Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 31

Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 31
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 29 Mitt í allri pólitískri upplausn síðustu ára hefur Þýskaland notið sérstöðu. Það segir sitt um stöðugleika stjórnarfars í Vestur- Þýskalandi og sameinuðu Þýskalandi að frá stofnun sambandslýðveldisins hafa kanslar- arnir aðeins verið átta talsins, þar af fimm úr flokki Kristilegra; Kondrad Adenauer, 1949-1963, Ludwig Erhard 1963-1966, Kurt Georg Kiesinger 1966-1969, Helmut Kohl 1982-1998 og loks Angela Merkel frá árinu 2005. Til samanburðar má nefna að forsætisráð- herrar Breta frá stríðslokum eru orðnir 14 talsins og stjórnarskipti hafa orðið 42 sinnum á Ítalíu á sama tímabili. Kristilegir hafa verið við völd í þýska sambandslýðveldinu í 50 ár af þeim 68 sem liðin eru frá stofnun þess. Enginn flokkur hefur því haft viðlíka áhrif á þróun landsmála og enginn flokkur hefur haft meiri áhrif á þróun mála í Evrópu á sama tíma. Öflugasti leiðtogi Vesturlanda Enginn kjörinn þjóðarleiðtogi í Evrópusam- bandinu hefur verið lengur við völd en Angela Merkel sem tók við embætti kanslara 2005. Á þeim tíma var George W. Bush Bandaríkjaforseti, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Jacques Chirac Frakklandsfor- seti. Þegar Merkel varð formaður Kristilegra demókrata árið 2000 var Bill Clinton enn forseti Bandaríkjanna. Hún hefur því verið kanslari í bráðum tólf ár, en það er ekki met, því Helmut Kohl sat að völdum í rúm 16 ár og Konrad Adenauer var kanslari í 14 ár. Óhætt er að segja að Merkel sé ólík flestum stjórnmálaleiðtogum Vesturlanda. Faðir hennar var lútherskur prestur og hún er trú lútherskum gildum í einkalífi sínu. Hún berst ekki á, vill vera hjálpsöm við náung- ann og ekki skulda fjármuni. Hún er ef til vill frekar innblásin af lútherskri siðfræði en pólitískri hugmyndafræði. Sjálf hefur hún lýst sinni pólitísku sýn svo að hún sé um sumt frjálslynd, um annað íhaldssöm og um enn annað christlich­sozial, sem þýða mætti sem kristileg jafnaðarstefna. Angela Merkel er alinn upp í Austur-Þýska- landi og er doktor í eðlisfræði. Hún sneri sér að stjórnmálum við fall alþýðulýðveldisins og var kjörin á sambandsþing sameinaðs Þýska- lands 1990. Sama ár var hún skipuð ráðherra í ríkisstjórn Helmuts Kohls sem bar hana á höndum sér og kallaði hana „stúlkuna“, die Mädchen, enda var hún yngsti ráðherra í sögu sambandslýðveldisins. Sósíaldemó- kratar tóku við valdataumum árið 1998 og nýr formaður flokks Kristilegra var Wolfgang Schäuble, núverandi fjármálaráðherra. Flokkurinn var þar með utan ríkisstjórnar í fyrsta skiptið frá árinu 1982. Snemma árs 2000 kom upp styrkjahneyksli, þekkt sem Schwarzgeldaffäre, sem skók flokkinn. Kristilegu flokkarnir höfðu mælst með um 45% fylgi á landsvísu í könnunum áður en styrkjamálið var gert opinbert, en fylgið féll niður í um 30% á örskömmum tíma. Merkel steig þá fram og gagnrýndi Kohl opin- berlega. Hún þótti svo sköruleg í framgöngu að svo fór hún var kjörinn nýr formaður flokk- sins í stað Schäuble 10. apríl 2000. Merkel varð leiðtogi stjórnarandstöðu kristilegu flokkanna á þýska sambandsþinginu 2002 og fyrir kosningarnar 2005 var hún útnefnd kanslaraefni þeirra. Angela Merkel, kanslari Þýskalands frá árinu 2005
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.