Þjóðmál - 01.09.2017, Page 11
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 9
Fimmtudaginn 14. september birti Benedikt
Sveinsson, faðir forsætisráðherra, eftirfarandi
yfirlýsingu:
„Í ljósi alls þess sem fram hefur komið að
undanförnu vil ég biðja þá sem um sárt
eiga að binda vegna máls Hjalta Sigurjóns
Haukssonar, afsökunar á því að hafa ljáð
honum atbeina við umsókn um uppreist
æru.
Hjalti Sigurjón Hauksson var um tíma
tengdur kunningjafólki okkar hjóna frá
skólaárum. Hann hefur í nokkur skipti
leitað aðstoðar hjá mér, fyrst og fremst
vegna fjárhagsmála eða í tengslum við
atvinnuleit. Engin önnur tengsl hafa verið á
milli okkar.
Á síðasta ári leitaði Hjalti til mín um meðmæli
vegna uppreistar æru. Hann kom til mín með
bréf, tilbúið til undirritunar. Ég skrifaði undir
bréfið og hef ekki vitað af málinu síðan, fyrr
en það kom til opinberrar umfjöllunar nú í
sumar. Ég ræddi ekki meðmælabréfið við
nokkurn mann, hvorki í stjórnkerfinu né
annars staðar, og hef aldrei verið spurður
frekar út í málið. Allur aðdragandi og
umbúnaður málsins var sá að verið væri
að ganga frá formsatriði fyrir umsókn til
stjórnsýslunnar.
Ég hef aldrei litið svo á að uppreist æru
væri annað en lagalegt úrræði fyrir dæmda
brotamenn til að öðlast að nýju tiltekin
borgaraleg réttindi. Sá hugur bjó ekki að
baki að rétta stöðu Hjalta gagnvart fórnar-
lambi hans. Hjalta hef ég sagt að horfast í
augu við gjörðir sínar og iðrast þeirra.
Það sem átti hér að vera lítið góðverk við
dæmdan mann hefur snúist upp í framhald
harmleiks brotaþola. Á því biðst ég enn og
aftur afsökunar.“
MAGASÍNIÐ
VIRKA DAGA 16-18
HULDA BJARNA OG HVATI
MAGASÍNIÐ
VIRKA DAGA 16-18
HULDA BJARNA OG HVATI
HULD BJARNA OG HVATI
MAGASÍNIÐ
VIRKA DAGA 16-18