Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 55
ÓLYMPÍULEIKAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Sundkappinn Anton Sveinn McKee mun í ár taka þátt á sínum þriðju Ól- ympíuleikum þegar hann keppir í 200 metra bringusundi á leikunum í Tókýó í Japan. Hann tók einnig þátt á leikunum í London árið 2012 og í Ríó de Janeiro í Brasilíu árið 2016. Hann segist afar spenntur fyrir því að taka þátt og hafi aldrei verið jafn reiðubúinn til þess að keppa, en Anton keppir í undanrásum á þriðju- daginn og síðan í undanúrslitum á miðvikudag ef hann kemst áfram. „Þetta er alltaf jafn skemmtilegt. Þetta er bara Disneyland fyrir íþróttafólk. Því oftar sem maður fer á leikana því meiri reynslu tekur maður með sér og ég hef aldrei verið jafn tilbúinn í þá. Þetta verður fáránlega skemmtilegt held ég,“ sagði Anton við Morgunblaðið. Þátttaka hans á leikunum í þetta skiptið átti sér öllu lengri aðdrag- anda en gengur og gerist. „Ég út- skrifaðist úr háskóla í Bandaríkj- unum árið 2017 og tók þá ákvörðun um að hætta og fara að gera eitthvað annað, sjá hvað væri í boði fyrir mig í lífinu. Ég fór þá að vinna í Banda- ríkjunum, við ráðgjöf hjá Ernst & Young, og sinnti því einvörðungu í nokkra mánuði. Stuttu seinna, í lok 2017, byrjaði ég aðeins að dútla aftur í sundi bara upp á gamanið. Ég fór þá að hafa aðeins meiri ánægju af því. Ég hafði áður alltaf verið að keppa fyrir einhver lið og það var alltaf ákveðin pressa sem fylgdi því. Mér þótti gaman að bæði vinna og synda, gerði það í um það bil tvö ár og tókst einhvern veginn að bæta mig þrátt fyrir að minnka við mig þegar kom að æfingum. Það var ekki hægt að leggja mikla áherslu á að synda því ég var að vinna svo rosalega mikið. En mér tókst að ná lágmarkinu í 200 metra bringusundi árið 2019 á heimsmeist- aramótinu í Gwangju [í Suður- Kóreu],“ útskýrði Anton. Hætti í vinnunni Þegar hann náði ólympíu- lágmarkinu í Gwangju urðu ákveðin vatnaskil á ferli hans. „Eftir það varð ekki aftur snúið og ég lagði fulla áherslu á að synda. Ég fór þá í leyfi frá vinnunni og svo kom Covid og þá var leikunum seinkað. Þegar ég gat ekki fengið lengra leyfi í vinnunni tók ég ákvörðun um að hætta í henni árið 2019 og halda áfram í sundinu, og nú er ég kominn hingað. Það er svolítið fyndið að segja frá því en ég er kannski einn af þeim fáu sem græddu eitthvað á því að fá þennan aukatíma. Ég fékk þá eitt aukaár í að æfa og undirbúa mig lík- amlega og andlega fyrir stóra sviðið hérna. Þetta var gott tækifæri fyrir mig og ég keppti til dæmis í ISL at- vinnumannadeildinni árið 2020,“ sagði Anton, en þar er hann á mála hjá kanadíska liðinu Toronto Titans sem keppir í alþjóðlegri sunddeild. Föðurmissirinn erfiður Spurður um hvernig undirbúningi hans hafi verið háttað fyrir leikana sagði Anton: „Í nóvember 2020 þeg- ar ég kom úr atvinnumannadeildinni tók ég almennilega hvíld til þess að hámarka árangur, því ég gat ekki mikið hvílt annars. Síðan þá hefur verið stór uppbyggingarhringur í gangi. Við ætluðum að reyna að ná inn í 100 metra bringusundi líka, það var í mars á þessu ári sem við ætl- uðum að gera það, en ég var ekki al- veg tilbúinn. Ég fór í gegnum mjög erfitt tíma- bil í byrjun árs þegar ég missti pabba minn, maður var ekki beint gíraður. Þá var bara aðeins hliðrað til og einblínt ennþá meira á 200 metrana. Núna er ég að fullhvíla til þess að reyna að ná fram hámarks- árangri.“ Snúið að meta möguleikana Hann sagðist ekki geta metið það nákvæmlega hvernig möguleikar hans á leikunum litu út, en að það breytti því ekki að hann væri með háleit markmið. „Ég held ég geti ekki sagt til um hvaða möguleika ég hef á neinu, en ég fer á leikana með gífurlega háleit markmið og þau eiga að geta fleytt mér langt. Ég ætla bara að taka eitt sund í einu til að há- marka árangur minn í hverju ein- asta sundi. Maður er með svona grunn, hátt sett og draumamarkmið, þetta er þrepaskipt. Grunnmarkmiðið mitt, lága, er að fara á 2:07.00 mínútum, hátt markmið er að fara á 2:06.50 mínútum og draumamarkmiðið er að fara á undir 2:06.00 mínútum. Þarna sé ég sjálfan mig og þetta er það sem ég vil gera.