Morgunblaðið - 22.07.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 22.07.2021, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Tímapantanir í síma 533 1320 Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking. HÚÐÞÉTTING • Lyftir og þéttir slappa húð • Vinnur á appelsínuhúð • Öflug lausn við húðslitum • Örvar sogæðaflæði • Gefur unglegra og ferskara útlit FITUEYÐING • Eyðir fitu á erfiðum svæðum • Er sársaukalausmeðferð • Er byggð á nýjustu tækni til að eyða fitu • Er áhrifaríkmeðferð • Er öruggmeðferð Frábær TILBOÐ hjá TILBOÐ 30% afsláttur síðasti sjens Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Þegar Júlía bjó á Ítalíu þræddi hún alla fatamarkaði sem hún fann, enda í mekku tískunnar, og fann þar marga dýrmæta gripi. Júlía setur sér engar reglur þegar kemur að því að velja saman föt og stíll hennar er mjög frjálslegur. „Ég fæ innblástur frá stórum karakter- um og persónuleikum sem eru óhrædd við að klæðast einhverju öðruvísi og hugsa út fyrir kassann. Tónlistarmenn og listamenn eru þeir karakterar sem ég fylgist með þegar kemur að stíl því mér finnst þau mest skapandi í klæðaburði og óhrædd við að prófa eitthvað nýtt. Mér finnst það viðhorf vera mik- ilvægt til að þróa minn eigin per- sónulega stíl og ég vil helst klæða mig eins og rokkstjarna,“ segir Júl- ía. Hún segist vera mjög heppin með það að hafa gott sjálfsöryggi og klæðist því hverju sem hana langar til klæðast. Það sem hún fílar mest eru litríkar flíkur. „Ég elska að finna eitthvað öðru- vísi og litríkt eða með fallegri áferð, ég lærði um tísku í námi á Ítalíu og er því með gott auga fyrir fallegum eða sjaldgæfum flíkum. Þau ár sem ég bjó úti þræddi ég alls konar fata- markaði, þar sem Ítalía er klárlega mekka tískunnar, og var ég svo heppin að fá að sjá með eigin auga alls konar flíkur og fell ég því helst fyrir sjaldgæfri og fallegri hönnun,“ segir Júlía. Sneri baki við tískustraumunum Hún segir tískustraumana ekki vera fyrir sig en hefur mikinn áhuga á að fylgjast með straumum og stefnum tískunnar. „Mér finnst mjög mikilvægt fyrir sjálfa mig að snúa baki við tísku- straumum og fylgja frekar mínu eig- in innsæi í klæðaburði. Þar sem ég hef mikinn áhuga á tísku og stíl er auðvelt fyrir mig að þróa eigin per- sónulega stíl burtséð frá tísku- straumum og þar af leiðandi verður stíllinn minn klassískari og tímalaus- ari, sem er að miklu leyti mjög sjálf- bært viðhorf,“ segir Júlía. Dagsdaglega klæðir hún sig yfir- leitt í litrík föt og er með mikið af skarti. Það getur þó farið eftir í hvaða skapi hún er hvern daginn. Þegar hún fer eitthvað fínt er hún hrifin af því að klæðast kjólum og fallegum hælum eða stígvélum við. Það er þó aldrei langt í pönkarann og á hún það til að pönka upp fötin. Aðspurð hver séu verstu fata- kaupin segir Júlía þau líklegast vera þegar hún hefur keypt sér eitthvað til að reyna að falla betur í hópinn. „Ég er alveg sek um það að hafa keypt eitthvað bara af því allir aðrir ættu það,“ segir Júlía. Bestu fata- kaupin eru hins vegar allar þær flík- ur sem hún fann á mörkuðum eða í búðum á Ítalíu. „Það eru flíkur sem ég mun geyma að eilífu.“ Fataskápurinn eins og skjalasafn Júlía segist vera mikill safnari og að í fataskápnum hljóti eflaust að leynast einhver tískuslys. Henni finnst þó mikilvægt að varðveita þessi mögulegu slys, enda engu hent úr góðu skjalasafni sem er í senn góð tískuskrásetning. Þegar Júlía er spurð hvort það sé eitthvað sem hún myndi aldrei klæð- ast segir hún að það sé verulega fátt. Það væri hins vegar mjög sjaldgæft að sjá hana í svörtu frá toppi til táar. Hvar kaupir þú helst föt, skó og fylgihluti? „Hér á Íslandi kaupi ég helst fötin mín, skart og skó í Fatamarkaðnum við Hlemm, Spúútnik, nytjamörk- uðum, loppubúðum og Rauða kross- inum.“ Áttu þér uppáhaldsmerki? „Ég hef mjög gaman af því að fylgjast með ungum fatahönnuðum í London t.d. og tískuhúsunum á Ítal- íu. En uppáhaldsmerkin mín eru klárlega Comme Des Garcon, Mar- giela og Rick Owens. Ég hef fylgst með þeim hönnuðum síðan ég byrj- aði að hafa áhuga á tísku því þau eru framúrstefnuleg og hafa stigið risa- stórt fótspor í tískumenninguna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Júlía klæðir sig eins og rokkstjarna Júlía Grönvaldt Björnsdóttir er óhrædd við að blanda saman ólíkum mynstrum, flíkum og efnum þegar kemur að fatavali. Hún lærði fashion communication í listaháskóla í Flórens á Ítalíu en í dag vinnur hún hjá Hildi Yeoman og starfar sem stílisti samhliða því. Blátt Kjólinn fékk hún í Extralopp- unni og kápuna í Zöru á Ítalíu. Notað Jakkinn er úr fatamark- aðnum við Hlemm en sólgler- augun frá Gianni Versace. Flórens Mikið af fötunum sem Júlía á kemur af fatamörk- uðum í Flórens á Ítalíu. Tískuspekingur Júlía Grönvaldt Bjarnadóttir leyf- ir tískustraumum ekki að stýra för.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.