Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
Baðinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Páll Vilhjálmsson bendir á og
dregur ályktanir:
- - -
EES-samn-
ingurinn er
tæplega 30 ára
gamall, ætlaður
þjóðum á leið í
Evrópusam-
bandið. Í dag
eru það þrjú
smáríki, Ísland,
Noregur og
Liechtenstein, sem eiga aðild að
samningnum á móti ESB. Bretum
datt ekki í hug að ánetjast samn-
ingnum eftir útgöngu úr ESB
með Brexit.
- - -
EES er vasaútgáfa af inn-
göngusamningi í Evrópu-
sambandið. Ísland hætti við aðild
að ESB áramótin 2012/2013 í tíð
vinstristjórnar Jóhönnu Sig. Það
er ekki pólitískur vilji til að Ís-
land gangi í ESB. Eftir Brexit er
það pólitískur ómöguleiki.
- - -
Stefna verslunarkeðjunnar
Krónunnar gegn íslenska
ríkinu er á grunni EES-samn-
ingsins. Krónan telur sig eiga
bætur inni hjá almenningi, rík-
issjóði, vegna þess að ýtrustu
ákvæði EES voru ekki nýtt til að
flytja inn í landið evrópska iðn-
aðarvöru undir merkjum land-
búnaðar, s.s. egg, kjöt og mjólk-
urvörur.
- - -
Líkt og aðrar þjóðir standa Ís-
lendingar vörð um innlenda
matvælaframleiðslu. Málsókn
Krónunnar sýnir að innan ramma
EES-samningsins er ekki hægt að
gæta innlendra hagsmuna gagn-
vart útlöndum.
- - -
EES-samningnum á að segja
upp strax. Samningurinn er
óboðlegur fullvalda ríki.“
Páll Vilhjálmsson
Sé hlaupið frá
fyrirvörum fer illa
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Breska götublaðið Mail Online greindi frá því í
gær að Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu og leikmaður Everton, hefði verið
færður í tímabundið skjólshús (e. safehouse) eft-
ir að hafa verið handtekinn síðastliðinn föstudag
grunaður um brot gegn ólögráða einstaklingi.
Gylfa var sleppt gegn tryggingu um helgina
en heimildarmaður Mail Online segir Everton,
félag Gylfa, hafa komið honum fyrir í húsnæðinu
með sólarhringsgæslu. Sami miðill segir eig-
inkonu Gylfa hafa flutt af heimili þeirra hjóna og
sé nú í faðmi fjölskyldu sinnar á Íslandi.
Breskir fjölmiðlar hafa ekki nafngreint Gylfa
vegna lagalegra ástæðna.
Götublaðið The Sun greindi frá því í gær að
Gylfi væri sagður neita harðlega þeim ásök-
unum sem á hann hafa verið bornar. Íslenskir
stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Ever-
ton eru að vonum slegnir vegna frétta af máli
Gylfa. „Menn eru bara í sjokki, ég held að það sé
alveg sama hver það er,“ segir Eyþór Guð-
bjartsson, gjaldkeri stuðningsmannaklúbbs
Everton.
Gylfi sagður neita ásökunum
- Færður í skjólshús
- Stuðningsmenn slegnir
AFP
Neitar Gylfi Þór er sagður neita ásökunum.
Hinn íslensk-kúbverski Yandy
Nuñez Martines segir mótmæli á
Austurvelli gegn ástandinu á Kúbu í
gærkvöldi hafa gengið mjög vel og
staðist allar væntingar.
Á mótmælunum var þeim sem
hafa mótmælt á Kúbu sýnd sam-
staða.
Slík mótmæli hafa verið haldin
víðsvegar um heim á síðustu dögum.
Yandy, sem stóð fyrir mótmælunum
í gær, bendir á að í Bandaríkjunum
hafi fjöldi fólks komið saman fyrir
framan Hvíta húsið og í fjölmörgum
öðrum löndum hafi Kúbverjar mót-
mælt fyrir utan sendiráð Kúbu.
Yandy segist ánægður með mæt-
inguna í gærkvöldi og telur að 30 til
40 manns hafi mætt á mótmælin en
það búa um 100 Kúbverjar á Íslandi.
Að sögn Yandys kröfðust mótmæl-
endurnir frelsis. „Markmið mót-
mælanna er að sýna heiminum að
Kúba hefur verið einræðisríki í
meira en sextíu ár í sama stíl og
Sovétríkin. Það kerfi féll, því svona
kerfi ganga aldrei upp.“
gunnhildursif@mbl.is
Kúbverjar kröfðust
frelsis á Austurvelli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mótmæli Mótmælendur á Austurvelli sýndu Kúbverjum samstöðu í gær.