Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 64
WWW.ILVA.IS 1.júlí - 9.ágúst ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is Útsala 40% 40% 40% 30% 30% 30% WESTON hægindastóll. Brúnt bonded leður. 129.900 kr. NÚ 77.940 KR. DC 9100 3ja sæta sófi. Savoy split leður. L219 cm. 299.900 kr. NÚ 179.940 KR. WOODY sófaborð. Hvíttuð eik. 80x128 cm. 79.900 kr. NÚ 47.940 KR. LANGKAWI hliðarborð. 16.900 kr. NÚ 11.830 KR. CLEO skemill, grár, grænn eða ocher. 18.900 kr. NÚ 13.230 KR. BJORG 2ja sæta sófi. L151 cm. 109.900 kr. NÚ 76.930 KR. Hljómsveitin Brek leikur í Skyrgerðinni í Hveragerði í kvöld kl. 20.30 og á Icelandic Lava Show í Vík á laugar- dag kl. 18. Sveitina skipa þau Harpa Þorvaldsdóttir, söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson á gítar, Guðmundur Atli Pétursson á mandólín og Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa. Þau sendu frá sér sína fyrstu plötu í seinasta mánuði. Lögin eru sungin á íslensku og mikil áhersla á fjölskrúðugt málfar. Sveitin leitast við að brjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar. Brek spilar í Hveragerði og Vík FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 203. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Milwaukee Bucks vann loks sinn annan meistaratitil eftir fimmtíu ára bið með sigri á Phoenix Suns, 105:98, í sjötta leik úrslitarimmu NBA-deildarinnar í körfu- knattleik í Milwaukee. Lykillinn að sigri Milwaukee var stórleikur Giannis Antetokounmpos, sem skoraði fimmtíu stig, tók fjórtán fráköst og varði fimm skot. Gunnar Valgeirsson fjallar um Giannis og úrslitaleikinn í blaðinu í dag. »54 Stórleikur Grikkjans réð úrslitum ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í hópi Stuðmanna var Tómas mikil- vægur hlekkur. Lundin var létt, sem bjargaði oft málum. Okkur finnst því mikilvægt að Tómasarlund verði víða og dafni vel,“ segir Jakob Frímann Magnússon. Vinir og samstarfsfólk Tómasar Magnúsar Tómassonar heitins, svo sem úr Stuðmönnum og Græna hern- um, komu saman í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í Reykjavík í gær þar sem opnaður var svonefndur Tómasarlundur. Austast og innst í garðinum góða hafa verið gróðursett fjögur tré í minningu Tómasar; tákn um bassastrengina fjóra sem Tómas lék fimlega á. Framan við trén er bekkur í litum regnbogans, sem minnir á fjölbreyti- leika mannlífsins. Skógur og geðrækt „Við ætlum á næstunni að rækta Tómasarlund um land allt, en verk- efnið fléttar saman skógrækt og geð- rækt. Látum til okkar taka á um tutt- ugu stöðum á landinu. Næst er að gróðursetja í nýjum Tómasarlundi við Hamar, nærri Borgarnesi. Þá munum við láta til okkar taka í Laugahlíð í Svarfaðardal, beint á móti bænum Völlum, en þaðan var Tómas ættaður. Þar þarf að taka til hendi. Stærsti Tómasarlundurinn er hins vegar við Kjarnaskóg á Akur- eyri,“ segir Jakob. Tómas Magnús Tómasson (1954- 2018) var einn hugmyndasmiða Græna hersins og sá sem gaf honum nafn. Lund og skapgerð Tómasar var annáluð og laðaðist fólk jafnan að glaðlegu fasi hans, ljúflyndi, sagna- gáfu og annáluðum skemmtilegheit- um. Hann var oft kallaður Bassaleik- ari Íslands og lék ekki aðeins með Stuðmönnum og Þursaflokknum heldur á fleiri hljóðritum en nokkur íslenskur tónlistarmaður hefur gert fyrr og síðar. Þá stjórnaði hann upp- tökum á mörgum mest seldu hljóm- plötum á Íslandi. Nærtækt er þar að nefnda Vísnaplöturnar góðkunnu, sem seldust í bílförmum. Fegrar, hreinsar og málar Græni herinn ferðast um landið í sumar og gróðursetur, fegrar, hreinsar og málar. Markmið fimm ára áætlunar í starfinu er að fegra hringveginn og nærumhverfi hans til muna. Þegar hafa mörg tonn af járnarusli verið fjarlægð og haldið verður áfram á þeirri sömu braut í næstu framtíð. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Minning Vinir Tómasar á bekknum í Laugardalnum í gær og að baki til hægri eru trén sem gróðursettt voru í minn- ingu hans. Á myndinni eru, frá vinstri í fremri röð, Þorgils Björgvinsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Andrea Gylfadótt- ir og Einar Rúnarsson. Aftar eru Jakob Frímann Magnússon, Pálmi Sigurhjartarson og Ásgeir Óskarsson. Tómasarlund í hávegum - Fallegur lundur í Laugardalnum - Fjögur tré og bassa- strengir - Í minningu Tómasar - Glaðlyndi og sagnagáfa Bassinn Tómas Tómasson á góðri stundu með Stuðmönnum árið 2005.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.