Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
...algjör snilld! Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flækjur
Ekkert vesen
Ómissandi í eldhúsið
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni og Húsasmiðjunni
www.danco.is
Heildsöludreifing
„EFTIR SEINNA SLYSIÐ HÆTTI ÉG
AÐ KEPPA Í SLÁTTUVÉLARALLI OG
EINBEITTI MÉR AÐ SJÓRÆNINGJALEIK.“
„ÞÉR LÉTTIR EFLAUST AÐ VITA AÐ VIÐ
ERUM LENT HEILU OG HÖLDNU, FRÚ MÍN
GÓÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gyrða sig í brók
saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GLEÐILEG JÓL,
FISKAFÉS!
GLEÐILEG JÓL,
KÖRTURASS!
OG GLEÐILEGT
NÝTT ÁR, GÓR-
ILLUGUMPUR!
ERTU BÚINN AÐ HRINGJA Í
BRÓÐUR ÞINN NÝLEGA?
SAMA Á MÓTI,
FÚLHESTUR!
HRÓLFUR, BRÓÐIR SÆLL, SKILUR ÞÚ
HUGTAKIÐ EILÍFÐ?
EKKI MÓÐGAST, BRÓÐIRÓLAFUR, EN, JÁ,
ÉG HEF DOTTAÐ UNDIR TUGUM PRÉDIKANA
ÞINNA!
eru fjöllin stærst og himininn svo
tær og stjörnum prýddur á nótt-
unni.“ Arngrímur vill helst ferðast
langt og hefur t.d. heimsótt Brasilíu,
Ekvador, Víetnam, Kúbu og Mjan-
mar. „Ég var á leiðinni til Tansaníu í
Afríku þegar Covid brast á en ég á
það inni.“
Fjölskylda
Arngrímur var giftur Stoyanka
Guentcheva Tzoneva, f. 30.3. 1974,
og þau eiga dótturina Elenu, f. 25.9.
1996, jógakennari í Reykjavík.
Seinni eiginkona Arngríms var Ásta
Sól Kristjánsdóttir, f. 26.6. 1975, og
þau eiga synina Leon Bjart, f. 12.3.
2010, og Nóa Hrafn, f. 11.1. 2014.
Þau skildu árið 2020. Hálfsystkini
Arngríms, samfeðra, eru Örn, f.
28.5. 1945; Málfríður „Mollý“, f. 15.9.
1949; Jón, f. 30.4. 1951; Laufey, f.
25.2. 1953; Axel, f. 3.3. 1957; Ingi-
björg „Dídí“, f. 8.2. 1958 og Baldur,
f. 13.9. 1965.
Foreldrar Arngríms voru hjónin
Baldur Jónsson, f. 8.6. 1923, d. 18.4.
1994, yfirlæknir barnadeildar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri og
Ólöf S. Arngrímsdóttir, f. 20.6. 1945,
hjúkrunarfræðingur á lyflækn-
isdeild Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri og síðar á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Þau
bjuggu á Akureyri, en Ólöf býr nú í
Reykjavík.
Arngrímur
Baldursson
Jónína Stefanía Ingvarsdóttir
húsfreyja í Árgerði í Svarfaðardal
Sigurjón Baldvinsson
b. í Árgerði í Svarfaðardal, sjómaður
og bátasmiður á Dalvík og Ósi í
Glerárþorpi
Þóra Ingibjörg Sigurjónsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Sigurgeir Guðmundsson
verkamaður í Hrísey og síðar sjómaður og
iðnverkamaður á Akureyri, síðast bús. á Akureyri
Ólöf Stefanía
Arngrímsdóttir
hjúkrunarfræðingur
á Akureyri og síðar í
Reykjavík (kjörforeldrar:
Arngrímur Jón Vídalín
Bjarnason og Elín Guðrún
Einarsdóttir)
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir
var á Höfða, Sauðanessókn, N-Þing.,
húskona á Brimnesi á Langanesi og
ráðskona á Grund, Miðgarðasókn, Eyj.
Þórður Guðmundur Björnsson
húsmaður og daglaunamaður víða, síðar
sjómaður á Þórshöfn og Húsavík
Ólöf Ragnhildur Einarsdóttir
húsfreyja á Grasgeira í Presthólahr., N-Þing.
Jón Árnason vinnumaður
á Tjörnesi og bóndi á Grasgeira í
Presthólahr., N-Þing.
Laufey Jónsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Jón Kristjánsson
bóndi á Akureyri, síðar veitinga- og verslunarmaður, kallaður Jón goði
Elsa Guðrún Jónsdóttir
húsfreyja á Landamótsseli og Arnstapa,
Ljósavatnshreppi og Hrafnsstaðaseli og
Hlíðarenda í Bárðardal
Jón Kristján Jónsson
bóndi á Hlíðarenda og Arndísarstöðum í Bárðardal og Nípá í Köldukinn.
Vesturfari, gerðist bóndi í Dakota
Úr frændgarði Arngríms Baldurssonar
Baldur Jónsson
barnalæknir á Akureyri
Þetta Vísnahorn er skrifað 21.
júlí, en þann dag sumarið 1846
dó Sigurður Breiðfjörð farinn að
heilsu, en mislingar höfðu gengið
um bæinn. Í formála fyrir ljóðum
hans, sem út komu 1894, segir Ein-
ar Benediktsson m.a.: „Það er al-
geng sögn, að Sigurður hafi dáið úr
sulti og mun sú tilhæfa vera í því,
að hann hafði bæði ónógt og illt
fæði í legunni, og er það næsta
ófrægilegt, að enginn skyldi verða
til þess að hjálpa Sigurði í nauðum
hans þá, þar sem hann var vel
kunnur flestum í bænum.“
Að þessu víkur Þorsteinn Erl-
ingsson í ljóði sínu Eden:
Eins fannst mér á Breiðfjörð hann
bresta nú þor
og biluð í strengjunum hljóðin;
þó sagði ég: komdu, hver vísan er vor,
nú viljum við borga þér óðinn;
hann léttir oss heiman og heima vor
spor,
ég heyri hvert barn kunna ljóðin,
og ef að við fellum þig aftur úr hor
í annað sinn grætur þig þjóðin.
Það er vandi að velja stökur eftir
Sigurð, en þessar lærði ég í
menntaskóla:
Prestar hinum heimi frá
hulda dóma segja,
en skyldi þeim engum bregða í brá
blessuðum nær þeir deyja.
Mundum vér ei þora þá
í þeirra húspostillum
auðmjúklega að eftirsjá
ýmsum pennavillum.
Sigurður var fjögur ár á Græn-
landi. Þaðan eru þessar stökur:
Komir þú á Grænlands grund,
ef gjörir ferð svo langa,
þér vil ég kenna að þekkja sprund,
sem þar á buxum ganga.
Allar hafa þær hárið nett
af hvirfli í topp umsnúið,
vafið fast, svo fari slétt,
fallega um er búið.
Þessi vísa hefur orðið að hús-
gangi:
Ástin hefur hýrar brár
en hendur sundurleitar,
ein er mjúk en önnur sár
en þó báðar heitar.
Hér er braghenda:
Sólin ekki sinna verka sakna lætur,
jörðin undan grímu grætur
grasabani komdu á fætur.
Um sólskin í Vestmannaeyjum:
Þegar ég fæ sól að sjá,
svo ég þykist skilja
hún skín þennan hólma á
af hlýðni en ekki vilja.
Og að lokum:
Ráði sá sem ráðið hefur fyrri;
það sem þykir barni best
barnið stundum skaðar mest.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í annað sinn grætur þig þjóðin