Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 3
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 3
ÞJÓÐMÁL
13. árgangur Haust 2017 3. hefti
Tímarit um þjóðmál og menningu
Efnisyfirlit
Af vettvangi stjórnmálanna, bls. 6
Björn Bjarnason fjallar um aðdraganda og
eftirmál stjórnarslitanna.
Samkeppnishæfi Íslands, bls. 14
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI,
fjallar um mikilvægi þess að stjórnvöld setji
sér skýr markmið og fylgi þeim eftir.
Stöðugleikasjóður Íslands, bls. 20
Lilja Dögg Alfreðsdóttir alþingismaður
fjallar um hugmynd sína að stofnun
Stöðugleikasjóðs á Íslandi.
Hagsæld fyrir alla, bls. 24
Björn Jón Bragason fjallar um þýsku þing-
kosningarnar, stefnu Kristilegra demókrata
og hvað Sjálfstæðisflokkurinn getur lært af
starfi flokksins.
Norska hægristjórnin heldur velli, bls. 37
Magnús Þór Hafsteinsson fjallar um
niðurstöðu norsku kosninganna og stöðu
Ernu Solberg sem forsætisráðherra.
Fjölnir, bls. 46
Fjölnir fjallar um óbeit ungs fólks á kapítal-
ismanum og það bil sem er að myndast á
milli kynslóða á Vesturlöndum.
Orkuskipti og loftslagsmál, bls. 52
Bjarni Jónsson fjallar með ítarlegum hætti
um loftslagsmál, orkuskipti og tengdar
fjárfestingar.
Samfélagsleg ábyrgð, bls. 66
Harpa Júlíusdóttir fjallar um þátttöku
íslenskra fyrirtækja í United Nations Global
Compact sem fjallar um samfélagslega
ábyrgð.
Alþjóðastjórnmál, bls. 73
Daniel Fried fjallar um köld samskipti
Bandaríkjanna og Rússlands.
Skák, bls. 76
Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands, fjallar um heimsbikarmótið í skák.
Bókarýni, bls. 80
Þórlindur Kjartansson fjallar um bókina
Man Disconnected. Bókin fjallar um stöðu
ungra karlmanna á Vesturlöndum sem
einkennist af rótleysi og vonleysi á köflum.
Bækur, bls. 84
Bókin Maður nýrra tíma, æviminningar
Guðmundar H. Garðarssonar ritaðar af Birni
Jóni Bragasyni, er væntanleg í haust. Birtur er
kafli sem fjallar um samningaviðræðurnar í
Ósló 1976 um útfærslu fiskveiðilögsögunnar
í 200 sjómílur.
Bókin Erlendur landshornalýður? Flóttamenn
og framandi útlendingar á Íslandi, 1853–1940
eftir Snorra G. Bergsson sagnfræðing er
væntanleg í október. Birtur er kafli þar sem
greint er frá dvalarleyfisumsóknum gyðinga
til Íslands.
Fornleifafræði, bls. 91
Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur og
uppgraftarstjóri á Landssímareitnum,
fjallar um þær minjar sem þar hafa fundist
og staðreyndir um rannsóknina, rannsóknar-
svæðið og Víkurkirkjugarð.
Ljóð, bls. 96
Limrur og vísur eftir Jón Hjaltason