“ Besti árangur Antons í 200 metra bringsundi í 50 metra laug líkt og þeirri sem keppt er í á Ólympíu- leikunum er 2:10.21 mínúta, sem er Íslandsmet sem hann setti árið 2015. Miklar væntingar „Þegar maður fer á svona stórmót getur maður sagt: „Ég ætla að gera hitt og ég ætla að gera þetta.“ Þú ert farinn að miða þig við einhverja aðra þegar þú ert farinn að hugsa hvaða möguleika þú átt á að ná einhverju ákveðnu sæti o.s.frv. Þetta fer allt líka eftir því hvernig hinum gengur. Allir keppendurnir eru með ein- hver háleit markmið. Það sem mað- ur getur gert og þarf að einblína á er maður sjálfur og markmið manns sjálfs. Mín markmið eru að ná risa- vaxinni bætingu í 200 metrunum. Það er þannig sem við hugsum þetta og förum inn í þetta. Svo mun minn persónulegi árangur leiða í ljós hvar ég enda. Ég hef aldrei verið jafn vel undir- búinn fyrir neina leika og ekki neitt mót yfirhöfuð. Allur fókusinn er á 200 metrana og ég hef aldrei æft jafn vel á ævi minni. Ég hef aldrei verið í betra líkamlegu formi. Vænt- ingarnar sem ég hef til sjálfs mín eru mjög miklar,“ bætti Anton við. Frá því að hann hætti hjá Ernst & Young hefur Anton verið atvinnu- maður í sundi, sem þýðir einfaldlega að hann vinnur við það sem honum þykir skemmtilegast að gera. „Já, ég er bara kominn af fullum krafti í þetta, það er ekkert annað í boði. Það skemmtilegasta sem ég geri er að synda og það er ótrúlega gaman að fá að keppa fyrir Íslands hönd. Það er bara allsherjar heiður og ég mun halda áfram að gera það. Ég fer svo aftur í ISL atvinnumanna- deildina eftir leikana. Ég mun halda áfram að synda að, minnsta kosti fram að París, þannig að þetta verða vonandi ekki mínir síðustu leikar,“ sagði Anton að lokum við Morgun- blaðið og vísaði til næstu Ólympíu- leika sem fara fram í París 2024. Aldrei jafn vel undirbúinn - Anton Sveinn McKee fer á sína þriðju Ólympíuleika - Grunnmarkmið og draumamarkmið liggja fyrir - Græddi á því að leikunum var frestað um ár Morgunblaðið/Eggert Tókýó Anton Sveinn McKee keppir í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum og undanrásirnar eru á dagskrá hjá honum á þriðjudaginn kemur. Þetta eru þriðju leikarnir hjá Antoni sem keppti bæði í London og í Ríó. ÍÞRÓTTIR 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 2021 Eins merkilegt og það kann að virðast hafa norsk lið verið einhverjir erfiðustu andstæð- ingar íslenskra liða þegar kemur að Evrópumótunum í fótbolta. Ellefu sinnum hafa félagslið þjóðanna í karlaflokki dregist saman í Evrópumótunum á und- anförnum 56 árum og í ellefu skipti hafa Norðmenn haft betur. Nú bregður svo við að tvö af bestu liðum Noregs leika hér á landi í kvöld þegar meistaralið Bodö/Glimt mætir Íslandsmeist- urum Vals á Hlíðarenda og gamla Þrándheimsstórveldið Rosen- borg á í höggi við FH-inga í Kaplakrika. Flest norsk lið eru með ís- lenska leikmenn innanborðs og með Bodö/Glimt leikur Alfons Sampsted en með Rosenborg leikur Hólmar Örn Eyjólfsson og það gerir viðureignirnar enn áhugaverðari. Rosenborg er reyndar eina norska liðið sem hefur tapað fyr- ir íslenskum andstæðingum, og gert það tvisvar. Breiðablik vann Rosenborg 2:0 árið 2013 en það dugði skammt eftir 5:0-tap Blika í fyrri leiknum. Valsmenn unnu Rosenborg 1:0 árið 2018 og féllu svo naumlega út eftir 3:1-tap í miklum hasarleik í Þrándheimi í seinni viðureigninni. Lið Bodö/Glimt vakti mikla athygli í fyrra þegar það stakk alla af í norsku úrvalsdeildinni og tapaði naumlega fyrir AC Milan 3:2 á San Siro. Það þykir spila hörkugóðan fótbolta og það verður áhugavert að sjá Vals- menn glíma við Alfons og félaga á Hlíðarenda. Á meðan verða leikmenn Breiðabliks staddir í Vínarborg og glíma við gamla stórveldið Austria. Íslensku liðin þrjú eru öll talin vera veikari aðilinn í þess- um einvígjum í Sambandsdeild- inni en öll mæta þau eflaust til leiks með því hugarfari að sigra og/eða vera í stöðu til að eiga raunhæfa möguleika í seinni við- ureigninni viku síðar. