Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 54

Morgunblaðið - 22.07.2021, Page 54
NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Milwaukee Bucks vann loks sinn annan meistaratitil eftir fimmtíu ára bið með sigri á Phoenix Suns, 105:98, í sjötta leik úrslitarimmu NBA- deildarinnar í körfuknattleik í Mil- waukee. Bucks vann þar með einvíg- ið 4:2 eftir að hafa tapað tveimur fyrstu leikjunum. Lykillinn að sigri Milwaukee var stórleikur Giannis Antetokounmpo, sem skoraði fimmtíu stig, tók fjórtán fráköst og varði fimm skot. Hann var allt í öllu í báðum vítateigum. Í vörn neyddi hann leikmenn Phoenix í hví- vetna til að breyta skotum sínum með atorku sinni, og í sókninni hrein- lega bar hann liðið á sínum herðum, en aðrir leikmenn Bucks áttu erfitt með að komast í gang. Geysileg spenna Ég hef verið svo heppinn að geta fylgst með fjöldanum af rimmum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar hér í Los Angeles síðan Staples Center var tekið í notkun fyrir tveimur ára- tugum og eitt af því sem ég hef tekið eftir er að þegar þessar rimmur fara í sjötta og sjöunda leik, eykst spenn- an í andrúmsloftinu – bæði utan og innan hallarinnar – og pressan á leik- menn eykst að sama skapi. Svo var einnig augljóst í þessum lokaúrslitum. Bæði lið komu inn í þennan leik með miklar væntingar á bakinu, sérstaklega heimaliðið, en áhangendur Bucks höfðu beðið hálfa öld eftir að vinna titilinn að nýju. Þetta sást á fyrstu mínútum leiks- ins, sem einkenndust af mistökum og stressi. Phoenix hafði fimm stiga for- ystu í hálfleik og virtist Suns vera hægt og sígandi að ná yfirhöndinni í leiknum, en í þriðja leikhlutanum fór Antetokounmpo hamförum. Hann skoraði tuttugu stig og gerði heima- mönnum kleift að ná forystunni að nýju. Þegar ein mínúta var eftir hafði Bucks aðeins fjögurra stig forskot, en Khris Middleton skoraði þá mik- ilvæga körfu sem gerði út um leikinn, því eftir það var öll pressan á gest- unum. Á lokasekúndunum voru úr- slitin ráðin. Þrautseigan þarf til Í gegnum árin hef ég oft bent á í þessum pistlum að þegar litið er á sögu úrslitakeppninnar í NBA, er sú saga einkennd af liðum sem þurft hafa að reyna erfið töp – stundum ár eftir ár (Lakers á sjöunda áratugn- um, Detroit á níunda, Chicago á tí- unda, Cleveland á undanförnum ár- um) – áður en meistaratitillinn næst. Sum lið berjast árum saman án þess að vinna svo mikið sem einn titil (Utah, Indiana, New Jersey Nets). Undanfarin þrjú ár hefur það verið lið Milwaukee Bucks sem hefur mátt reyna þetta. Bucks hefur verið á eða nálægt toppnum í Austurdeildinni eftir að Antetokounmpo varð toppleikmaður, en einhvern veginn brotnaði þá allt niður hjá liðinu og leikmenn og þjálf- arar klúðruðu öllum væntingum sem til liðsins voru gerðar. Eina liðið und- anfarna tvo áratugi sem ekki hefur þurft að eiga við þetta var Boston 2008 þegar Celtics náði í Kevin Gar- nett og Ray Allen til að hjálpa Paul Pierce vinna sautjánda titil Celtics. Lengi vel leit út fyrir að næsta liðið til að endurtaka afrek Celtics yrði Phoenix Suns í þessari úrslitakeppni. Liðið rúllaði án mikilla erfiðleika í gegnum þrjár umferðir í Vest- urdeildinni og eftir sigur í fyrstu tveimur leikjunum leit allt út fyrir að ekkert gæti stöðvað Chris Paul og Devin Booker í að innbyrða fyrsta titil Suns, þrátt fyrir ungan og óreyndan liðshóp. Leikur Suns ein- kenndist af því að liðið gerði fá mis- tök og tapaði einungis leikjum þar sem mótherjinn lék mjög vel. Þetta var algjör mótsögn