Morgunblaðið - 22.07.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 22.07.2021, Síða 18
18 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Já já, við erum enn þá á lífi eftir far- aldurinn og erum að halda upp á fimm ára afmælið okkar, verður bara heil afmælishelgi núna,“ segir Her- dís Hrönn Árnadóttir, sem í félagi við mann sinn, Sævar Lúðvíksson, rekur einn rómaðasta samkomustað skemmtanaþyrstra Íslendinga á spænsku eyjunni Tenerife, Nostalgia Bar. Þrálátur misskilningur hefur þó gerst landlægur hjá Herdísi og Sæv- ari síðustu misseri, segir Herdís frá. „Mjög margir gesta okkar halda að Sævar sé dáinn og rekur þá í roga- stans þegar þeir koma á barinn og sjá manninn ljóslifandi. Sumir telja hann jafnvel ganga aftur á barnum þegar þeir sjá hann,“ segir Herdís frá. Er þessi óvenjulegi misskilningur sprottinn af því að Sævari er ruglað saman við Guðmund Guðbjartsson heitinn, veitingamann á barnum Bar-Inn í Los Cristianos þar á eyj- unni, sem lést sviplega í janúar í fyrra, aðeins rúmlega fimmtugur að aldri, og varð Íslendingasamfélaginu á Tenerife harmdauði, en Bar-Inn starfrækti Guðmundur ásamt eig- inkonu sinni Ingifríði Rögnu Skúla- dóttur. „Já, í guðs bænum leiðréttu þetta, ómögulegt að fólk haldi að Sævar sé dáinn,“ segir Ingifríður í samtali við Morgunblaðið þegar fal- ast er eftir leyfi hennar til að nefna stórlega ýktar fréttir af andláti Sæv- ars. Ígildi ræðismannsskrifstofu Lífið er þar með að ná sínum venjulega takti á Nostalgia-barnum eftir heimsfaraldurinn og kveður Herdís þau Sævar hvergi bangin við að halda veglega fimm ára afmæl- ishátíð um helgina. Eins og dygga lesendur kann að reka minni til hafa nær allir miðlar Árvakurs margrætt við Herdísi og Sævar undanfarin ár og greindi mbl.is meðal annars frá því í áramótaviðtali í byrjun liðins árs, þegar bar þeirra hlotnaðist sú sæmd að verða ígildi ræðismanns- skrifstofu Íslands á Tenerife og kvennaklósettið var gert að kjörklefa fyrir kosningar uppi á Íslandi. Þurftu að loka eins og aðrir „Við byrjum á fimmtudaginn [í dag] með músikk-quizzi [spurn- ingakeppni um tónlist] þar sem við gerum ráð fyrir mjög mörgum gest- um. Á föstudaginn [á morgun] verð- ur þriggja rétta afmæliskvöldverður hjá okkur og svo á laugardag hoppu- kastali, fríar pylsur og ís, svo við ætl- um bara að fagna því almennilega að vera búin að ná að halda rekstrinum gangandi í fimm ár,“ segir Herdís, en þau hjónin máttu, eins og aðrir vert- ar um heim allan, sæta því að loka dyrum sínum á meðan heimsbyggðin gekk grímuklædd um dimman dal síðasta hálft annað ár og hefur ef til vill ekki enn lokið þrautagöngu sinni ef marka má fréttir síðustu daga. Og eins og venjulega, þegar byrj- að er að ræða kórónufaraldurinn við Íslendinga erlendis, er erfitt að stoppa. – Hvernig gekk þetta eiginlega hjá ykkur? „Við fengum engan styrk frá rík- inu, Spánn var bara ekki með það þangað til í febrúar á þessu ári. Núna er þetta þannig að ég fæ 600 evrur í styrk ef ég er undir 50 prósentum í sölu miðað við hvað ég seldi venju- lega fyrir tveimur árum,“ útskýrir Herdís, „og við náum því ekki núna, enda varla hægt að bera saman við 2019 þegar var brjálað að gera hjá okkur, til dæmis finnski hópurinn á laugardögum,“ heldur vertinn áfram, en eins og mbl.is greindi frá í áramótaviðtali snemmárs í fyrra eiga finnskir ellilífeyrisþegar sér fast kvöld á Nostalgia á laugardögum, sem svo rammt kveður að, að finnsk útvarpsstöð hefur gert út fólk og sent til Tenerife til að fjalla um þessi annáluðu kvöld þar sem Sævar Lúð- víksson, sem þó er talinn látinn, hef- ur troðið upp með söng og gítarleik þannig að eldri