Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 24

Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 24
24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Langvarandi þurrkar að undan- förnu hafa sett sitt strik í reikn- inginn og dregið mjög úr sprettu. Þurrkakaflinn er orðinn verulega langur, nánast engin úrkoma í margar vikur. Á þetta einkum við um Norðurland og Austurland. Bændur í Eyjafirði hafa flestir lokið fyrri slætti og gekk almennt þokkalega en óvíst er hvenær hægt verður að hefja þann seinni eða hvað næst af heyi úr honum, því háin fer seint af stað í þessum mikla þurrki. Bagalegt ástand Sigurgeir Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, segir að þetta sé bagalegt ástand því nú sé mikil- vægara en oft áður að bændur nái góðum heyfeng. Kal, sem var nokkuð útbreitt í fyrravor, hafði í för með sér að uppskera var minni en áður og við bættist að nú á liðnu vori var áber- andi kalt og gekk því óvenjumikið á birgðir. Sigurgeir segir að marg- ir bændur hefðu verið tæpir. „Þessi þurrkakafli er óvenju- langur, en samt ekki algjört eins- dæmi, við höfum upplifað svipað ástand áður. Þetta er samt orðið gott, en veðurspá gerir ekki ráð fyrir miklum rigningum á næst- unni,“ segir Sigurgeir ennfremur. Ágúst verði vonandi blautari Hann telur útlitið því tvísýnt, en ekki öll von úti enn þó hægt spretti. „Nú gæla bændur við að ágúst verði blautari, sprettutími stendur yfirleitt út ágúst og jafnvel fram í september, svo við vonum að það fari ekki allt á versta veg þótt fátt bendi til þess núna að veruleg um- skipti verði,“ segir Sigurgeir og bætir við: „Það er hætt við að heyfengur verði, þegar upp er staðið, rýrari en oft áður, en við sjáum til hvað gerist í næsta mánuði.“ Langvarandi þurrkar hægja á sprettu - Fyrri slætti í Eyjafirði lokið og gekk almennt ágætlega - Þurrkakaflinn orðinn langur - Talið mik- ilvægt að bændur nái inn góðum heyfeng því margir eru tæpir með birgðir - Ágúst vonandi blautur Morgunblaðið/Margrét Þóra Heyskapur Langvarandi þurrkar gera að verkum að háin sprettur hægt norðan heiða og víða eru tún brunnin. Norðlendingar hafa verið duglegir að mæta í bólusetningu vegna kór- ónuveirufaraldurs, en samkvæmt nýjustu tölum eru tæplega 27 þús- und í fjórðungnum fullbólusettir eða um 76%. Inga Lára Símonardóttir, hjúkr- unarfræðingur hjá Heilbrigðis- stofnun Norðurlands, var á vaktinni á Slökkvistöðinni á Akureyri á þriðjudag, en þá var allra síðasti bólusetningardagur í bili. Hún segir að opið hafi verið skamma stund, í um það bil klukkustund og þeir boð- aðir sem fengu efnið 30. júní eða fyrr og áttu eftir að fá síðari Pfizer- sprautuna. Nú segir hún að við taki sumarleyfi og aftur verði byrjað að bólusetja eftir miðjan ágúst. Vel hefur gengið að bólusetja á Akureyri, bæjarbúar verið duglegir að mæta þegar þeir eru boðaðir í sprautu, en að sögn Ingu Láru eru 16.300 manns fullbólusettir á Akur- eyri. „Þetta verkefni hefur gengið ótrú- lega vel, við höfum átt mjög góða samvinnu með starfsmönnum slökkvistöðvarinnar þar sem bólu- setning fer fram og eins lögreglu, og félagar úr björgunarsveitinni Súlum hafa einnig tekið þátt í þessu. Þeirra þátttaka í verkefninu er ómetanleg,“ segir Inga Lára. Bólusetningar hefjast að sögn Ingu Láru aftur um miðjan ágúst en þá með breyttu sniði sem auglýst verður þegar þar að kemur. Morgunblaðið/Margrét Þóra Akureyri Boðið var upp á bólusetningu í slökkvistöðinni á Akureyri í fyrra- dag. Hlé hefur nú verið gert fram í miðjan ágúst vegna sumarleyfa. Um 76% Norðlend- inga fullbólusett - Síðasta bólusetning fyrir sumarfrí hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Íbúar í grennd við starfsstöðvar fyrirtækisins Vöku við Héðinsgötu 2 kærðu nýverið ákvörðun