Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 56
VIÐTAL
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Við erum mjög spennt því nú er
afmælisár, hátíðin á tuttugu og fimm
ára afmæli, svo dagskráin er vegleg,“
segir Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari, en hún og Sigurður
Bjarki Gunnarsson sellóleikari, eig-
inmaður hennar, eru nýir listrænir
stjórnendur Reykholtshátíðar í
Borgarfirði sem
fram fer 23. til 25.
júlí.
„Við tökum við
keflinu frá Sigur-
geiri Agnarssyni
sem hefur séð um
hátíðina undan-
farin átta ár. Þar á
undan var Auður
Hafsteinsdóttir
með hátíðina í tvö
ár en á undan henni sá Steinunn
Birna Ragnarsdóttir um listræna
stjórnun en hún er líka upphafs-
maður hátíðarinnar. Það sem okkur
Sigurð Bjarka langaði til að gera í til-
efni af afmæli hátíðarinnar var að
tengja við Borgarfjörðinn og Vest-
urlandið. Þess vegna ákváðum við að
nota tækifærið og heiðra minningu
Þorsteins frá Hamri, en hann er
fæddur og uppalinn á Hamri í
Þverárhlíð í Borgarfirði og var í
Héraðsskólanum í Reykholti á sínum
tíma. Við pöntuðum nýtt tónverk eftir
Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur
fyrir sópran, strengjakvartett og
píanó sem verður frumflutt á sunnu-
deginum. Ingibjörg samdi þetta verk
við ljóð eftir Þorstein frá Hamri, en
hún valdi úrval af ljóðum frá öllum
hans skáldferli, bæði gömul og ný
ljóð. Við erum mjög spennt að kynna
útkomuna, því Ingibjörg hefur mikið
næmi til að flétta ljóð inn í tónlist,
hún hefur gert það áður,“ segir Þór-
unn og bætir við að jafnframt verði
fyrirlestur um Þorstein frá Hamri á
laugardeginum í Snorrastofu, þar
sem Ástráður Eysteinsson mun fjalla
um verk skáldsins.
Tónlist, kirkja og Snorrastofa
Þórunn segir að þau Sigurð Bjarka
hafi langað til að vera bæði með
hljóðfæraleikara sem hafa fylgt há-
tíðinni frá upphafi, eins og Auði Haf-
steinsdóttur og Bryndísi Höllu, en
líka unga, sem eru að koma fram á
hátíðinni í fyrsta skipti.
„Okkur finnst gaman að Sigur-
björn Bernharðsson fiðluleikari kem-
ur í fyrsta sinn fram á hátíðinni. Her-
dís Anna Jónasdóttir sópransöng-
kona, Bjarni Frímann Bjarnason,
píanó- og víóluleikari, og Gunnhildur
Daðadóttir fiðluleikari eru öll einnig
að koma fram í fyrsta skipti á hátíð-
inni,“ segir Þórunn og bætir við að
hátíðin sé í raun einnig vígsluafmæli
kirkjunnar og því verði fagnað á
sunnudeginum með hátíðarmessu
þar sem Hildur Björk Hörpudóttir
þjónar fyrir altari, en hún er nýráðin
prestur í Reykholtskirkju.
„Upphaf þessarar tónleikahátíðar
er í tengslum við byggingu kirkj-
unnar, þetta er því sameiginleg hátíð
tónlistar, kirkjunnar og Snorrastofu.
Steinunn Birna píanóleikari verður
sérstakur gestur á sunnudeginum og
leikur á píanó, því hún er jú upphafs-
maður hátíðarinnar.“
Þórunn segir að í gegnum tíðina
hafi verið allur gangur á hvort kór
kæmi fram á Reykholtshátíð eða
ekki, en það verður ekki að þessu
sinni. „Áherslan hjá okkur Sigurði
Bjarka núna er á kammertónlistina
og okkur langaði til að tvinna sönginn
meira inn í alla hátíðina, en söng-
konan Herdís Anna kemur fram á
öllum tónleikunum. Hún syngur
óperuaríur á föstudeginum, sönglög
á laugardeginum og kemur líka fram
í einu verki með kvartett á laugar-
dagskvöldinu. Svo syngur hún í nýja
verkinu hennar Ingibjargar Ýrar á
sunnudeginum.
Í fyrsta sinn á Íslandi?
Jafnframt verður flutt stórt
strengjakammerverk á öllum tón-
leikunum, þrír kvintettar og einn
sextett. Okkur finnst gaman þegar
eru tveir sellistar á hátíðinni,
Bryndís Halla Gylfadóttir og
Sigurður Bjarki Gunnarsson, því þá
er hægt að flytja þessa dásamlegu
sellókvintetta, en þeir eru ekki mjög
margir til. Þegar bætt er einu sellói
við strengjakvartett þá kemur aukin
dýpt, þar sem annað sellóið getur
fengið stærra bassahlutverk á meðan
hitt sellóið fær lýrískara hlutverk. Þá
gerist eitthvað stórkostlegt.
Við bjóðum upp á Schubert-
sellókvintett og svo Glazunov-
sellókvintettinn, en það er hugsan-
legt að hann hafi aldrei verið fluttur á
Íslandi áður. Þetta er algjör perla,
ótrúlega fallegt stykki. Þessir
kvintettar eru báðir á laugardeginum
en á sunnudeginum verður Brahms-
strengjasextett, sem er viðeigandi
grand finale á svona hátíð,“ segir
Þórunn sem mun sjálf spila á hátíð-
inni eins og hún hefur oft gert áður,
og sama á við eiginmanninn, Sigurð
Bjarka, hinn listræna stjórnanda
hátíðarinnar. Allar nánari upplýs-
ingar og dagskrána í heild má nálg-
ast á vefnum reykholtshatid.is.
Tvinna sönginn meira inn í alla hátíðina
- Fagna 25 ára
afmæli Reykholts-
hátíðar með veglegri
dagskrá
- Nýtt tónverk
frumflutt til að
heiðra minningu
Þorsteins frá Hamri
Steinunn Birna Ragnarsdóttir
Auður Hafsteinsdóttir
Ljósmynd/Valgerður G. Halldórsdóttir
Sumarhátíð Snorralaug og Reykholtskirkja, sem hýsir tónlistarhátíðina.
Sigurður Bjarki Gunnarsson Þorsteinn frá Hamri
Herdís Anna Jónasdóttir
Sigurbjörn Bernharðsson
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
Bryndís Halla Gylfadóttir
Þórunn Ósk
Marinósdóttir
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
Ljósmyndaprentun
Frábært fyrir ljósmyndara. Bjóðum upp á prentun
í öllum stærðum, t.d. á striga, álplötu eða pappír.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|konni@xprent.is
www.xprent.is