Þjóðmál - 01.09.2017, Síða 68
66 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Harpa Júlíusdóttir
Innleiðing
samfélagslegrar ábyrgðar
– meðal íslenskra aðila að United Nations Global Compact
Atvinnulífið
Innleiðing samfélagslegrar ábyrgðar fyrir-
tækja hefur á síðustu árum vakið aukinn
áhuga bæði stjórnenda og fræðimanna.
Þrátt fyrir að samfélagsleg ábyrgð hafi verið
viðfangsefni rannsókna síðustu áratugi
hefur innleiðing hennar ekki verið áberandi
rannsóknarefni. Árangursrík samfélagsleg
ábyrgð þarf að falla að heildarstefnumótun
fyrirtækis en ekki eingöngu heyra undir fram-
kvæmdasvið þess (Bonn og Fisher, 2011).
Með því verður samfélagsleg ábyrgð hluti
af allri færni, hæfni og menningu fyrirtæki-
sins og myndar virði fyrir kjarnastarfsemina
(Chandler, 2017). Fyrirtæki þarf að skapa
sérstæða stefnu þegar kemur að samfélags-
legri ábyrgð, þar sem hugað er að einstökum
aðstæðum þess og rekstrarumhverfi (Carroll
og Shabana, 2010).
Fræðimenn hafa sýnt fram á að fyrirtæki sem
vinna að því að samþætta samfélagslega
ábyrgð við kjarnastarfsemi sína ná frekar að
auka hagnað og styrkja samkeppnistöðu sína
heldur en þau fyrirtæki sem ráðast í tíma-
bundin samfélagslega ábyrg verkefni og þá
er sama hversu umfangsmikil þau reynast
(Falck og Heblich, 2007). Þá þarf fyrirtæki, til
að ná fram stefnu sem það setur sér varðandi
samfélagslega ábyrgð, að stunda ábyrga og
gagnsæja stjórnarhætti (de Graaf og Stoel-
horst, 2010; Klettner o.fl., 2014).
Þátttaka í alþjóðlegum sáttmálum á borð við
United Nations Global Compact (UNGC) er
skref sem fyrirtæki taka í auknum mæli sem
hluta af innleiðingarferli sínu þegar kemur að
samfélagslegri ábyrgð.
Sáttmálinn byggist á tíu grunnviðmiðum sem
hvetja aðila hans til að huga að öllum sínum
hagsmunaaðilum varðandi stefnumótun og í
starfsháttum.
Íslenskir aðilar að UNGC voru viðfangsefni
rannsóknar sem höfundur þessarar greinar
framkvæmdi sem hluta af meistaranámi
sínu við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Rannsóknin var framkvæmd á vormánuðum
ársins 2017. Rannsóknarspurningar rit-
gerðarinnar snúa að því hvort að íslenskir
aðilar að UNGC hafi innleitt samfélagslega
ábyrga starfshætti.
Framkvæmd var innihaldsgreining og gögnin
metin með aðstoð greiningartækis hannað
af áströlsku fræðimönnunum Klettner, Clarke
og Boersma. Greiningartækið var upphaflega
nýtt til greiningar á innleiðingu samfélags-
legrar ábyrgðar stærstu fyrirtækja Ástralíu en
niðurstöður þeirrar rannsóknar voru birtar í
Journal of Business Ethics árið 2014.