Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 21

Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 21
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001 21 ÆXLUN FISKA TEXTI: KS Tilraun í Náttúrugripasafni Vestmannaeyja: Leiddi í Ijós innri frjóvgun steinbíts Umhyggja. Steinbítshrygnan hringar sig um eggin og gætir þeirra fyrstu einn til tvo dagana eftir hrygningu. Eftir það tekur hængurinn við og gætir eggjanna þar til þau klekjast út. (Ljósmyndir: Sigurgeir Jónasson, Vestmannaeyjum). í Náttúrugripasafni Vest- mannaeyja fór fram merkileg til- raun árið 1991 er fylgst var með mökun og hrygningu steinbíts. Það voru þeir Gísli Jóhannes Oskarsson líffræðikennari í Vest- mannaeyjum og Kristján Egils- son forstöðumaður safnsins sem stóðu að þessari tilraun. Gísli kvikmyndaði allt atferlið og Sig- urgeir Jónasson ljósmyndari festi það einnig á fiimu. Að sögn Kristjáns og Gísla tók þetta atferli frá því hrygnan var komin að hrygningu og þar til hún var búin að ganga frá hrognunum við botninn um 18 klukkustundir. Það vildi svo til að hrygnan sem fylgst var með var hvít á lit en al- binóar þekkjast jafnt meðal fiska sem annarra dýra. I fyrstu voru steinbítarnir saman innan um aðra fiska bæði af sömu tegund og af öðrum tegundum. Fylgst var með því þegar hrygnan var komin að því að hrygna og ákveðinn hængur var farinn að dragast að henni. Þá voru þau tekin og aðskilin frá hin- um fiskunum og sett tvö ein í búr. Ekki þurfti að bíða lengi þar til mökun hófst og stóð hún yfir með stuttum hléum nær samfellt í 6 klukkustundir. Veltust þau hvort um annað með miklum tilþrifum. Var hængurinn ýmist ofan á eða undir en hrygnan var þó orðin það sver að hún valt oft til hliðar. Gotraufarnar lágu þétt saman og var talið að hængurinn losaði svilin inn í hrygnuna með því að sprauta þeim í nokkrum skömmtum. Tald- ist mönnum til að hængurinn hefði frjóvgað hrygnuna 15-20 sinnum á þessum tíma. Eftir hvert frjóvgun- arferli, sern stóð yfir í 3-4 mínútur og líktist helst dansi, virtist hæng- urinn vera alldasaður og tók hann sér góða hvíld. Ekki var séð að hængurinn notaði lim við mökun- ina en það var þó eins og smátota stæði rétt í raufaropinu að sögn sjónarvotta. Hvernig sem því við- víkur þá átti sér stað innri frjóvgun. Frá mökun og fram að hrygningu fóru kippir um kvið hrygnunnar eins og hún væri að blanda saman hrognum og svilum til þess að frjóvgunin tækist sem best. Að 4-8 tímum liðnum var komið að goti og komu frjóvguð eggin út eitt af öðru og héngu þau saman í slími. Hrygningin tók um 15 mín- útur. Þegar hrygningu var lokið þjappaði hrygnan eggjunum saman og bjó til kúlu á stærð við hand- bolta sem hún hringaði sig utan um. A sama tíma harðnaði slímið þannig að lögun kúlunnar hélst óbreytt út klaktímann. Fyrstu tvo sólarhringana eða svo gætti hrygn- an eggjanna en eftir það tók hæng- urinn við. Hann gætti þeirra þar til þau klöktust út. Eggjafjöldi hjá steinbít er ekki tiltakanlega mikill. Talning eggjanna leiddi í ljós að fjöldi þeirra er nokkuð breytilegur, eða frá 700 eggjum upp í 6000 egg. Meðaltalið var um 2260 egg sam- anborið við það að væn þorsk- hrygna getur gefið af sér allt að 6 milljónir eggja. Tilgangur rannsókanna var að festa þetta atferli á filrnu en það kom mönnum verulega á óvart að þegar í ljós kom að steinbíturinn fjölgar sér með innri frjóvgun. Gísli og Kristján sögðu að líklega hefðu Norðmenn búið yfir þessari þekkingu en þeim var ekki kunnugt um að þessi þekking hefði yfirleitt verið tiltæk íslenskum fiskifræð- ingum á þeirn tíma. (Stuðst við óbirta lýsingu Gísla J. Oskarssonar). Forleikur á milli hængs og hrygnu áður en mökunin byrjar. Allt á fullu. Hængurinn og hrygnan veltast um með mikl- um tilþrifum. Saman fyrir hrygningu. Hrygnan er orðin nijög sver eins og sjá má.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.