Þjóðmál - 01.09.2017, Blaðsíða 92
90 ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017
Fólk þetta var flutt í nokkrar söfnunarbúðir
þar sem það var geymt uns hægt væri að
senda það til Putlitzstrasse-lestarstöðvar-
innar í Moabit-hverfinu. Þar var fólkið skráð
og flutt um borð í gripaflutningalestir undir
svipuhöggum.
Hinn 2. mars 1943 sóttu SS-liðar um 1.500
fanga í fjórar söfnunarbúðir í Berlín og
fluttu þá um borð í gripaflutningalest á
Putlitzstrasse-stöðinni, þar sem um 300 aðrir
gyðingar biðu, þeirra á meðal um 220 manna
hópur sem var nýkominn frá Noregi. Samtals
voru um 1.830 gyðingar nafngreindir á
farþegaskrám þessarar ferðar sem taldist vera
„sending 32“ í skrám þýskra embættismanna.
Við komuna til Auschwitz sendu SS-verðir
535 karla og 145 konur í þrælkunarvinnu en
aðrir fóru beint í gasklefana í Auschwitz-
Birkenau II. Meðal þeirra var Pauline (Paula)
Weg, fædd Marcus í bænum Znin í Póllandi
árið 1896. Hún hafði þá sérstöðu meðal
farþega lestarinnar að hafa gilda vegabréfs-
áritun til Íslands, síðast útgefna í maí 1941.
Einnig má nefna að maður hennar, Otto Weg
frá Leipzig, hafði dvalið á Íslandi frá desem-
ber 1939. Það bjargaði henni þó ekki frá
þessum hræðilegu örlögum.
Fleiri farþegar í „sendingu 32“ höfðu tengsl við
Íslendinga. Í október 1942 hóf norska borgara-
lögreglan að safna saman gyðingum og flytja
þá í gæslubúðir. Andspyrnuhreyfingin reyndi
á hinn bóginn að koma þeim undan, bæði
með því að fela þá innanlands og smygla
þeim yfir til Svíþjóðar. Áðurnefndur Vilhjálmur
Finsen yngri, stofnandi Morgunblaðsins og
áhugamaður um gyðinglegt ætterni útlend-
inga í Reykjavík, var þá sendierindreki Íslands
í Noregi og Svíþjóð. Nokkrir ofsóttir gyðingar
höfðu leitað liðsinnis hans við að flýja: Hjónin
Felix Georg og Elfriede Lomnitz, sem voru
um fimmtugt og höfðu flúið til Noregs frá
Þýskalandi, flóttamaðurinn Clothilde Hanau-
er (f. 1882) og Fritz Josef Türkheimer (f. 1907
í Noregi) sem var verkfræðingur í Harðangri,
sonur Clöru (f. Mayer) frá borginni Trier.
Ekki er vitað um nákvæm málsatvik en sænsk
stjórnvöld blönduðu sér í leikinn og fékk
sænski erindrekinn í Osló það hlutverk að
ítreka við Finsen, sem þá var staddur í Noregi,
beiðni um að aðstoða gyðinga þessa ef hann
gæti. Það gekk ekki eftir af ýmsum ástæðum.
Fólkið var handtekið skömmu síðar í alls-
herjarátaki lögreglunnar og sent í gæslubúðir
í Noregi.
Af gyðingum þessum kvaddi Fritz Josef
Türkheimer fyrstur. Hann fór með skipinu
Donau í nóvember 1942 og var myrtur í
Auschwitz-búðunum 14. janúar 1943. Hinir
gyðingarnir voru fluttir með skipinu Gotenland
til Þýskalands seinni hluta febrúarmánaðar
1943. Þeir héldu síðan áfram til Berlínar og
komu þangað í tæka tíð til að fara samtímis
Paulu Weg með „sendingu 32“ til Auschwitz
í marsbyrjun. Vitað er að Lomnitz–hjónin,
Clara Türkheimer og Clothilde Hanauer voru
myrt í dauðabúðunum.
Sumir aðrir umsækjendur gyðinga um
landvistarleyfi á Íslandi voru myrtir eða létust
af ýmsum ástæðum í gyðingahverfum eða
einhvers konar fangabúðum nasista. Ein-
hverjir þeirra lifðu af stríðsárin í Þýskalandi
eða létust þar í landi af ókunnum ástæðum.
Svipað var að segja um umsækjendur
gyðinga frá Austurríki, Tékkóslóvakíu og
Ungverjalandi en finna má suma þeirra í
gagnabönkum Yad Vashem-helfararsafnsins
í Jerúsalem, Bandaríska helfararsafnsins í
Washington, í ættfræðibönkum á Netinu og
víðar. Sumir umsækjendur virðist hafa fengið
hæli í öðrum löndum og komist lífs af. Um
marga er þó ekkert vitað, þar á meðal nokkra
flóttamenn sem íslensk stjórnvöld ráku úr
landi árin fyrir seinni heimsstyrjöld.
Íslendingar hefðu vitaskuld aldrei getað tekið
við öllu þessu fólki en landsmenn hefðu að
minnsta kosti getað tekið hlutfallslegan skerf
sinn í samanburði við aðrar vestrænar þjóðir.
Það gerðu íslensk stjórnvöld ekki heldur
lokuðu mærum landsins fyrir fólki sem var
ekki af norrænum ættum.