Fréttablaðið - 04.11.2021, Side 46
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Og einhvern veginn fór
ég að spá í þetta og
kannski líka út af
auknum rasisma og
órétti sem erlendir
upplifa á Íslandi.
Magnea
Valdimarsdóttir
Hvernig er best að ferðast á
loftlagsráðstefnu?
Auður Önnu
Magnúsdóttir
framkvæmda-
stjóri Land-
verndar
„Það er náttúru-
lega ástæða fyrir
því að ég er ekki
að fara. Ég mat
það þannig að ég
gæti ekki nýtt ferðina í fleiri erindi
og þess vegna ákvað ég að fara
ekki og að það væru það margir
þarna fyrir Íslands hönd og mitt
framlag væri dýrmætara heima.
En fyrir okkur á Íslandi er mjög
mikilvægt að skoða hverja ferð
sem við förum af eyjunni okkar
og við reynum þá að hlaða upp
erindum og vera frekar lengur og
nýta ferðina betur og fara þá á
fleiri staði.
Nú er Skotland náttúrlega mjög
nálægt okkur þannig að þetta er
frekar stutt ferð. En það er alveg
til fyrirmyndar hjá Finn Richard
Andrésson sem er loftslagsfull-
trúi Ungra umhverfissinna og býr
í Hollandi, að fara á loftlagsráð-
stefnuna með lest og rútu.
Það er einmitt þannig sem á
að gera þetta. Og þeir sem eru að
fara frá Evrópu geta gert þetta
líka alveg eins og hann. Ég held að
þessar upphrópanir um einka-
þotur séu svona svolítið ýktar,
ég þekki engan sem getur farið á
einkaþotu. Það eru örugglega ein-
hverjir sem gera það en svo verða
þessar kröfur auðvitað að gilda
fyrir alla.
Þær gilda ekki bara fyrir þá sem
fara á loftslagsráðstefnur. Þær
gilda fyrir þá sem eru að fara á
fótboltaleiki, þeir sem að fylgja
liðunum á fótboltaleiki eru rosa-
lega margir og maður heyrir engar
kröfur um að þeir meti hver þörfin
fyrir þá er að vera á leikjunum og
náttúrulega viðskiptaferðir allar,
borgarferðir bara til að fara að
versla, þú veist – listinn er enda-
laus.
En það kom fram í aðdraganda
ráðstefnunnar að eins og flestar
flugferðir sem farnar eru innan
Evrópu, þá er lest sem að tekur
sex tíma eða minna, sem gengur
þessa sömu leggi.
Já, það er kannski rétt að benda
á að þessar loftslagsráðstefnur
eru flóknar samningaviðræður.
Og það eiga sér kannski ekki
stað flóknar samningaviðræður
á öllum loftslagsráðstefnum
en á þessari er um það að ræða.
Og það er mjög erfitt að gera
samninga án þess að fólk sé á
staðnum. Og þess vegna held ég
að margir hafi metið það þannig
að það sé miklu betra að vera á
staðnum.“ n
n Sérfræðingurinn
Sigurverkið
Arnaldur Indriðason1 Læknirinn
í Englaverksmiðjunni
Ásdíd Halla Bragadóttir
Sextíu kíló af kjaftshöggum
Hallgrimur Helgason
Gengið til rjúpna
Dúi J. Landmark
Horfnar
Stefán Máni
Bærinn brennur
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
Rætur
Ólafur Ragnar Grímsson
Úti
Ragnar Jónasson
Allir fuglar fljúga í ljósið
Auður Jónsdóttir
Þín eigin ráðgáta
Ævar Þór Benediktsson
2
3
5
7
9
8
10
6
4
Metsölulisti
Vikuna 27. október - 2. nóvember
Magnea Valdimarsdóttir
frumsýnir í dag sína fyrstu
heimildarmynd í fullri lengd.
Hvunndagshetjur fjallar um
fjórar ólíkar konur sem eiga
það sameiginlegt að hafa búið
á Íslandi í tuttugu ár.
odduraevar@frettabladid.is
„Ég fékk þessa hugmynd þegar ég
flutti heim til Íslands, þá safnaði ég
saman erlendum vinkonum mínum
og á alveg slatta af þeim á Íslandi og
náði einhvern veginn að byrja bara
einhvers konar rannsókn á því hvað
er að vera útlendingur á Íslandi,“
segir Magnea.
Myndin er frumsýnd í Bíó Para
dís klukkan hálf sex í dag. Þar fylgir
Magnea eftir þeim Karolinu Von
Mrozik Gliszczynska, Ayse Ebru
Gurdemir, Mariu Victoriu Ann
Campbell og Zinetu Pidzo Čogić.
Magnea segir þær mjög skemmti
legar og ólíkar týpur en þær eru
frá fjórum mismunandi löndum.
Magnea segist ekki eiga langt að
sækja innblásturinn.
Hún hafi sjálf enda verið útlend
ingur í öðru landi, búið á Spáni og í
Frakklandi og ferðast víða. „Og ein
hvern veginn fór ég að spá í þetta og
kannski líka út af auknum rasisma
og órétti sem erlendir upplifa á
Íslandi.“
Magnea segist ekki vita til þess
að nokkuð þessu líkt hafi verið gert
í kvikmyndum áður hér á landi.
„Þetta er umfjöllunarefni sem mætti
fjalla meira um,“ útskýrir hún.
„Ég hef gert stuttmyndir um
ósýnilegt fólk í samfélaginu, sem er
öryrkjar eða útlendingar eða fatl
aðir eða ýmislegir miðbæjarkarakt
erar,“ segir Magnea. „Þannig að
þetta er áframhaldandi áhugi á
sósíalrealisma og fólki sem fær oft
ekki mikla athygli en verður oft
fyrir miklu órétti en er æðislegir
karakterar og hefur rosalega mikið
að segja.“
Aðspurð hvað hafi staðið upp úr
eftir gerð myndarinnar segir Magn
ea á léttu nótunum að það hafi verið
ótrúlega krefjandi en gefandi og
lærdómsríkt ferli. „Og umræðan,
að vera útlendingur, þetta á við alla
og það er bara gaman að hún fái að
fæðast og lifa,“ segir Magnea.
„Og að við getum tekið þessa
umræðu um það hvað útlendingar
geta gefið inn í samfélagið með
komu sinni hingað, sama hvort það
er flóttafólk eða innflytjendur, hvað
þau geta auðgað menninguna og
verið mikið krydd í tilveruna.“
Hún segist hafa lagt upp með
stritmyndatöku í myndinni og að
leika sér með andstæður með tón
list Ólafar Arnalds. „Það er óhefð
bundið að vera með fjórar aðalper
sónur, svo þetta var krefjandi ferli
en virkilega gefandi og skemmti
legt.“ n
Varpar ljósi á hulda fólkið
Magnea segir þær Karolinu, Ayse, Mariu og Zinetu afar skemmtilegar og ólíkar týpur. MYND/AÐSEND
30 Lífið 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