Fiskifréttir


Fiskifréttir - 20.12.1996, Síða 11

Fiskifréttir - 20.12.1996, Síða 11
FISKIFRÉTTIR föstudagur 20. desember 1996 11 Útvarp/sjónvarp Bætt útvarpsskilyrði á miðunum á næsta ári Nú er unnið að endurnýjun lang- bylgjukerfis Ríkisútvarpsins, bæði á Gufuskálum og á Austurlandi. Þegar þeirri endurnýjun lýkur, væntanlega á fyrri hluta næsta árs, verður vel séð fyrir einni útvar- psrás til hafsvæðisins kringum landið og hlustunarskilyrði á mið- unum verða ágæt. Jafnframt er unnið að mótun dagskrárstefnu fyrir þessa rás með blönduðu efni af Rás 1 og Rás 2 sem ætlað er að koma betur til móts við óskir sjó- manna en hingað til. Þetta sagði Björn Bjarnason menntamálaráðherra í svari við fyrirspurn frá Einari K. Guðfinn- ssyni á Alþingi fyrir skömmu. Ein- ar benti á að mikill fjöldi sjómanna á miðunum í kringum landið nyti ekki eðlilegrar útvarps- og sjón- varpsþjónustu. Sem dæmi nefndi hann að samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélagsins um sjósókn á Vestfjarðamiðum norðan við 65°30’ N og vestan við 22° vestlægr- ar breiddar hefði heildarsókn verið 1.870 bátar í októbermánuði 1994 og svipaður fjöldi í nóvemb- er. Einar spurði ráðherra hvað væri fyrirhugað að gera til þess að bæta skilyrði útvarps- og sjón- varpssendinga þannig að þau næðu til hafsvæðisins í kringum landið. Fram kom hjá menntamálaráð- herra að áætlaður stofnkostnaður við að dreifa sjónvarpssendingum allt að 50-60 mílur frá landi væri um 850 milljónir króna og rekstr- arkostnaður dreifikerfisins myndi tvöfaldast miðað við núverandi rekstur. Ef stækka ætti annað FM- kerfið svo útvarp næði 60 mflur frá landi með góðum styrk kostaði það 650 millj. króna. Ódýrari lausnir eru til Ráðherrann benti á að ýmsar úrbætur mætti gera, þótt skrefið yrði ekki strax stigið til fulls. „Með því að nota aðstöðu sem nú verður til á fjallatoppum en byggja hvergi ný mannvirki má áætla að FM-út- varp náist á 50% miðanna í stað 10% nú og að sjónvarp náist á 30- 40% miðanna í stað 3-4% nú, en þá verður að gera ráð fyrir vandað- asta móttökubúnaði um borð í skipinu. Heildarkostnaður fyrir eina FM-rás til um 50% miðanna er áætlaður um 64 millj. króna og rekstrarkostnaður 11 millj. kr. á ári. Til þess að ein sjónvarpsrás næði til 30-40% miðanna þarf að gera ráð fyrir 16 nýjum sjónvarps- sendum. Áætlaður kostnaður er 310 millj. kr. og rekstrarkostnaður 24 millj. kr. á ári,“ sagði mennta- i Menntamálaráðherra gat þess i alls staðar byggt á landstöðvum, en i að veltafyrir sér að nýta gervihnatt- málaráðherra. I að í áðurnefndum áætlunum væri I að sjálfsögðu hlyti að koma til álita I artæknina meira í þessu skyni.

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.