Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Já já, við erum enn þá á lífi eftir far-
aldurinn og erum að halda upp á
fimm ára afmælið okkar, verður bara
heil afmælishelgi núna,“ segir Her-
dís Hrönn Árnadóttir, sem í félagi
við mann sinn, Sævar Lúðvíksson,
rekur einn rómaðasta samkomustað
skemmtanaþyrstra Íslendinga á
spænsku eyjunni Tenerife, Nostalgia
Bar.
Þrálátur misskilningur hefur þó
gerst landlægur hjá Herdísi og Sæv-
ari síðustu misseri, segir Herdís frá.
„Mjög margir gesta okkar halda að
Sævar sé dáinn og rekur þá í roga-
stans þegar þeir koma á barinn og
sjá manninn ljóslifandi. Sumir telja
hann jafnvel ganga aftur á barnum
þegar þeir sjá hann,“ segir Herdís
frá.
Er þessi óvenjulegi misskilningur
sprottinn af því að Sævari er ruglað
saman við Guðmund Guðbjartsson
heitinn, veitingamann á barnum
Bar-Inn í Los Cristianos þar á eyj-
unni, sem lést sviplega í janúar í
fyrra, aðeins rúmlega fimmtugur að
aldri, og varð Íslendingasamfélaginu
á Tenerife harmdauði, en Bar-Inn
starfrækti Guðmundur ásamt eig-
inkonu sinni Ingifríði Rögnu Skúla-
dóttur. „Já, í guðs bænum leiðréttu
þetta, ómögulegt að fólk haldi að
Sævar sé dáinn,“ segir Ingifríður í
samtali við Morgunblaðið þegar fal-
ast er eftir leyfi hennar til að nefna
stórlega ýktar fréttir af andláti Sæv-
ars.
Ígildi ræðismannsskrifstofu
Lífið er þar með að ná sínum
venjulega takti á Nostalgia-barnum
eftir heimsfaraldurinn og kveður
Herdís þau Sævar hvergi bangin við
að halda veglega fimm ára afmæl-
ishátíð um helgina. Eins og dygga
lesendur kann að reka minni til hafa
nær allir miðlar Árvakurs margrætt
við Herdísi og Sævar undanfarin ár
og greindi mbl.is meðal annars frá
því í áramótaviðtali í byrjun liðins
árs, þegar bar þeirra hlotnaðist sú
sæmd að verða ígildi ræðismanns-
skrifstofu Íslands á Tenerife og
kvennaklósettið var gert að kjörklefa
fyrir kosningar uppi á Íslandi.
Þurftu að loka eins og aðrir
„Við byrjum á fimmtudaginn [í
dag] með músikk-quizzi [spurn-
ingakeppni um tónlist] þar sem við
gerum ráð fyrir mjög mörgum gest-
um. Á föstudaginn [á morgun] verð-
ur þriggja rétta afmæliskvöldverður
hjá okkur og svo á laugardag hoppu-
kastali, fríar pylsur og ís, svo við ætl-
um bara að fagna því almennilega að
vera búin að ná að halda rekstrinum
gangandi í fimm ár,“ segir Herdís, en
þau hjónin máttu, eins og aðrir vert-
ar um heim allan, sæta því að loka
dyrum sínum á meðan heimsbyggðin
gekk grímuklædd um dimman dal
síðasta hálft annað ár og hefur ef til
vill ekki enn lokið þrautagöngu sinni
ef marka má fréttir síðustu daga.
Og eins og venjulega, þegar byrj-
að er að ræða kórónufaraldurinn við
Íslendinga erlendis, er erfitt að
stoppa.
– Hvernig gekk þetta eiginlega hjá
ykkur?
„Við fengum engan styrk frá rík-
inu, Spánn var bara ekki með það
þangað til í febrúar á þessu ári. Núna
er þetta þannig að ég fæ 600 evrur í
styrk ef ég er undir 50 prósentum í
sölu miðað við hvað ég seldi venju-
lega fyrir tveimur árum,“ útskýrir
Herdís, „og við náum því ekki núna,
enda varla hægt að bera saman við
2019 þegar var brjálað að gera hjá
okkur, til dæmis finnski hópurinn á
laugardögum,“ heldur vertinn
áfram, en eins og mbl.is greindi frá í
áramótaviðtali snemmárs í fyrra
eiga finnskir ellilífeyrisþegar sér fast
kvöld á Nostalgia á laugardögum,
sem svo rammt kveður að, að finnsk
útvarpsstöð hefur gert út fólk og
sent til Tenerife til að fjalla um þessi
annáluðu kvöld þar sem Sævar Lúð-
víksson, sem þó er talinn látinn, hef-
ur troðið upp með söng og gítarleik
þannig að eldri finnskar konur falla í
stafi af hrifningu.