við reynslu Milwaukee. Það sem gerðist næst kom flestum á óvart. Milwaukee vann tvo erfiða leiki á heimavelli og fór síðan til Phoenix í fimmta leik og hrifsaði sig- ur þar. Sá sigur lagði grunninn að sigri í síðasta leiknum og Milwaukee átti titilinn á endanum skilið. Skemmtilegri úrslitarimmu lauk við mikinn fögnuð 20 þúsund áhorf- enda í heimahöll Bucks og um 60 þús- und stuðningsfólks liðsins á torginu við höllina. Milwaukee er þekkt sem bjórborg Bandaríkjanna, og sá vökvi hefur eflaust flotið vel á þeim bænum það sem eftir lifði kvöldsins og lengi um nóttina. gval@mbl.is Fimmtíu ára bið á enda - Giannis Antetokounmpo bar lið Milwaukee Bucks á herðum sér og skoraði 50 stig í sjötta úrslitaleiknum gegn Phoenix - Gríðarlegur fögnuður í borginni AFP Bestur Giannis Antetokounmpo var útnefndur besti leikmaður úrslitakeppninnar eftir sigur Milwaukee Bucks á Phoenix Suns í sjötta úrslitaleiknum um NBA-meistaratitilinn í fyrrinótt þar sem hann skoraði 50 stig. 54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Lengjudeild kvenna Grótta – FH .............................................. 1:5 Augnablik – ÍA ......................................... 4:2 Afturelding – Víkingur R ........................ 4:0 Haukar – Grindavík ................................. 3:2 KR – HK.................................................... 4:1 Staðan: KR 11 9 1 1 32:14 28 FH 11 7 2 2 25:10 23 Afturelding 11 6 4 1 27:11 22 Haukar 11 4 3 4 17:17 15 Víkingur R. 11 3 4 4 18:22 13 Grótta 11 4 1 6 16:23 13 ÍA 11 3 1 7 11:26 10 HK 10 2 3 5 14:24 9 Augnablik 10 2 2 6 16:22 8 Grindavík 11 1 5 5 14:21 8 3. deild karla Sindri – Höttur/Huginn ........................... 0:1 Staðan: Höttur/Huginn 13 9 2 2 20:13 29 KFG 12 6 4 2 19:15 22 Elliði 12 7 0 5 28:17 21 Augnablik 12 6 3 3 27:18 21 Ægir 12 5 5 2 18:12 20 Sindri 13 5 3 5 24:20 18 Dalvík/Reynir 12 5 2 5 23:17 17 Víðir 12 3 4 5 18:22 13 KFS 12 4 1 7 16:28 13 ÍH 12 2 5 5 17:28 11 Tindastóll 12 2 4 6 22:25 10 Einherji 12 2 1 9 15:32 7 Meistaradeild karla 2. umferð, fyrri leikir: Olympiacos – Neftchi Bakú.................... 1:0 - Ögmundur Kristinsson var allan tímann á bekknum hjá Olympiacos. Kairat Almaty – Rauða stjarnan ............ 2:1 Malmö – HJK Helsinki ............................ 2:1 Mura – Ludogorets .................................. 0:0 Slovan Bratislava – Young Boys............. 0:0 Legia Varsjá – Flora Tallinn................... 2:1 PSV Eindhoven – Galatasaray................ 5:1 Sambandsdeild karla 2. umferð, fyrri leikur: Cukaricki Belgrad – Sumqayit ............... 0:0 Ólympíuleikarnir Konur, E-riðill: Bretland – Síle .......................................... 2:0 Japan – Kanada ........................................ 1:1 Konur, F-riðill: Kína – Brasilía .......................................... 0:5 Sambía – Holland ................................... 3:10 Konur, G-riðill: Svíþjóð – Bandaríkin................................ 3:0 Ástralía – Nýja-Sjáland........................... 2:1 Noregur Sandefjord – Haugesund........................ 1:1 - Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Sandefjord. Sarpsborg – Mjöndalen........................... 