Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 16
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
vfs.is
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
EIN RAFHLAÐA
+ öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég var að leita í legstaðaskránni
(gardur.is) að manni sem hét Ásgeir
Ásgeirsson og fletti fram og til
baka. Þá áttaði ég mig á því að þar
vantaði nafn Ásgeirs Ásgeirssonar
forseta og einnig nafn konu hans
Dóru Þórhallsdóttur. Mér þótti það
forvitnilegt og vakti athygli á
þessu,“ segir séra Hreinn S. Há-
konarson, ritstjóri Kirkjublaðsins
(kirkjubladid.is). Hann birti þar
greinina Þau hvíla í kórveggnum um
leit sína að leg-
stað forseta-
hjónanna.
Hreinn komst
að því að duftker
þeirra hjóna eru
geymd í kórvegg
Bessastaðairkju,
hægra megin við
altaristöfluna, og
á bak við minn-
ingarskjöld með
nöfnum þeirra. Vinstra megin við
altarið eru skildir til minningar um
Svein Björnsson og Georgíu Björns-
son og Kristján Eldjárn og Hall-
dóru Eldjárn. Hreinn segir þá
spurningu áleitna hvers vegna Ás-
geir vildi láta varðveita ösku sína á
þennan hátt.
„Við getum velt því fyrir okkur
hvort Ásgeir hafi viljað halda uppi
virðingu forsetaembættisins með
því. Líklega hafði Sveinn Björnsson,
fyrsti forseti Íslands, einnig í huga
að láta grafa duftker sitt í Bessa-
staðakirkju. Svo var kirkjunni um-
turnað milli 1945 og 1948 og Sveinn
var mjög ósáttur við þær breyt-
ingar. Georgía Björnssson ekkja
hans ákvað að hann skyldi því ekki
hvíla í kirkjunni,“ segir Hreinn. Í
legstaðaskránni eru tvær misvísandi
setningar um Svein, að sögn Hreins.
„Önnur segir að duftker hans sé
varðveitt í Bessastaðakirkju en hin
að það sé varðveitt í reit 84 sem er
norðanmegin við kirkjuna. Hann
hvílir norðanmegin ásamt skáldinu
Grími Thomsen og frú Georgíu eig-
inkonu sinni.“
Legstaður tilgreindur í dagbók
Hann komst að því að í Dagbók
bálstofu hjá Kirkjugörðum Reykja-
víkurprófastsdæmis var skráð að
jarðneskar leifar forsetahjónanna
Ásgeirs og Dóru væru í Bessastaða-
kirkju. Í legstaðaskránni eru til-
greindir grafreitir í Bessastaða-
kirkjugarði, þar á meðal grafreitur
85 inni í kirkjunni. Þar voru skráð
nöfn Magnúsar Gíslasonar amt-
manns (d. 1766), konu hans Þór-
unnar Guðmundsdóttur (d. 1766),
Páls Stígssonar hirðstjóra (d. 1566)
og Matthíasar Söfrensen fógeta (d.
1651). „Síðast voru þau Magnús
amtmaður og Þórunn kona hans
jörðuð í kirkjugólfi Bessastaða-
kirkju. Nöfn forsetahjónanna Ás-
geirs og Dóru hafi þegar verið skráð
í þennan reit 85,“ segir Hreinn.
Hann segir ótrúlega marga ekki
vita af duftkerum þeirra Ásgeirs og
Dóru í kirkjuveggnum. Dóra lést 10.
september 1964 og var því fyrst
gengið frá duftkeri hennar á þess-
um stað. Duftker Ásgeirs var sett
þar eftir andlát hans 15. september
1972. Önnur forsetahjón hafa ekki
fengið þar hinstu hvílu. Forseta-
hjónin Kristján Eldjárn og Halldóra
Eldjárn voru jarðsett í Fossvogs-
kirkjugarði. Guðrún Katrín Þor-
bergsdóttir forsetafrú var jarðsett
sunnan við Bessastaðakirkju.
Hreinn nefnir að í Hóladómkirkju
séu einar átta grafir. Þar eru m.a.
grafin Guðbrandur Þorláksson bisk-
up, Halldóra Guðbrandsdóttir og
fleiri. Legsteinarnir eru í gólfinu.
Þetta var lenska fyrr á tímum.
„Ég hef aðeins fundið tvær rit-
aðar heimildir frá þessari öld þar
sem greint er frá legstað Ásgeirs og
Dóru. Það er annars vegar í færslu
um Bessastaðakirkju á Íslenska
ferðavefnum (https://is.nat.is/
bessastadakirkja/). Hins vegar í bók
Tryggva Pálssonar, barnabarns
þeirra hjóna, Ásgeir Ásgeirsson –
maðurinn og meistarinn [Reykjavík
2019],“ bætir Hreinn við.
Hann bendir á það í greininni að
svo virðist sem sá gjörningur að
leggja duftker forsetahjónanna í
kórvegg Bessastaðakirkju hafi ekki
verið í samræmi við þágildandi lög.
Samkvæmt lögum um kirkjugarða
sem þá giltu var óheimilt að varð-
veita duftker annars staðar en í
kirkjugarði. Eins var bannað að
taka gröf innan kirkju.
Að sögn Hreins var síðast jarð-
sett í kirkju hér á landi árið 1997.
Ísafjarðarkirkja brann á síðustu öld
og var ný og stærri kirkja byggð á
sama stað 1991. Nýbyggingin náði
yfir nokkur leiði. Settur var upp
minningarskjöldur um þau sem
hvíldu undir kirkjugólfinu en eitt
grafstæðið var frátekið fyrir eigin-
konu þess sem þar hvíldi. Þegar hún
lést var kirkjugólfið rofið og konan
jarðsett við hlið manns síns.
Ljósmynd/hsh
Bessastaðakirkja Til vinstri við altarið eru minningarskildir um Kristján Eldjárn forseta og frú Halldóru Eldjárn og svo Svein Björnsson
forseta og frú Georgíu Björnsson. Hægra megin er minningarskjöldurinn um Ásgeir Ásgeirsson forseta og frú Dóru Þórhallsdóttur.
Ljósmynd/hsh
Traustir veggir Bygging Bessastaðakirkju hófst 1773 og var hún vígð 1796.
Kirkjan var fullbyggð 1823. Hún var byggð úr grjóti úr Gálgahrauni.
Hreinn S.
Hákonarson
Legstaðurinn í kirkjuveggnum
- Líkamsleifar forsetahjónanna Ásgeirs Ásgeirssonar og Dóru Þórhallsdóttur eru í vegg Bessa-
staðakirkju - Var ekki skráð á legstaðaskrá - Algengt áður fyrr að fyrirmenn fengju leg í kirkjum
Morgunblaðið/Ólafur K Magnússon
Forsetahjón Frú Dóra Þórhallsdóttir og Ásgeir
Ásgeirsson forseti. Dóra lést 1964 og Ásgeir 1972.