Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Ferðamaður Á meðan fólk spókar sig í sól og blíðu fyrir norðan og austan hafa ferðamenn á suðvesturhorninu mátt þola bleytu og svalt loft, líkt og þessi þungbúni ferðamaður sem beið eftir fari. Unnur Karen Þegar allt er á fleygiferð, þegar póli- tískrar og félagslegrar upplausnar gætir, þegar aðstæður eru ófyrirsjáanlegar, þá blasir við mikilvægi þess að menn hafi föst mið og óhagganleg gildi sem reynst hafa vel. Stjórnarskrá, lög- um og stjórnmálum er ætlað að standa vörð um slík gildi. Við stöndum nú frammi fyrir því að síðastnefndir öryggisventlar eru vanræktir. Gengið er frjálslega um ákvæði stjórnarskrárinnar, lýðræð- isrót íslenskra laga trosnar frá ári til árs og stjórnmálamenn ganga sífellt lengra í að framselja vald sitt. Samhliða þessari þróun birtist ný sviðsmynd við sjóndeildarhring- inn, þar sem ýmiss konar samtök og hagsmunahópar takast á um völd og áhrif. Hér vísa ég til hópa sem byggðir eru á hagsmunum og sameiginlegri sjálfsmynd þeirra sem samsama sig með hópnum. Þessi þróun er stærsta ógnin við lýðræðið og verður enn ókræsilegri þegar baráttan um völdin færist út fyrir landsteinana og risahagsmunir taka sér völd yfir þjóðrík- inu. Í öllu þessu leynist þversögn sem erfitt er að útskýra: að innanlandsófriður verður herskárri á sama tíma og áhrif innlendra stjórnvalda og stjórnmálamanna verða minni. Með því að færa borgurunum þau skilaboð að þau til- heyri þessum eða hin- um hagsmunahópnum og verði að samræma hugsanir sínar hags- munum hópsins, er einstakling- urinn gerður að óvirkum áhorfanda í hinu pólitíska og lýðræðislega ferli. Í stað rökræðu milli ein- staklinga umbreytast stjórnmálin í baráttu mismunandi hagsmuna- hópa, þar sem einstaklingurinn er í algjöru aukahlutverki, ef nokkru. Þrýstihópavæðingin er andstæð lýðræðinu, enda er hún drifin áfram af undirliggjandi andúð á lýðræðinu sem óskilvirku stjórn- kerfi. Í raun mætti segja að hags- munahópar hafi nú yfirtekið stjórn- málin í heild. Þessir hópar klæða málflutning sinn í búning hlut- lausrar greiningar og nota fjár- muni sína og aðgengi að ráða- mönnum til þess að keyra hagsmunamál sín í gegnum þær stofnanir sem lögum samkvæmt er ætlað að vera „hliðverðir“ sam- félagsins. Þegar svo er komið ber enginn í raun ábyrgð lengur. Hlut- verk einstaklinganna er þá aðeins að vinna í þágu hagsmunahópsins (á grunni hjarðhugsunar) og fram- fylgja skipunum. Í slíku umhverfi þarf ekki að koma á óvart að ein- staklingarnir fari að líta á sig sem fórnarlömb eða kjósi að víkja sér undan ábyrgð með því að segjast ekki mega tjá sig, jafnvel ekki um brýnustu mál, stöðu sinnar vegna. Frammi fyrir þessu verða menn að snúa til baka og rækta grunninn ef lýðræðið á ekki að leysast upp í sjónhverfingar. Stjórnskipuninni er ætlað að standa gegn því að lýðræðið afbak- ist á framangreindan hátt. Okkur ber því að vinna gegn því að þrýstihópar og hagsmunasamtök komist í þá stöðu að geta kramið aðra undir skóhæl sínum og svipt þá borgaralegum réttindum, þ.m.t. tjáningarfrelsi. Samkvæmt framansögðu er það réttur okkar og skylda, sem frjálsra einstaklinga, að taka ábyrgð á framtíð okkar og verja lýðræðislega stjórnarhætti. Tján- ingarfrelsi og öll önnur mannrétt- indi byggja á þessum grunni. Þannig má segja að vestræn stjórnskipun standi og falli með því að frelsi borgaranna sé virt. Ofríki stendur hins vegar gegn frelsi mannsins, á móti sjálfstæðri hugs- un. Slíkt stjórnarfar viðurkennir ekki sjálfsforræði einstaklingsins, vanvirðir samvisku borgaranna og gengur á þeim grunni út frá því að stjórna megi mönnum eins og skynlausum skepnum, svipta þá frelsi, neita þeim um réttindi og mismuna á grundvelli útlits, stéttar eða stöðu. Lýðræðisleg stjórn- skipun ver frelsi manna, sbr. stjórnarskrárákvæði um trúfrelsi, tjáningarfrelsi, skoðanafrelsi, at- vinnufrelsi, félagafrelsi o.fl. Harð- stjórn og ofríki snýst á hinn bóginn ekki um frelsi heldur um vald yfir öðrum, t.d. með tjáningarbanni, fundabanni, skoðanabanni o.fl. Við þessu þarf að bregðast með því að vekja fólk til meðvitundar um ábyrgð sína og skyldur gagn- vart lýðræðinu, gagnvart jafnvæg- inu sem fyrr var nefnt. Þessari ábyrgð sinnum við með því að taka þátt í lýðræðislegu samtali, hirða um stoðir lýðræðisins, láta til okk- ar taka í félagsstarfi, bjóða fram krafta okkar, kjósa, nota sjálfstæða hugsun okkar og láta ekki berast með straumnum. Ég leyfi mér að birta þessar lín- ur til að minna á að við berum ekki fyrst og fremst skyldur gagnvart „hagsmunahópnum okkar“, heldur gagnvart samfélaginu öllu. Á þeim grunni ákvað ég að bjóða mig fram til setu á löggjafarþingi Íslendinga. Þetta er borgaralegur réttur minn, sem ég afsalaði mér ekki með því að taka við dómarastarfi. Nái ég kjöri á þing mun ég að sjálfsögðu láta af dómarastörfum á meðan ég gegni þingmennsku. Það ber vott um dómgreindarleysi af hálfu Fréttablaðsins og annarra að láta sér detta í hug að menn ætli sér að fara með löggjafar- og dómsvald á sama tíma. Ýmsir embættismenn hafa í gegnum tíðina sest tíma- bundið á þing án þess að búið hafi verið til nokkurt fjaðrafok um það. Eftir Arnar Þór Jónsson »Nái ég kjöri á Al- þingi mun ég að sjálfsögðu láta af dóm- arastörfum á meðan ég gegni þingmennsku. Arnar Þór Jónsson Höfundur skipar 5. sætið á framboðs- lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur- kjördæmi. Að gefnu tilefni – Innanfélagsreglur hagga ekki stjórnarskrárbundnum mannréttindum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.