Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 35
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 33
Úrslit kosninganna
Vinstriflokkurinn hefur lengi verið álitinn „of
langt til vinstri“ og vart þótt stjórntækur. Hér
er enn ónefndur flokkurinn Alternative für
Deutschland, eða Nýr valkostur fyrir Þýska-
land. Flokkurinn hefur fengið menn kjörna á
þing nokkurra sambandslanda, en forystu-
menn hans hafa verið gagnrýnir á
innflytjendastefnu hinna flokkanna. Sumir
talsmenn flokksins hafa þótt fara út af
sporinu í yfirlýsingum og kveðst enginn
hinna flokkanna vilja starfa með honum í
ríkisstjórn. Flokkurinn hlaut 13,5% fylgi í
kosningunum 24. september og menn kjörna
á sambandsþingið í fyrsta sinn. Nýr valkostur
hefur sótt mikið fylgi til CDU.
Kristilegu flokkarnir hlutu aðeins tæplega
þriðjung atkvæða í nýliðnum kosningum,
en þingflokkur þeirra verður þó eftir sem
áður stærsti flokkur á sambandsþinginu.
Kosningaúrslitin urðu Sósíaldemókrötum
reiðarslag, en þeir hlutu aðeins um fimmtung
atkvæða. Martin Schulz, leiðtogi þeirra,
tilkynnti að þeim loknum að flokkurinn færi
í stjórnarandstöðu, svo ekki verður framhald
á samstarfi þeirra og kristilegu flokkanna.
Frjálslyndir demókratar náðu aftur kjöri á
þing og fengu um 10% fylgi og Græningjar
og Vinstriflokkurinn rétt um 9% fylgi hvor.
Hvað sem líður fylgistapi kristilegu flokkanna
er ljóst að þeir halda stöðu sinni sem höfuð-
flokkar Þýskalands.
Óskastjórn kristilegra er samstarf við
Frjálslynda demókrata, enda hafa slíkar
stjórnir reynst afar farsælar. Segja má að
flokkarnir vegi hvor annan upp. Frjálslyndir
eru aðhaldssamari í ríkisfjármálum en Kristi-
legir, sem leggja aftur á móti meiri áherslu
en Frjálslyndir á öryggi borgaranna. Ætla má
að Frjálsir demókratar og Græningjar gangi
til stjórnarmyndunarviðræðna við kristilegu
flokkanna. Takist flokkunum að mynda stjórn
yrði það fyrsta þriggja flokka ríkisstjórn í sögu
sambandslýðveldisins, en kristilegu flokkarnir
mynda einn þingflokk.
Nýrrar ríkisstjórnar bíða erfið úrlausnarefni.
Evrópusambandið glímir við margþættan
vanda. Yfirvofandi er alvarleg bankakreppa
á Ítalíu, en þolinmæði þýskra skattgreiðenda
er á þrotum. Þeir munu ekki sætta sig við
fjáraustur úr þýskum sjóðum til bjargar efna-
hag ríkja í Suður-Evrópu. Líklega mun hægja
á samrunaþróun álfunnar á næstu misserum
og telja verður útilokað að Tyrkland gangi í
bandalagið. Svívirðilegar ávirðingar Recep
Tayyip Erdogan Tyrklandsforseta í garð
Merkel kanslara hafa vakið mikla reiði í Þýska-
landi sem vonlegt er.
Horst Seehofer, forsætisráðherra Bæjaralands og formaður CSU, kynnir stefnuskrá flokksins fyrir sambandsþing
kosningarnar, sem ber heitið Der Bayernplan. Seehofer hefur gegnt embætti forsætisráðherra frá árinu 2011, en hann hefur
átt sæti á þýska sambandsþinginu samfleytt frá 1980. Honum á vinstri hönd situr Andreas Scheuer, framkvæmdastjóri CSU.