. Ljósmynd/hsh Bessastaðakirkja Til vinstri við altarið eru minningarskildir um Kristján Eldjárn forseta og frú Halldóru Eldjárn og svo Svein Björnsson forseta og frú Georgíu Björnsson. Hægra megin er minningarskjöldurinn um Ásgeir Ásgeirsson forseta og frú Dóru Þórhallsdóttur. Ljósmynd/hsh Traustir veggir Bygging Bessastaðakirkju hófst 1773 og var hún vígð 1796. Kirkjan var fullbyggð 1823. Hún var byggð úr grjóti úr Gálgahrauni. Hreinn S. Hákonarson Legstaðurinn í kirkjuveggnum - Líkamsleifar forsetahjónanna Ásgeirs Ásgeirssonar og Dóru Þórhallsdóttur eru í vegg Bessa- staðakirkju - Var ekki skráð á legstaðaskrá - Algengt áður fyrr að fyrirmenn fengju leg í kirkjum Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon Forsetahjón Frú Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson forseti. Dóra lést 1964 og Ásgeir 1972.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.