Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 41
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 39
Norski Verkamannaflokkurinn er nú aðeins
rétt stærri en Hægriflokkur Ernu Solberg
forsætisráðherra, sem hlaut 25,0% og tapaði
1,8% frá síðustu kosningum. Ljóst er að
Verkamannaflokksins bíða erfiðir tímar, jafn-
vel með innra uppgjöri. Undir forystu Jonasar
Gahr Störe formanns klúðraði flokkurinn
illilega tækifærum til að sauma nógu fast að
sitjandi hægristjórn.
Öðrum vinstriflokkum mistókst einnig
Hinir vinstriflokkarnir fengu ekki það fylgi sem
margir höfðu vonir um, þó að þeir bættu sig.
Þannig hlaut Sósíalíski vinstriflokkurinn 6%,
jók fylgið um 1,9% og fjölgaði þingmönnum
úr sjö í ellefu. Vonir um að Græningjum og
kommúnistunum í Rautt tækist að ná upp í
4% prósenta þröskuldinn sem þarf til að eiga
rétt á uppbótarþingsætum brugðust einnig
hrapallega.
Rautt fékk 2,4% (aukning um 1,3%) og
þingmann í fyrsta sinn í sögu sinni. Hann
hefði getað náð um sjö sætum ef hann hefði
fengið uppbótarmenn. Svipað gildir um
Umhverfisflokk Græningja. Hann fékk aðeins
3,2% og einn þingmann. Þessi flokkur svaraði
hvergi væntingum um fylgisaukningu í
kosningunum. Hann jók fylgið aðeins um
0,4% frá 2013.
Tæpara gat það vart orðið
Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn, sem
hafa setið í ríkisstjórn síðustu fjögur árin,
unnu báðir varnarsigra. Hægriflokkurinn
missti sem fyrr greindi 1,8% og þrjú þingsæti.
Hann á nú 45 þingmenn. Framfaraflokkurinn
tapaði 1,2% og þingflokkur hans fór úr 29 í
27 þingmenn. Báðum litlu flokkunum sem
studdu minnihlutastjórn þessa tveggja hægri-
flokka á síðasta kjörtímabili og vörðu falli á
norska Stórþinginu, það er Kristilega þjóðar-
flokknum og Frjálslynda flokknum Vinstri,
rétt tókst að komast yfir 4% múrinn og fá
jöfnunarsæti. Vinstri fékk 4,3% og Kristilegir
4,2%. Hvor flokkur um sig hlaut átta þingsæti.
Kristilegi þjóðarflokkurinn missti þó all-
nokkurt fylgi frá 2013. Hann tapaði 1,4% og
varð að horfa á eftir tveimur þingsætum.
Vinstri missti eitt þingsæti.
Þannig töpuðu þeir fjórir flokkar sem stóðu
að ríkisstjórn Ernu Solberg á kjörtímabilinu
2013-21017 alls átta þingsætum í þessum
kosningum.
Ljóst er að vart gat staðið tæpar að sitjandi
meirihluta í norska Stórþinginu tækist að
halda stöðu sinni. Ef Kristilegi þjóðarflokkur-
inn og Vinstri hefðu ekki náð upp fyrir 4%
markið og fengið uppbótarþingsæti hefði
stjórnin fallið.