Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 28

Morgunblaðið - 22.07.2021, Side 28
28 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið and i v e 35% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT Kauptúni 3, Garðabæ | www.fisko.is Opið: Mán.-Fös. 10-19, Laug. 10-18, Sun. 12-18 ..kíktu í heimsókn DENTAL CARE SKIN COMPLEX STRENGTH & VITALITY Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Ríkisstjórn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, samþykkti í gær að- gerðapakka vegna enduruppbygg- ingar í kjölfar mikilla flóða í landinu undanfarna viku. Merkel segir millj- arða evra þurfa í verkið. Aðgerða- pakki stjórnarinnar hljóðar upp á 400 milljónir evra eða um 60 milljarða ís- lenskra króna. Helmingur aðstoðar- innar mun koma frá ríkinu en hinn helmingurinn frá 16 sambandslönd- um Þýskalands. Þá ætla Þjóðverjar einnig að óska eftir fjárhagsaðstoð úr sameiginlegum sjóðum Evrópu- sambandsins til uppbyggingar á flóðasvæðunum. Hið minnsta 170 létust vegna flóð- anna í Þýskalandi og 31 í Belgíu, fjölda er enn saknað. Björgunaraðilar segja ólíklegt að fleiri muni finnast á lífi. Fimm milljarðar í tryggingatjón „Við munum sjá til þess að líf fólks komist aftur í eðlilegt horf,“ sagði Olaf Scholz, fjármálaráðherra Þýska- lands, á blaðamannafundi og bætti við að ráðist yrði í vinnu á sterkum upp- byggingaráætlunum til þess að hreinsa eyðilegginguna sem flóðin skildu eftir sig. „Við munum endur- byggja fyrirtæki, verksmiðjur og húsnæði,“ sagði Scholz. Fjölmörg íbúðarhús bárust með flóðunum og enn fleiri hrundu. Þá flæddi yfir götur og samgöngur lok- uðust af. Vatnslagnir, rafmagns- og símalínur eyðilögðust ásamt brúm og járnbrautum. Áætlað er að tjón af völdum flóðanna muni kosta trygg- ingarfyrirtæki að minnsta kosti um fimm milljarða evra eða um 740 millj- arða íslenskra króna. Ekki til orð yfir eyðilegginguna Angela Merkel heimsótti svæðin sem hafa orðið illa úti í flóðunum fyrr í vikunni og sagðist vera skelfingu lostin. Hún skoðaði ónýtar byggingar og aðra innviði ásamt því að hlýða á frásagnir björgunaraðila og íbúa sem höfðu misst heimili sín. Merkel sagði ástandið svo óhugnanlegt að þýska tungumálið ætti ekki orð yfir eyði- legginguna. Hún sagði hamfarirnar þær verstu sem hefðu hent svæðið í sjö hundruð ár og lofaði að þingið í Berlín myndi bregðast bæði við lang- tíma- og skammtímaáhrifum flóð- anna. „Ég vona að þetta verði ein- ungis spurning um nokkra daga til þess að hjálpa þeim sem eiga ekkert nema fötin sem þau ganga í,“ sagði Merkel. Veðuröfgar sem valdið hafa flóðun- um hafa fært loftslagsáhrif ofar á lista stjórnmálamanna fyrir komandi kosningar í Þýskalandi. Frank Walt- er Steinmeier, forseti landsins, sagði að landið gæti „aðeins dregið úr öfga- fullu veðri ef við tökum þátt af fullum krafti í baráttunni gegn loftslags- áhrifum“. Þjóðarsorg í Belgíu Ríkisstjórn Belgíu hefur einnig heitið fjárhagsaðstoð upp á tvo millj- arða evra eða um 295 milljarða ís- lenskra króna. Þjóðarsorg var lýst yfir í landinu í fyrradag. Sírenur hljómuðu á slökkvistöðum um allt land á hádegi eftir einnar mínútu þögn. Þá komu konungshjónin Filipp- us og Matthildur saman ásamt ráð- herrum ríkisstjórnarinnar og emb- ættismönnum á slökkvistöð í bænum Verviers til þess að taka þátt í minn- ingarstund. Bærinn fór afar illa út úr hamförunum. Flóðin höfðu áhrif á fleiri svæði í Vestur-Evrópu svo sem í Hollandi og Lúxemborg. Milljarðar í upp- byggingu eftir flóðin - Samþykktu aðgerðapakka upp á 400 milljónir evra AFP Fjárhagsaðstoð Angela Merkel kanslari hefur heitið 400 milljónum evra í fyrsta aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar til enduruppbyggingar. Eyðilegging Fjölmörg íbúðarhús bárust með flóðunum og enn fleiri hrundu. Þá flæddi yfir götur og samgöngur lokuðust af. Gestir kvikmyndahúsa, safna og íþróttaleikvanga í Frakklandi, sem eru 18 ára og eldri, þurfa nú að sýna fram á bólusetningarvottorð eða nei- kvætt Covid-19-próf til þess að fá að- gang. Svonefndur „heilsupassi“ er nú skylda á alla viðburði og staði þar sem fleiri en 50 eru samankomnir. Samkomustaðir sem brjóta regl- urnar gætu átt yfir höfði sér 1.500 evra sekt eða um 220 þúsund ís- lenskra króna. Franska þingið mun kjósa um hvort reglurnar eigi einnig að gilda á veitingastöðum, kaffi- húsum, verslunarmiðstöðvum, í lest- um og flugvélum. Stödd í fjórðu bylgjunni Reglurnar voru settar í kjölfar fjölgunar smita í Frakklandi vegna Delta-afbrigðisins. Smitum hefur fjölgað um 150% síðustu vikuna í Frakklandi. Nýju reglurnar hafa þó hlotið mikla gagnrýni. Jean Castex forsætisráðherra hefur bent á að 96% af þeim 18 þúsund smitum sem greinast nú daglega séu einstakl- ingar sem hafa ekkert mótefni. „Við erum stödd í fjórðu bylgju faraldurs- ins,“ sagði Castex í viðtali og bætti við að markmið heilsupassans væri að koma í veg fyrir útgöngubann á landsvísu en þau hafa nú þegar verið þrjú. Macron með einræðistilburði Tugþúsundir efasemdamanna um bólusetningar mótmæltu aðgerð- unum og sökuðu Emmanuel Macron forseta um einræðistilburði varðandi bóluefni. Lögreglan hefur meðal annars þurft að beita táragasi á mót- mælendur. Þá hafa þingmenn í stjórnmálaflokki Macrons einnig gagnrýnt passann en þeir telja hann vera ógn við borgaralegt frelsi. Frá og með september verður heilbrigðisstarfsmönnum í Frakk- landi skylt að fara í bólusetningu en margir þeirra hafa ekki þegið bólu- setningu. Efasemdir um ágæti bólu- setninga hafa verið hvað mestar í Frakklandi af öllum Evrópuþjóðum síðan faraldurinn blossaði upp. Í skoðanakönnun sem gerð var í des- ember í fyrra kom fram að 42% Frakka höfðu hug á að láta bólusetja sig. Það hlutfall var komið upp í 70% nú í apríl. Um það bil 56% Frakka hafa nú fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni og eru 46% full- bólusett. AFP Mótmæli Tugþúsundir efasemdamanna um bólusetningar mótmæla að- gerðunum og saka Macron um einræðistilburði varðandi bóluefni. Skiptar skoðanir á heilsupassa - Fjórða bylgjan herjar á Frakkland

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.