1:1 - Emil Pálsson kom inn á sem varamaður á 80. mínútu hjá Sarpsborg. Strömsgodset – Odd................................ 3:0 - Ari Leifsson lék allan leikinn með Strömsgodset, Valdimar Þór Ingimundar- son var allan tímann á bekknum. Staðan: Molde 14 9 3 2 34:13 30 Bodø/Glimt 14 7 4 3 29:15 25 Kristiansund 13 7 2 4 13:12 23 Rosenborg 14 6 4 4 26:19 22 Vålerenga 14 5 6 3 25:20 21 Lillestrøm 12 6 3 3 18:16 21 Haugesund 12 5 4 3 16:11 19 Strømsgodset 13 5 4 4 20:21 19 Odd 13 5 4 4 18:21 19 Viking 13 5 3 5 24:27 18 Sandefjord 12 5 1 6 15:19 16 Sarpsborg 13 3 5 5 11:17 14 Mjøndalen 12 2 6 4 14:13 12 Tromsø 13 2 4 7 12:24 10 Brann 14 1 4 9 13:27 7 Stabæk 12 1 3 8 14:27 6 B-deild: HamKam – Aalesund .............................. 2:3 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund. 0-'**5746-' Íslenska karla- landsliðið í körfubolta skip- að leikmönnum 20 ára og yngri vann sterkan 85:71-sigur á Eistlandi á Norð- urlandamótinu í Tallinn í gær. Sigurinn var sá fyrsti hjá liðinu á mótinu. Styrmir Snær Þrastarson var stigahæstur í íslenska liðinu með 25 stig. Kvennalandsliðið í sama aldurs- flokki mátti hins vegar þola 66:77- tap fyrir Finnlandi í sínum fyrsta leik, en þar er leikið í Stokkhólmi. Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 21 stig fyrir Ísland. Fyrsti sigur- inn í Tallinn Styrmir Snær Þrastarson Breiðablik, Valur og FH verða öll í eldlínunni í 2. umferð í Sambands- deild Evrópu í fótbolta í kvöld. Val- ur og FH fá norsku liðin Bodö/ Glimt og Rosenborg í heimsókn og Breiðablik leikur við austurríska liðið Austria Vín á útivelli. Um fyrri leiki einvíganna er að ræða. Breiða- blik vann Racing Union frá Lúxem- borg í 1. umferð og FH hafði betur gegn Sligo Rovers frá Írlandi. Val- ur tapaði fyrir Dinamo Zagreb frá Króatíu í 1. umferð Meistaradeild- arinnar og féll því niður í Sam- bandsdeildina. Þrjú íslensk í Evrópukeppni Morgunblaðið/Eggert Evrópukeppni FH og Valur leika við norska andstæðinga í kvöld. Handknattleiksdeild Kríu er hætt við þátttöku í efstu deild karla og mun ekki senda lið til keppni á næsta tímabili. Kría vann sér sæti í efstu deild með sigri á Víkingi í um- spili á síðustu leiktíð. Víkingi verð- ur boðið sætið í stað Kríu. Hand- bolti.is greinir frá. Að sögn vefmiðilsins hafa forráðamenn Kríu þegar tjáð HSÍ að félagið muni ekki senda lið til keppni í úrvals- deildinni. Þá hafa Víkingar ekki tekið ákvörðun um að þiggja sætið í deild þeirra bestu. Hafni Víkingur sætinu er Þór varalið tvö. Kría sendir ekki lið til leiks Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Úrvalsdeild Víkingur gæti tekið sæti Kríu í efstu deild karla. Heiðdís Lillýjardóttir, miðvörður Íslandsmeistara Breiðabliks, var besti leikmaðurinn í elleftu umferð úrvalsdeildar kvenna í fótbolta sem leikin var í fyrrakvöld, að mati Morgunblaðsins. Heiðdís skoraði tvö af fyrstu þremur mörkum Breiðabliks í 7:2 sigri á ÍBV á Kópavogsvelli og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína. Heiðdís er í fyrsta sinn í liði umferðarinnar á þessu keppnistímabili, eins og fjórir aðrir leikmenn. Hinir sex leikmennirnir hafa verið valdir áður og Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir úr Breiðabliki oftast þeirra en hún er í liði umferðarinnar í sjötta skipti á þessu ári. vs@mbl.is 11. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 5-3-2 Anna María Baldursdóttir Stjarnan Heiðdís Lillýjardóttir Breiðablik Arna Dís Arnþórsdóttir Stjarnan Amber Michel Tindastóll Arna Sif Ásgrímsdóttir Þór/KA Barbára Sól Gísladóttir Selfoss Laura-Roxana Rus Tindastóll Ída Marín Hermannsdóttir Valur Lára Kristín Pedersen Valur Hildur Antonsdóttir Breiðablik Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir Breiðablik 6 4 4 2 2 4 Heiðdís best í 11. umferðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.