Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 62

Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 62
60 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Samkvæmt töflunni fyrir árið 2030 þarf hver fjölskyldubíll að meðaltali 3,2 MWh/ár frá virkjun í 4.250 klst./ár. Þetta jafngildir því að meðalafl í hleðslu sé aðeins 0,8kW, en það verður líklega tífalt. Þetta bendir til að aflþörf virkjana sé van- metin, þótt orkuþörfin sé nærri lagi. Vindi orkuskiptum ökutækjanna fram eins og töflurnar fyrir árin 2030 og 2040 bera með sér má búast við að umferðin verði orðin kolefnis- frí árið 2050 og það er í sjálfu sér verðugt markmið. Heildarökutækjaflotinn gæti þá numið 380.000 og myndi hann þurfa 300 kt af jarðefnaeldsneyti miðað við 20% betri nýtni en árið 2016, án orkuskiptanna. Ef reiknað er með að innflutningsverð á eldsneyti verði um miðja öldina 1.500 USD/t CIF verður þarna um að ræða gjaldeyrissparnað árið 2050 upp á 450 milljónir Bandaríkjadala, eða um 50 millj- arða króna að núvirði. Þá er spurning hvort orkuskipti umferðarinnar eru þjóðhagslega hagkvæm. Því verður svarað í næsta kafla. Framkvæmdaþörf fyrir orkuskipti á Íslandi GNG kemst að þeirri niðurstöðu að raforkuþörfin árið 2040 vegna orkuskiptanna og væntan- legs vaxtar í raforkunotkun almennings og fyrirtækjanna, án nýrrar stóriðju, verði með eftirfarandi hætti: Á þessum tíma er hins vegar ekki gert ráð fyrir að orkuskiptin verði gengin um garð. Verðugt markmið er að svo verði árið 2050, einnig í flugi og millilandasiglingum, og til vara með mótvægisaðgerðum. Fyrir umræðu um virkjanir og flutningskerfi raforku er gagnlegt að gera sér grein fyrir orku- og aflþörf orkuskipta og aukinni orku- og aflþörf vaxandi þjóðar og hagkerfis. Sjá má dæmi í næstu töflu: Heildarþörf fyrir nýjar virkjanir vegna orkuskipta frá fljótandi jarðefnaeldsneyti til innlendra orkulinda á borð við fallvatnsorku, jarðgufu og vindorku nemur rúmlega 6.800 GWh/ári, sem er um 36% meira en núverandi raforkuvinnsla virkjana landsins. Aukning á uppsettu rafalaafli í virkjunum, 1.455 MW, er tiltölulega meiri, eða um 56%, vegna þess að eðli álagsins sem orkuskiptin hafa í för með sér er ólíkt því sem fyrir. Það er að mestum hluta (um 80%) stöðugt stóriðjuálag en nýja álagið er tiltölulega slitrótt. Þetta mun hafa í för með sér hækkun á meðalvinnslukostnaði og flutningskostnaði raforkukerfisins, en hann mun samt verða samkeppnisfær við útlönd þangað til ný tækni ryður sér til rúms þar við orkuvinnsluna. Nú er spurningin hvort nægir virkjunarkostir eru í landinu fyrir orkuskiptin og eðlilega þróun núverandi notkunar. Notandi Þörf GWh Aflþörf MW Ökutæki 1.276 324 Fiskimjölsverksmiðjur 122 62 Almenningur 500 100 Hafnir, gagnaver o.fl. 1.934 295 Heildarþörf 3.832 781 NOTANDI ÞÖRF ÁR 2050 GWh AFLÞÖRF MW Fjölskyldubílar 900 220 Strætisvagnar 17 5 Sendiferðabílar 141 35 Vörubílar/ Vinnuvélar 750 180 Bílaleigubílar 260 75 Smárútur 50 15 Stórrútur 316 90 Alls ökutæki 2.434 620 Iðnaður, landbúnaður 2.200 390 Fiskiskip 710 140 Millilandaskip 750 160 Innanlandsflug og -skip 165 35 Önnur almenn notkun 550 110 Alls annað en ökutæki 4.375 835 Heildarorkuskipti og þróun 6.809 1.455
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.