Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 36
Heppin Ellen Magnúsdóttir var vinn-
ingshafi í K100-leik og vann glænýtt
svefnherbergi en hún sagði vinning-
inn hafa komið á hárréttum tíma.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Ellen Magnúsdóttir, líffræðikennari í
MR, segist njóta þess að sofa í glæ-
nýju svefnherbergi sem hún vann í
leik á K100 á dögunum. Í umsókn
sinni í leiknum sagði hún að tími væri
kominn á að taka herbergið í gegn en
hún kveðst ekki hafa haft tíma til að
gera herbergið upp síðan hún flutti
inn fyrir rúmum tveimur árum. Er
breytingin á herberginu gríðarleg og
augljóst hvað það gerir oft mikið að
breyta til og þora að prófa nýja lita-
pallettu.
800 þúsund krónur
Virði vinningsins var um 800 þús-
und krónur og inni í því var nýtt
heilsurúm, rúmgafl, náttborð og
gluggatjöld frá Vogue auk þess sem
málari frá Flügger mætti í heimsókn
og málaði herbergið í lit að vali vinn-
ingshafa.
„Þetta gekk rosalega vel. Ótrúlega
góð þjónusta. Þeir hjá Vogue komu
með dótið og settu upp allt sem
þurfti að gera. Þannig að ég þurfti
ekki að lyfta fingri,“ segir Ellen í
samtali við K100.is og Morgunblaðið.
Segist hún einnig hafa fengið frá-
bæra þjónustu í Flügger þar sem
hún fékk að velja nokkrar prufur af
litum.
„Svo valdi ég lit sem var ekki alveg
það sem ég hafði áður í huga, en ég
er svo rosalega ánægð með hann,“
segir Ellen sem valdi fallegan stein-
grábláan lit fyrir herbergið.
„Hann passar mjög vel við rúmið
sem er kóngablátt og rúmgaflinn við
alveg smellpassar,“ segir hún en Ell-
en valdi sér einnig litinn á rúmgafl-
inn sjálf.
Blái liturinn heillaði
„Þessi blái litur greip mig eigin-
lega bara strax,“ segir Ellen sem
segist sofa afar vel í nýja heilsurúm-
inu.
„Maður er eiginlega orðinn of góðu
vanur þegar maður ferðast og þarf
að sofa í rúmi á einhverjum hostelum
eða hótelum,“ segir Ellen kímin en
rúmið sem hún vann í leiknum er úr
nýju heilsurúmalínunni DÍS sem er
íslensk framleiðsla.
Segist hún enn nánast ekki trúa
því að hún hafi unnið í leiknum.
„En þetta kom akkúrat á réttum
tíma. Ég ætlaði að fara að mála í
sumar en ég hugsaði bara: Æ, ég
nenni því ekki. Það borgaði sig svo
bara fyrir mig þegar ég flutti inn að
bíða aðeins með þetta,“ segir Ellen.
Sefur vel eftir að hafa unnið vinninginn
Ellen Magnúsdóttir,
líffræðikennari í MR,
hafði heppnina svo
sannarlega með sér en
hún vann glænýtt
svefnherbergi í leik á
K100. Herbergið er nú
tilbúið og gjörbreytt en
Ellen segist sofa afar
vel í nýja herberginu.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Fallegt Blái liturinn frá Flügger fer veggjunum í
herberginu einstaklega vel en Ellen skreytti vegg-
ina með fallegum og persónulegum skrautmunum.
Eftir Hér má sjá herbergið
eftir að það var allt tekið í
gegn og innréttað.
Fyrir Hér má sjá hvernig
herbergið leit út áður en það
var tekið í gegn.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
DAÐI/DÖGG
Regnjakkar
kr. 11.990.-
KRINGLAN · LAUGAVEGUR 91 · SMÁRALIND