Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 53
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 51
Clark bendir einnig á að fólk undir 35 ára
aldri hefur ekki kynnst þeirri neikvæðu ímynd
sósíalismans sem eldri kynslóðir þekkja
svo vel. Og það er rétt hjá honum. Nú eru
nær 30 ár liðin frá falli Berlínarmúrsins og
sú kynslóð hefur, sem betur fer, ekki kynnst
þeim hryllingi sem sósíalisminn hefur upp á
að bjóða. Þessi kynslóð þekkir ekki Austur-
Þýskaland nema í sögubókum – og þær fjalla
ekki endilega um það sem raunverulega átti
sér stað austan járntjaldsins. Kynslóðin sem
nú hefur áhyggjur af því að Google fylgist
með henni hefur aldrei kynnst Stasi og þeim
aðferðum sem stofnunin notaði. Sú kynslóð á
erfitt með að ímynda sér að fyrir 40 árum hafi
jafnaldrar hennar verið skotnir fyrir að reyna
að klifra yfir múrinn.
***
Nú er það ekki svo að unga kynslóðin sé illa
upplýst. Það mætti með góðum rökum halda
því fram að hún sé jafnvel betur upplýst
en eldri kynslóðir. Hún hefur í það minnsta
betri aðgang að upplýsingum en foreldrar
hennar höfðu á sama aldri. Svo má auðvitað
velta því fyrir sér hvaða upplýsingar hún fær.
Fréttastofa RÚV reyndi t.d. lengi að halda því
fram að „efnahagserfiðleikarnir“ í Venesúela
væru afleiðingar af lækkandi olíuverði. Á
öld upplýsingaflóðsins er ekki sjálfgefið að
upplýsingarnar séu réttar.
Samkvæmt könnunum hér á landi njóta
Vinstri græn mikils stuðnings meðal ungs
fólks. Þá skiptir engu að Vinstri græn og for-
verar þeirra studdu þá sem skutu unga fólkið
sem reyndi að klifra yfir Berlínarmúrinn,
þau dýrkuðu Fidel Castro sem tók pólitíska
andstæðinga sína af lífi eins og enginn væri
morgundagurinn og þau höfðu lítið út á
það að setja að skoðanabræður þeirra í Kína
og Sovétríkjunum væru ábyrgir fyrir dauða
tugmilljóna manna.
***
Ekkert af þessu skiptir þó máli í stóra sam-
henginu, enda löngu liðnir atburðir. Hægri-
menn geta endalaust rifjað upp syndir
kommúnistanna en þeir tala fyrir daufum
eyrum. Enginn heilvita Íslendingur ætlar
Katrínu Jakobsdóttur að styðja eða sam-
þykkja aðferðir Castros, Maós eða Stalíns
– jafnvel þó að hún sé í grunninn sammála
stjórnmálaskoðunum þeirra. Hægrimenn
þurfa því að líta í eigin barm. Þeim hefur
mistekist að sannfæra ungt fólk um ágæti
kapítalismans. Þeir stjórnmálamenn eru
teljandi á fingrum annarrar handar sem
tala um vinnu og dugnað sem dyggð, sem
tala fyrir minni ríkisafskiptum og auknum
tækifærum fyrir þá sem eru tilbúnir að
leggja mikið á sig. Fyrr eða síðar verða hægri-
menn að taka á þessu fráhvarfi ungs fólk frá
kapítalisma.
***
En hægrimenn þurfa líka að tryggja það að
allir hafi sömu tækifæri. Það er til lítils að
predika um ávinninginn af frjálsum markaði
ef hann gerir heilli kynslóð ekkert gagn, sbr.
fyrrnefndur húsnæðisvandi ungs fólks í Bret-
landi, sem er svipaður hér á landi. Ungt fólk
þarf að fá tækifæri til að vera þátttakendur í
kapítalismanum. Það er engin ástæða til að
ætla annað en að ungt fólk í dag sé duglegt
og framsækið. Það þarf þá að hafa fullvissu
fyrir því að dugnaður þess borgi sig. Ungt
fólk er ekki eigingjarnt og það er ekki drifið
áfram af græðgi – en það vill fá tækifæri til að
njóta afraksturs vinnu sinnar.
Sósíalisminn mun ekki færa unga fólkinu það
tækifæri.
Kynslóðin sem nú hefur áhyggjur af því að Google fylgist með henni
hefur aldrei kynnst Stasi og þeim aðferðum sem stofnunin notaði.
Sú kynslóð á erfitt með að ímynda sér að fyrir 40 árum hafi jafnaldrar
hennar verið skotnir fyrir að reyna að klifra yfir múrinn.