Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 98
96 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Að lokum
Um Steingrím J. Sigfússon eftir að hafa orðið
margsaga um Icesave og sitthvað fleira:
Lygarnar Steingríms logsærandi.
Öll loforða svikin mjög ærandi.
En loks er hann þegir,
Þá sannleikann segir.
En það er í frásögur færandi.
Um Örn Jónasson í reiðtúr
með góðum hópi:
Þá Örn sté í hnakkinn var einmuna blíða
og þeir teyguðu af stút úr kútnum víða.
Hann rifbeinin braut
þegar reiðskjótinn hnaut.
Réttast hann haldi sig heima að „sauma út!”
Óður til skákgyðjunnar:
Ég hugsa um pólitík, popp og kók,
peninga, skáklist, biskup og hrók.
Með gambítsins mætti
mér verðast þætti,
að máta þig innan við bol og brók.
Heilræðavísur
Á Þorláksmessu hafði góður vinur minn boð
inni fyrir, að hann taldi, góða gesti og kurt
eisa vel. Kvartaði hann þó sáran daginn eftir
yfir því að boðið hefði farið úr böndunum og
staðið til morguns. Kvað hann og heilsu sína
og andlegt atgervi ekki til þess fallið að mæta
á mannamót að sinni.
Sá ég mig sem aðdáanda númer eitt knúinn
til að senda þessum góða dreng eftirfarandi
heilræðavísur:
Brennivínið vel í lagt,
verkuð skata svignuð borð,
mikið blaðrað, minna sagt,
mjög var ódýrt sérhvert orð.
Litla greind þér laut í arf
og lærist vart að sinni,
þá allt er sagt er segja þarf,
senn er mál að linni.
Limrur og vísur eftir Jón Hjaltason
#iseyskyr
Nýtt nafn
sama góða
bragðið
Til að heiðra þær íslensku konur sem miðluðu
uppskrift og þekkingu á skyrgerð til dætra sinna
í gegnum aldirnar, heitir skyrið okkar nú Ísey skyr.
Frá móður til dóttur
– og okkar allra