Fiskifréttir - 14.12.2001, Qupperneq 19
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001
19
Hornsílið gerir sér hreiður á botninum. (Teikning úr bókinni fsiensk-
ir ílskar).
grimmi samkeppni. Fóstrin liggja
laus í legi móðurinnar. Þegar
fóstrið er 6 cm langt er forðanær-
ing þess í kviðpokanum uppurin og
það fer að éta ófrjóvguð egg og lítt
þroskuð systkin sín. Við got er
unginn um 60 cm en 1-5 ungar
koma í heiminn í einu, þ.e. þeir
sem lifa af samvistir við systkin sín
í móðurkviði.
Tvískiptur göndull
Fiskar af skötuætt gjóta eggjum
sem eru í stórum ferköntuðum
hornhylkjum - pétursskipum - og
eru festiþræði í hverju horni.
Hængar eru minni en hrygnur.
Mökun hjá skötu á sér stað á vorin
og got að sumri. Egghylki eru 24
cm á lengd og 13 cm á breidd. Um
leið og frjóvgun á sér stað byrjar
hrygnan að mynda pétursskipið
utan um frjóvgað egg úr hvorum
eggjaleiðara fyrir sig og losar sig
síðan við pétursskipin tvö í einu. I
fyllingu tímans að nokkrum mán-
uðum liðnum syndir skötuseiðið
svo alskapað úr úr pétursskipinu.
Meðal náttúrufyrirbæra sem þeir
Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson
rannsökuðu á ferðum sínum um Is-
land á 18. öld voru kynfæri skötu
en þau voru þá enn lítt þekkt og
þótti mönnum þá undarlegt að
skötur skyldu hafa kynferðislegt
samræði eins og spendýr og það
meira að segja að hængurinn
skyldi hafa tvo æxlunarlimi, en
göndull hans er tvískiptur.
Rækjan tvíkynja
Hér hafa verið raktar helstu æxl-
unarleiðir fiska en rétt er að hafa í
huga að fleiri nytjastofnar eru á ís-
landsmiðum en fiskar. Skal hér í
lokin getið tveggja þeirra, rækju og
humars. Hegðun rækjunnar er
mjög sérkennileg því hún er kyn-
skiptingur frá náttúrunnar hendi.
Fyrstu árin er rækjan hængur en
eftir það breytast hængarnir í
hrygnur. Breytingin verður eftir 2-
Háfafæðing um borð í Bjarna Sæmundssyni. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar Marteinsson),
4 ár hér við land en þetta er mis-
jafnt eftir hafsvæðum; í Skagerak
er rækjan hængur fyrstu 2 árin en
fyrstu 4 árin við Grænland. Mökun
fer fram á haustin. Hængarnir
sprauta sæðinu með því að leggja
líkamann að hrygnunni og sæðið
festist á milli tveggja öftustu gang-
lima hennar. Skömmu síðar hrygn-
ir hún. Þau egg sem frjóvgast verða
límkennd og hún festir þau á sund-
fæturnar. Hrygnan ber 1-3 þúsund
egg milli fótanna allan veturinn á
grunnslóð og í Norðursjó og allt að
10 mánuðum á djúpslóð fyrir norð-
an ísland. Eggin klekjast á vorin.
Mökun á sér stað þegar skel hrygn-
unnar er lin og geta fleiri en einn
hængur átt mök við hverja hrygnu.
Rækja hrygnir yfirleitt einu sinni á
ári en annað hvert ár á köldustu
svæðunum.
Humarinn hrygnir hér við land
annað hvert ár. Mökun á sér stað
rétt eftir skelskiptingu hrygnunnar
urn sumarið. Hængurinn notar
fremstu halafæturnar sem lim og
sprautar sæði í sérstaka sæðis-
geymslu í búk hrygnunnar. Þar
geymir hún sæðið yfir veturinn.
Hrygning og frjóvgun á sér stað
næsta sumar. Hrygnan leggst þá á
bakið og eggin Kmast við halafæt-
urna. Eggin klekjast á 8-9 mánuð-
um.
(Heimildir: Islenskir fiskar eftir Gunnar
Jónsson, Fjölvaútgáfan, Reykjavík
1992. Fiskar og fiskveiðar, handbók
frá Máli og menningu, Jón Jónsson og
Gunnar Jónsson þýddu og staðfærðu,
Reykjavík 1999. The Icelandic Capelin
Stock eftir Hjálmar Vilhjálmsson,
Hafrannsóknastofnunin, Reykjavík
1994. Samtöl við fiskifræðinga hjá
Hafrannsóknastofnuninni.)
| Afgas og kctilkerfl
vatnshlið
OBWT -3 Organk
OBWT -4 Orgmlc
Afgas og ketilkerfi
(turbina)
lAir cooler deaner
Tölvustýrður stillibekkur fyrir
ALLAR gerðir af olíuverkum
Tramtaí véfa-og sfipaýjónusta
og Tramtaíz - ‘BÍossí
ósfa öffum víðsfíptavínum sínum
gfecfífegrajófa, árs ogjríðar,
zfa víðsfíptín á árínu sem er að fíða
PUMPS
FRAMTAK
RAMTAK
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA ehf
Drangahrauni l-lb Hafnarfjörður
Sími: 565 2556 • Fax: 565 2956
Netfang: i n f o @ f r a m t a k. i s
Heimasíða: http://www.framtak.is
Drangahrauni l-lb Hafnarfjörður
Sími: 555 6030 • Fax: 555 6035
Heimasíða: http://www.framtak.is
OU þjónusta fyrir dieselvélar ó einum stad
CJC OIL FILTER SYSTEMS, SHIP WIND0WS, AND METAL CASTINGS
Alltaf fjölgar Framtaks(MKG)krönum
MMXm