Vissi hvað allir vildu drekka
– En áfram með leiðinlegt veiru-
tal, hvað annað?
„Það sem gerðist þegar við opn-
uðum 1. október, þá opnuðum við
einn dag í viku og vorum þá að höfða
til Íslendinga sem eru búsettir hér,
sem þýddi að mjög auðvelt var að
kaupa inn, ég vissi hverjir myndu
mæta og vissi fyrir fram hvað þeir
vildu drekka,“ rifjar Herdís upp frá
liðnum vetri. Núna séu ferðamenn
allra þjóða komnir í spilið aftur og
salan því mun fjölbreyttari, meira
um hanastélsdrykki til að mynda og
innkaupin því flóknari. „En þetta er
auðvitað miklu skemmtilegra núna
samt,“ segir hún.
Þurftu að finna áhugamál
– En hvað gerið þið þegar þið eigið
frí?
„Já, það varð nú hálfgert vanda-
mál úr því,“ segir Herdís og hlær
sínum þekkta dillandi hlátri. „Okkur
langaði að eiga okkur eitthvert ann-
að áhugamál en að sitja á börum að
drekka eða fara í kokteilboð, við rek-
um jú bar. Sævar er nú með nýjar
mjaðmir, búið að skipta um mjaðmir
í honum, en ég gat samt ekki farið að
láta hann strippa, hann er of gamall
fyrir það, svo við ákváðum að skella
okkur í golf, eitthvað sem er heil-
brigt og hefur ekkert með áfengi að
gera, og nú er Sævar orðinn alveg
„hooked“ á golfi,“ segir Herdís og
hlær. Þannig að nú eigum við okkur
alla vega sameiginlegt áhugamál, en
Sævar er miklu betri en ég, hann var
byrjaður á þessu löngu fyrr. Nú
vantar mig bara sætan ungan golf-
kennara,“ segir Herdís sposk og
hlær enn af hjartans lyst.
Gott ár fyrir faraldurinn
Í heildina segir hún þau af-
skaplega ánægð með stöðuna nú,
þrátt fyrir öldudalinn, sem vonandi
er brátt að baki.
„Við höfum ekki fengið styrki frá
neinum og höfum ekki tekið nein lán,
við áttum mjög gott ár fyrir farald-
urinn, vorum búin að leggja smá fyr-
ir til að kaupa ný borð og eitthvað
svona, en notuðum það þá bara í
staðinn til að fleyta okkur gegnum
faraldurinn og nú horfum við bara
björtum augum á framtíðina, lífið er
að byrja aftur,“ segir Herdís Hrönn
Árnadóttir, sem hefur rekið bar í
framandi suðurevrópsku umhverfi í
fimm ár, en, rétt eins og kettirnir,
hafa þau Sævar alltaf komið niður
standandi fram til þessa. Kannski
hafa nýju mjaðmirnar hans Sævars
eitthvað með það að gera.
Fjöldi gesta telur Sævar látinn
- Herdís og Sævar fagna fimm ára afmæli Íslendingabarsins Nostalgia á Tenerife - Sævari oft rugl-
að saman við Guðmund Guðbjartsson heitinn - Langaði að eiga annað áhugamál en að sitja á börum
Bar-par Herdís og Sævar við verslunarmiðstöðina Parque Santiago 6 skammt frá heimili sínu í Arona á Tenerife,
augnaráð Sævars hefði sómt sér vel í kvikmynd með Humphrey Bogart. Þau fagna fimm ára rekstrarafmæli í dag.
Atvinna
AirMini kæfisvefnsvélin
Sú allra minnsta og hljóðlátasta á
markaðnum í dag.
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Ertu með kæfisvefn?
uðvelt að taka með í:
ústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið
fa liðið einkennilega var ég greindur með kæfisvefn.
lger bylting í lífimínu eftir að ég fékk kæfisvefnsvél.
g ferðast mikið hefur ferðasvefnvélin frá STOÐ
bjargað mér. Vélin er svo lítil að það fer ekki mikið
henni en farsíma.
staklega meðfærileg og ég ferðast einfaldlega ekki
hennar.
gnar Hilmarsson
A
B
Eftir að ha
Það varð a
Þar sem é
algjörlega
meira fyrir
Hún er ein
án
Ra
Einbýlishús í Vesturborginni óskast
STAÐGREIÐSLA Í BOÐI
Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson
Löggiltur fasteignasali
sverrir@eignamidlun.is
588 9090
Viðskiptavinur okkar leitar að 250-350 fm einbýlishúsi í
Vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.