Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 29
AFP
Forsætisráðherra Hinn 71 árs gamli
taugaskurðlæknir, Ariel Henry.
Ariel Henry var settur í embætti for-
sætisráðherra Haítís í fyrradag.
Sama dag og formlegar minning-
arathafnir voru haldnar um forseta
landsins, Jovenel Moise, sem var
myrtur á heimili sínu fyrr í mán-
uðinum. Moise hafði útnefnt Henry
til að taka við embættinu tveimur
dögum áður en hann var myrtur.
Ráðherrar neituðu hins vegar að
taka skipunina gilda þar sem Henry
hafði ekki svarið embættiseið þegar
forsetinn féll frá.
Henry hefur nú tekið við embætti
og er ætlað að stilla til friðar í ríkinu
en allsherjarupplausn hefur ríkt í
stjórnmálum á Haítí eftir morðið á
Moise. Henry er 71 árs gamall
taugaskurðlæknir og fyrrverandi
innanríkis- og félagsmálaráðherra.
Við innsetninguna sagðist hann ætla
að funda með fulltrúum allra helstu
flokka og hagsmunahópa til þess að
skapa breiða sátt. Þá lofar hann að
boða til kosninga sem fyrst.
HAÍTÍ
Nýr forsætisráð-
herra skipaður
FRÉTTIR 29Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
*Gleraugu: Sutro.
Um helmingur Ástrala býr nú við
útgöngubann. Suður-Ástralía er nú
þriðja ríki landsins til þess að setja
á útgöngubann vegna útbreiðslu
Covid-19. Áður höfðu Nýja Suður-
Wales og Viktoría boðað til banns
og búa nú 13 milljónir manns við
reglurnar, eða um helmingur Ástr-
ala. Íbúar ríkjanna mega einungis
fara út til að kaupa í matinn, stunda
líkamsrækt og sinna allra nauðsyn-
legustu erindum.
Einungis 14% Ástrala eru bólu-
sett gegn veirunni og herjar Delta-
afbrigði veirunnar nú á þjóðina.
Rúmlega 1.500 smit hafa greinst í
Sidney síðan útgöngubann var sett
á fyrir fjórum vikum.
ÁSTRALÍA
Hálf þjóðin býr
við útgöngubann
AFP
Útgöngubann Fátt er á götum Sidney-
borgar í Ástralíu þessa dagana.
Að minnsta kosti 25 eru látnir vegna
mikilla flóða í Kína og fjölda er sakn-
að. Úrhellisrigning síðustu daga hef-
ur valdið hamfaraflóðum í Kína og
hafa yfir 200 þúsund þurft að flýja
heimili sín. Hæsta veðurviðvörun er í
gildi fyrir Henan-hérað sem er eitt
fjölmennasta hérað Kína, en þar búa
um 94 milljónir manna. Tólf létust
eftir að vatn fossaði inn í neðanjarð-
arlestargöng í borginni Zhengzhou í
Henan. Sjónarvottar lýstu skelfileg-
um aðstæðum þar sem fólk kastaði
upp, hágrét og féll í yfirlið vegna súr-
efnisskorts. Sumir voru fastir í hátt í
40 klukkustundir með litlar matar-
birgðir. Margir náðu aðeins í ástvini
sína til þess að kveðja þá í hinsta
sinn. Þá létust fjórir í borginni
Gongyi þar sem hús hrundu í aur-
skriðum.
„Einu sinni á hundrað árum“
Stíflur og stöðuvötn hafa flætt yfir
bakka sína og kínverski herinn hefur
verið fenginn til að stýra vatni yfir-
fullra áa. Flóðin hafa hamlað sam-
göngum. Þá hafa heilbrigðisyfirvöld
þurft að flytja um 600 alvarlega veika
sjúklinga á milli sjúkrahúsa eftir að
rafmagnslaust varð á First Affili-
ated-sjúkrahúsinu í Zhengzhou.
Á hverju ári verða flóð í Kína á
regntímabili á þessu svæði en að
sögn sérfræðinga verða þau verri á
hverju ári með loftslagsbreytingum.
Yfirvöld í Henan-héraði segja flóðin í
ár vera viðburð sem verður „einu
sinni á hundrað árum“ en úrkoman
hefur slegið öll met. Á þremur dög-
um náði úrkoman í Zengzhou meðal-
ársúrkomu í borginni.
Mannskæð flóð í Kína
- Tugir látnir og fjölda saknað - 200 þúsund flýja heimili sín
AFP
Úrkoma Á þremur dögum náði úrkoman í borginni Zengzhou í Henan-
héraði meðalársúrkomu. Úrkoman hefur slegið öll met.