Þjóðmál - 01.09.2017, Side 44

Þjóðmál - 01.09.2017, Side 44
42 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 Síðar í þessum mánuði fara fram kosningar til alþingis. Þó svo að aðdragandi kosninganna sé að mörgu leyti, eða réttar sagt að nær öllu leyti, undarlegur er ekki þar með sagt að kosningarnar sjálfar séu það. Öllum mátti vera ljóst að ríkisstjórnarflokkarnir þrír störfuðu saman í ástlausu hjónabandi; það var e.t.v. aðeins tímaspursmál hvenær annar litlu flokkanna guggnaði á því að sýna festu og ábyrgð í því samstarfi. Það væri þó að bera í bakkafullan lækinn að rekja ríkisstjórnarsam- starfið eða aðdragandann að stjórnarslitunum hér. Þess í stað verður horft til framtíðar. Í byrjun þessa mánaðar eru liðin níu ár frá hinu svokallaða hruni. Það er ekki langur tími en sá árangur sem við höfum náð sem þjóð er að mörgu leyti ótrúlegur, í það minnsta efna- hagslega. Enn situr eftir reiði og vantraust og það mun taka lengri tíma fyrir þau sár að gróa – sérstaklega í ljósi þess að til eru aðilar sem gera út á það að viðhalda reiði og vantrausti. Við búum við mikla hagsæld hér á landi. Efnahagslegar aðstæður eru að flestu leyti hagfelldar; hagvöxtur var í fyrra 7,2% (sá mesti í áratug) og er um 6% á þessu ári. Atvinnuleysi er lítið sem ekkert, kaupmáttur hefur aukist (um 5,3% sl. 12 mánuði), við skorum hátt í lífshamingjuvísitölum og þannig mætti áfram telja. Þó eru blikur á lofti. Fram undan eru erfiðar kjarasamningalotur og óvíst er hvaða afleiðingar þær hafa. Miklar launa- hækkanir síðustu ára eru farnar að þrengja að fyrirtækjum og við bætast háir raun- vextir og styrking krónunnar (þó að hún hafi gefið lítillega eftir upp á síðkastið). Óvissan í stjórnmálunum er ekki til þess fallin að valda hugarró og það sést t.a.m. á mörkuðum síðustu daga og vikur. Full ástæða er því til að hafa augun opin. Gísli Freyr Valdórsson Kæfandi faðmur ríkisins Stjórnmál

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.