Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 31
31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
Ferðamaður Á meðan fólk spókar sig í sól og blíðu fyrir norðan og austan hafa ferðamenn á suðvesturhorninu mátt þola bleytu og svalt loft, líkt og þessi þungbúni ferðamaður sem beið eftir fari.
Unnur Karen
Þegar allt er á
fleygiferð, þegar póli-
tískrar og félagslegrar
upplausnar gætir,
þegar aðstæður eru
ófyrirsjáanlegar, þá
blasir við mikilvægi
þess að menn hafi föst
mið og óhagganleg
gildi sem reynst hafa
vel. Stjórnarskrá, lög-
um og stjórnmálum er
ætlað að standa vörð
um slík gildi.
Við stöndum nú frammi fyrir því
að síðastnefndir öryggisventlar eru
vanræktir. Gengið er frjálslega um
ákvæði stjórnarskrárinnar, lýðræð-
isrót íslenskra laga trosnar frá ári
til árs og stjórnmálamenn ganga
sífellt lengra í að framselja vald
sitt. Samhliða þessari þróun birtist
ný sviðsmynd við sjóndeildarhring-
inn, þar sem ýmiss konar samtök
og hagsmunahópar takast á um
völd og áhrif. Hér vísa ég til hópa
sem byggðir eru á hagsmunum og
sameiginlegri sjálfsmynd þeirra
sem samsama sig með hópnum.
Þessi þróun er stærsta ógnin við
lýðræðið og verður enn ókræsilegri
þegar baráttan um völdin færist út
fyrir landsteinana og
risahagsmunir taka
sér völd yfir þjóðrík-
inu. Í öllu þessu
leynist þversögn sem
erfitt er að útskýra:
að innanlandsófriður
verður herskárri á
sama tíma og áhrif
innlendra stjórnvalda
og stjórnmálamanna
verða minni.
Með því að færa
borgurunum þau
skilaboð að þau til-
heyri þessum eða hin-
um hagsmunahópnum og verði að
samræma hugsanir sínar hags-
munum hópsins, er einstakling-
urinn gerður að óvirkum áhorfanda
í hinu pólitíska og lýðræðislega
ferli. Í stað rökræðu milli ein-
staklinga umbreytast stjórnmálin í
baráttu mismunandi hagsmuna-
hópa, þar sem einstaklingurinn er í
algjöru aukahlutverki, ef nokkru.
Þrýstihópavæðingin er andstæð
lýðræðinu, enda er hún drifin
áfram af undirliggjandi andúð á
lýðræðinu sem óskilvirku stjórn-
kerfi. Í raun mætti segja að hags-
munahópar hafi nú yfirtekið stjórn-
málin í heild. Þessir hópar klæða
málflutning sinn í búning hlut-
lausrar greiningar og nota fjár-
muni sína og aðgengi að ráða-
mönnum til þess að keyra
hagsmunamál sín í gegnum þær
stofnanir sem lögum samkvæmt er
ætlað að vera „hliðverðir“ sam-
félagsins. Þegar svo er komið ber
enginn í raun ábyrgð lengur. Hlut-
verk einstaklinganna er þá aðeins
að vinna í þágu hagsmunahópsins
(á grunni hjarðhugsunar) og fram-
fylgja skipunum. Í slíku umhverfi
þarf ekki að koma á óvart að ein-
staklingarnir fari að líta á sig sem
fórnarlömb eða kjósi að víkja sér
undan ábyrgð með því að segjast
ekki mega tjá sig, jafnvel ekki um
brýnustu mál, stöðu sinnar vegna.
Frammi fyrir þessu verða menn að
snúa til baka og rækta grunninn ef
lýðræðið á ekki að leysast upp í
sjónhverfingar.
Stjórnskipuninni er ætlað að
standa gegn því að lýðræðið afbak-
ist á framangreindan hátt. Okkur
ber því að vinna gegn því að
þrýstihópar og hagsmunasamtök
komist í þá stöðu að geta kramið
aðra undir skóhæl sínum og svipt
þá borgaralegum réttindum, þ.m.t.
tjáningarfrelsi.
Samkvæmt framansögðu er það
réttur okkar og skylda, sem
frjálsra einstaklinga, að taka
ábyrgð á framtíð okkar og verja
lýðræðislega stjórnarhætti. Tján-
ingarfrelsi og öll önnur mannrétt-
indi byggja á þessum grunni.
Þannig má segja að vestræn
stjórnskipun standi og falli með því
að frelsi borgaranna sé virt. Ofríki
stendur hins vegar gegn frelsi
mannsins, á móti sjálfstæðri hugs-
un. Slíkt stjórnarfar viðurkennir
ekki sjálfsforræði einstaklingsins,
vanvirðir samvisku borgaranna og
gengur á þeim grunni út frá því að
stjórna megi mönnum eins og
skynlausum skepnum, svipta þá
frelsi, neita þeim um réttindi og
mismuna á grundvelli útlits, stéttar
eða stöðu. Lýðræðisleg stjórn-
skipun ver frelsi manna, sbr.
stjórnarskrárákvæði um trúfrelsi,
tjáningarfrelsi, skoðanafrelsi, at-
vinnufrelsi, félagafrelsi o.fl. Harð-
stjórn og ofríki snýst á hinn bóginn
ekki um frelsi heldur um vald yfir
öðrum, t.d. með tjáningarbanni,
fundabanni, skoðanabanni o.fl.
Við þessu þarf að bregðast með
því að vekja fólk til meðvitundar
um ábyrgð sína og skyldur gagn-
vart lýðræðinu, gagnvart jafnvæg-
inu sem fyrr var nefnt. Þessari
ábyrgð sinnum við með því að taka
þátt í lýðræðislegu samtali, hirða
um stoðir lýðræðisins, láta til okk-
ar taka í félagsstarfi, bjóða fram
krafta okkar, kjósa, nota sjálfstæða
hugsun okkar og láta ekki berast
með straumnum.
Ég leyfi mér að birta þessar lín-
ur til að minna á að við berum ekki
fyrst og fremst skyldur gagnvart
„hagsmunahópnum okkar“, heldur
gagnvart samfélaginu öllu. Á þeim
grunni ákvað ég að bjóða mig fram
til setu á löggjafarþingi Íslendinga.
Þetta er borgaralegur réttur minn,
sem ég afsalaði mér ekki með því
að taka við dómarastarfi. Nái ég
kjöri á þing mun ég að sjálfsögðu
láta af dómarastörfum á meðan ég
gegni þingmennsku. Það ber vott
um dómgreindarleysi af hálfu
Fréttablaðsins og annarra að láta
sér detta í hug að menn ætli sér að
fara með löggjafar- og dómsvald á
sama tíma. Ýmsir embættismenn
hafa í gegnum tíðina sest tíma-
bundið á þing án þess að búið hafi
verið til nokkurt fjaðrafok um það.
Eftir Arnar Þór
Jónsson »Nái ég kjöri á Al-
þingi mun ég að
sjálfsögðu láta af dóm-
arastörfum á meðan ég
gegni þingmennsku.
Arnar Þór
Jónsson
Höfundur skipar 5. sætið á framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvestur-
kjördæmi.
Að gefnu tilefni – Innanfélagsreglur hagga
ekki stjórnarskrárbundnum mannréttindum