heilbrigð- iseftirlits Reykjavíkur um að veita Vöku tímabundið starfsleyfi. Málið fór fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála sem féllst á með íbúunum að starfsemin samræmdist ekki aðalskipulagi borgarinnar. Samkvæmt því er aðeins gert ráð fyrir léttum iðnaði en það hugtak er hvergi skilgreint með fullnægjandi hætti. Starfsemi Vöku er af fernum toga. Á Héðinsvegi hefur því farið fram bílapartasala, bifreiða- og véla- verkstæði, hjólbarðaverkstæði og úrvinnsla vegna endurvinnslu bíla, bílapressun. Áður var öll starfsemin háð einu starfsleyfi en nú hefur Vaka ákveðið að sækja um fjögur ný starfsleyfi, eitt fyrir hvern þátt starfseminnar. Samið við aðra aðila Fram að því að tekin verður al- mennilega afstaða til umsóknanna sækist Vaka eftir undanþágu frá ráðherra til að halda starfsemi sinni áfram án starfsleyfis. Heilbrigðis- eftirlitið þarf að skila inn umsögn til ráðherra fyrir vikulok og hefur einnig verið óskað eftir afstöðu skipulagsfulltrúa og byggingarfull- trúa í málinu. Fjórtán manns misstu vinnuna hjá Vöku eftir uppkvaðningu úr- skurðarins og Reynir Þór Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Vöku, segist búinn að semja við aðra aðila að taka á móti bílum meðan Vaka hefur ekki starfsleyfi til þess. Íbúum brá í brún fyrr í vikunni þegar þeir tóku eftir því að vinnu- vélar fyrirtækisins voru í gangi, þrátt fyrir að nýbúið væri að fella úr gildi veitingu starfsleyfis þess. Þeir sendu inn kvörtun til heilbrigðiseft- irlitsins sem mætti í úttekt í gær. Guðjón Ingi Eggertsston heilbrigð- isfulltrúi er ekki tilbúinn að tjá sig um niðurstöðu úttektarinnar að svo stöddu. Reynir bendir á að pressun járns sé ekki starfsleyfisskyld heldur að- eins pressun bíla. Í Vöku fari fram endurvinnsla og járn sé flutt úr landi. „Við getum ekki bara slökkt á þessu,“ segir hann. Guðjón tekur undir að pressun járns sé ekki starfsleyfisskyld ein og sér en það sé þó ekki útilokað í stærra sam- hengi. Íbúar ósáttir Íbúar vilja starfsemina burt og hafa áhyggjur af heilsufarslegum afleiðingum þess að hafa þarna spilliefni og mengun frá bílapress- unni. Reynir segir að mengunin stafi ekki síður frá umferðinni á Sæ- brautinni og að vélin sem knýr áfram pressuna sé af sama meiði og vél í vörubíl. Vaka á lóð í Hafnarfirði og að sögn Reynis er unnið að því að færa starfsemina þangað. Hann segist ekki hafa áhuga á deilum við ná- granna en sér ekki fram á að það verði hægt fyrr en á næsta ári og því hefur Vaka sótt um leyfi út árið 2022. Íbúarnir hafa áhyggjur af því að fyrirtækið ætli sér að brúa bilið með þessum starfsleyfum og svo sitja sem fastast með undanþágum og frestum, þrátt fyrir yfirlýsingar um flutninga. Guðjón segist skilja þessa hræðslu fólksins en ekki geta tekið undir að sú leið sem vísað er til sé greiðfærari en aðrar til að viðhalda starfsemi á svæðinu. Hann bendir á að í hvert skipti sem óskað er eftir framlengingu á leyfinu sé sú ósk tekin til sérstakrar skoðunar. Þegar Vaka hóf starfsemi sína á svæðinu hafði ekki verið fengið starfsleyfi og að sögn íbúa hlaust af starfseminni hljóðmengun, sjón- mengun og loftmengun. Eftir að fyrirtækið fékk svo starfsleyfi fór heilbrigðiseftirlitið í fjölmargar út- tektir og gerði ítrekað athugasemd- ir. Eftir að Reynir tók við sem fram- kvæmdastjóri hefur ýmislegt verið bætt. Pressan var færð inn í húsið, gámar voru fjarlægðir af svæðinu og girðingu komið upp, að ósk eft- irlitsins. Það eimir þó enn eftir af vantrausti íbúa í garð Vöku. Vaka sækir um fjögur starfsleyfi í stað eins - Áform um að færa starfsemina - Vantraust íbúa Morgunblaðið/Eggert Vaka Íbúar óttast að Vaka nýti fresti og undanþágur til að færa sig ekki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.