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Brasilíska knattspyrnukonan Marta, samherji Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur hjá Orlando Pride, varð í gær fyrst í sögunni, kona eða karl, til að skora mark á fimm Ólympíu- leikum. Hún skoraði tvö marka Brasilíu í stórsigri á Kína, 5:0, í fyrstu umferð leikanna. Christine Sinclair skoraði fyrir Kanada í jafntefli, 1:1, gegn Japan, og hún hefur nú skorað á fernum Ólympíuleikum. Sinclair lék sinn 300. landsleik í gær en hún skoraði líka í 100. og 200. landsleik sínum fyrir Kanada. Fyrst til að skora á fimm leikum AFP Skoraði Marta fagnar eftir að hafa skorað fyrsta mark Brasilíu. Svíar fóru afar vel af stað í knatt- spyrnukeppni kvenna á Ólympíu- leikunum í Tókýó í gær og unnu sannfærandi sigur á heimsmeist- urum Bandaríkjanna, 3:0. Stina Blackstenius skoraði tvö fyrstu mörkin og Lina Hurtig innsiglaði sig- urinn. Ástralir sigruðu granna sína Nýsjálendinga 2:1 í sama riðli þar sem Betsy Hassett, leikmaður Stjörn- unnar, lék allan leikinn með Nýja- Sjálandi. Þá skoraði Vivianne Mie- dema þrjú mörk fyrir Holland og Barbra Banda þrjú fyrir Sambíu þeg- ar Holland vann leik liðanna 10:3. Svíar skelltu meistaraliðinu AFP Sigur Stina Blackstenius fagnar fyrsta marki leiksins í gær. KNATTSPYRNA Sambandsdeild karla, fyrri leikur: Origo-völlur: Valur – Bodö/Glimt ............ 19 Kaplakriki: FH – Rosenborg ................... 19 1. deild karla, Lengjudeildin: Extra-völlur: Fjölnir – Þróttur R ....... 19.15 2. deild karla: Vogaídýfuv.: Þróttur V. – Njarðvík .... 19.15 Blue-völlur: Reynir S. – Haukar ......... 19.15 3. deild karla: Þorlákshöfn: Ægir – Elliði ....................... 20 2. deild kvenna: Framvöllur: Fram – Álftanes.............. 19.15 Í KVÖLD! Úrslitakeppni NBA Sjötti úrslitaleikur: Milwaukee – Phoenix ......................... 105:98 _ Milwaukee Bucks sigraði 4:2 og er NBA- meistari 2021. Norðurlandamót U20 kvenna Finnland – Ísland ................................. 77:66 Norðurlandamót U20 karla Eistland – Ísland .................................. 71:85 >73G,&:=/D Vináttulandsleikir karla Portúgal – Argentína ........................... 31:28 Frakkland – Danmörk ......................... 28:33 %$.62)0-# Anton Sveinn McKee er 27 ára gamall sundmaður úr Hafnarfirði sem æfði og keppti lengst af með Sundfélaginu Ægi en síðan með Sundfélagi Hafn- arfjarðar. Hann stundaði nám í upplýsingatæknifræði við Alabama- háskóla í Bandaríkjunum 2013-2017, hefur starfað við fyrirtækjaráðgjöf í Bandaríkjunum og keppt fyrir kanadíska atvinnuliðið Toronto Titans á al- þjóðlegum sundmótum. Þetta eru hans þriðju Ólympíuleikar en Anton keppti áður á ÓL í London 2012 og ÓL í Ríó 2016. Aðalgreinar Antons eru 100 og 200 metra bringusund og hann á Íslands- metin í öllum bringusundsgreinum sem og lengri greinum í skriðsundi og fjórsundi, og Norðurlandametin í 100 og 200 m bringusundi. Anton komst í úrslit í 50, 100 og 200 m bringusundi á EM í 25 metra laug árið 2019 og náði best fjórða sæti. Hann komst í undanúrslit í 100 m bringusundi á EM í 50 metra laug árið 2018, og í milliriðla í 200 m bringusundi á heimsmeistara- mótinu í 50 metra laug árið 2019. Anton Sveinn McKee
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.