finnskar konur falla í stafi af hrifningu. Vissi hvað allir vildu drekka – En áfram með leiðinlegt veiru- tal, hvað annað? „Það sem gerðist þegar við opn- uðum 1. október, þá opnuðum við einn dag í viku og vorum þá að höfða til Íslendinga sem eru búsettir hér, sem þýddi að mjög auðvelt var að kaupa inn, ég vissi hverjir myndu mæta og vissi fyrir fram hvað þeir vildu drekka,“ rifjar Herdís upp frá liðnum vetri. Núna séu ferðamenn allra þjóða komnir í spilið aftur og salan því mun fjölbreyttari, meira um hanastélsdrykki til að mynda og innkaupin því flóknari. „En þetta er auðvitað miklu skemmtilegra núna samt,“ segir hún. Þurftu að finna áhugamál – En hvað gerið þið þegar þið eigið frí? „Já, það varð nú hálfgert vanda- mál úr því,“ segir Herdís og hlær sínum þekkta dillandi hlátri. „Okkur langaði að eiga okkur eitthvert ann- að áhugamál en að sitja á börum að drekka eða fara í kokteilboð, við rek- um jú bar. Sævar er nú með nýjar mjaðmir, búið að skipta um mjaðmir í honum, en ég gat samt ekki farið að láta hann strippa, hann er of gamall fyrir það, svo við ákváðum að skella okkur í golf, eitthvað sem er heil- brigt og hefur ekkert með áfengi að gera, og nú er Sævar orðinn alveg „hooked“ á golfi,“ segir Herdís og hlær. Þannig að nú eigum við okkur alla vega sameiginlegt áhugamál, en Sævar er miklu betri en ég, hann var byrjaður á þessu löngu fyrr. Nú vantar mig bara sætan ungan golf- kennara,“ segir Herdís sposk og hlær enn af hjartans lyst. Gott ár fyrir faraldurinn Í heildina segir hún þau af- skaplega ánægð með stöðuna nú, þrátt fyrir öldudalinn, sem vonandi er brátt að baki. „Við höfum ekki fengið styrki frá neinum og höfum ekki tekið nein lán, við áttum mjög gott ár fyrir farald- urinn, vorum búin að leggja smá fyr- ir til að kaupa ný borð og eitthvað svona, en notuðum það þá bara í staðinn til að fleyta okkur gegnum faraldurinn og nú horfum við bara björtum augum á framtíðina, lífið er að byrja aftur,“ segir Herdís Hrönn Árnadóttir, sem hefur rekið bar í framandi suðurevrópsku umhverfi í fimm ár, en, rétt eins og kettirnir, hafa þau Sævar alltaf komið niður standandi fram til þessa. Kannski hafa nýju mjaðmirnar hans Sævars eitthvað með það að gera. Fjöldi gesta telur Sævar látinn - Herdís og Sævar fagna fimm ára afmæli Íslendingabarsins Nostalgia á Tenerife - Sævari oft rugl- að saman við Guðmund Guðbjartsson heitinn - Langaði að eiga annað áhugamál en að sitja á börum Bar-par Herdís og Sævar við verslunarmiðstöðina Parque Santiago 6 skammt frá heimili sínu í Arona á Tenerife, augnaráð Sævars hefði sómt sér vel í kvikmynd með Humphrey Bogart. Þau fagna fimm ára rekstrarafmæli í dag. Atvinna AirMini kæfisvefnsvélin Sú allra minnsta og hljóðlátasta á markaðnum í dag. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Ertu með kæfisvefn? uðvelt að taka með í: ústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið fa liðið einkennilega var ég greindur með kæfisvefn. lger bylting í lífimínu eftir að ég fékk kæfisvefnsvél. g ferðast mikið hefur ferðasvefnvélin frá STOÐ bjargað mér. Vélin er svo lítil að það fer ekki mikið henni en farsíma. staklega meðfærileg og ég ferðast einfaldlega ekki hennar. gnar Hilmarsson A B Eftir að ha Það varð a Þar sem é algjörlega meira fyrir Hún er ein án Ra Einbýlishús í Vesturborginni óskast STAÐGREIÐSLA Í BOÐI Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is Sverrir Kristinsson Löggiltur fasteignasali sverrir@eignamidlun.is 588 9090 Viðskiptavinur okkar leitar að 250-350 fm einbýlishúsi í Vesturborginni. Staðgreiðsla í boði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.