Fiskifréttir - 14.12.2001, Síða 22
22
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001
ÆXLUN FISKA
Þorskur á íslandsmiðum:
Getur makast annan eöa þríöja
hvern dag á hrygningartímanum
— rætt við Guðrúnu Marteinsdóttur, prófessor og fiskifræðing á Hafrannsóknastofnunni
Meðfylgjandi myndir tók Erlendur Bogason kafari í Þistilfirði sl. vor og sýna þær mökunarferli þorsks
þar sem hængur og hrygna snúa kviðum saman. Myndin hér að ofan er tekin af myndbandi og framhald-
ið sést í myndaröðinni hér að neðan.
Þorskurinn er mikilvægasti
nytjastofn á Islandsmiðum og
þjóðin á mikið undir vexti hans
og viðgangi. Mökun þorsks hefur
lítið verið rannsökuð en þó hafa
fræðimenn nú á tímum nokkuð
glögga hugmynd um hvernig hún
fer fram í aðalatriðum. Guðrún
Marteinsdóttir, prófessor og
fiskifræðingur á Hafrannsókna-
stofnunni, hefur rannsakað
hrygningu og klak þorskseiða og
er manna fróðust um atferli
þorsksins í því flókna ferli sem á
sér stað allt frá því hrogn fara að
þroskast þar til seiðin eru komin
á uppeldisslóð.
„Þorskurinn verður kynþroska á
mjög breiðu aldursbili, frá 3 ára
aldri allt til 8 ára aldurs. Stærð
ftsksins og ástand hafa mikið um
það að segja hvenær hann verður
kynþroska. Þannig er kynþroska
þorskur bæði stærri og í betra ástan-
di en ókynþroska þorskur á sama
aldri,“ sagði Guðrún í samtali við
Fiskifréttir. „Þorskurinn byrjar að
ganga í átt að hrygningarstöðvunum
við suður- og suðvesturströndina
síðla vetrar en í raun og veru má
segja að undirbúningur hrygningar-
innar sé hafinn strax að hausti. I
október og nóvember hefjast breyt-
ingar í hrognasekkjunum, m.a. með
upptöku næringarefna. Þegar í des-
ember eru hrognin farin að þroskast
en þau taka eggjahvítu og fitu til sín
alveg fram að hrygningu.
Þeir gömlu í forystu
Fram kom hjá Guðrúnu að ekki
væri nákvæmlega vitað hvernig
fari þorsksins er háttað á hrygn-
ingaslóðirnar, í hvernig flokkum
fiskarnir hópa sig og hvernig þeir
eru samsettir. Kanadamenn hafa
rannsakað þetta hjá sér og hafa séð
í sumum tilfellum að ftskurinn
ferðast um í flokkum og er jafnvel
talið að gömlu þorskarnir séu í for-
ystuhlutverki. „Nú veit ég ekki
hvort þessu er þannig farið í ís-
lenska þorskstofninum en það er
hugsanlegt að svipað eigi sér stað
hér. Það er heldur ekki vitað hvern-
ig þorskar finna hrygningarstöðv-
arnar og við vitum ekki með nein-
ni vissu hvaða atferli fer í gang
þegar þorskurinn er kominn þang-
að sem snýr að hrygningunni. Eg
held þó að hrygning hefjist tiltölu-
lega fljótlega eftir að þeir eru
komnir á slóðina. Það hefur verið
athugað í tilraunaeldisstöð hvernig
pörun og hrygning þorsks fer fram
og þar hefur fengist mikill fróð-
leikur um atferli hans að þessu
leyti og við gerum ráð fyrir að það
endurspegli það sem á sér stað í
náttúrunni," sagði Guðrún.
Spinna sig upp
tugi metra
Þorskurinn hrygnir oft í ljósa-
skiptunum. Nokkru áður en hrygn-
ing á sér stað eru hængur og
hrygna farin að synda hlið við hlið
og þrýsta kviðunum saman af og
til. Sjálfur pörunin hefst með því
að þau snúa sér saman nokkrum
sekúndum áður en hrygning á sér
stað. Þau klessa þá kviðum saman
og hængurinn tekur utan um
hrygnuna með eyruggunum.
Gotraufarnar liggja þétt saman til
þess að auka líkurnar á því að
hrognin frjóvgist. Þrýstingurinn er
svo mikill að fiskarnir verða nær
flatir og þeir spinna sig upp í mikl-
um hamagangi í einskonar spíral.
Þegar þessi leikur nær hámarki
sprautast hrogn og svil út á sama
tíma og eru hvað innan um annað.
Svilin eru ein fruma með smáhala
og ef þau finna hrogn verður sam-
runi eggs og sæðis eins og hjá
manninum.
„Þegar þessi leikur hefst eru
hængurinn og hrygnan laus frá
botninum og ég hugsa að við nátt-
úrulegar aðstæður spinni þau sig
nokkra tugi metra upp í vatnssúl-
unni.Við tókum einnig eftir því í
þessari tilraun að meðan mökun fór
fram syntu nokkrir hængar í kring
um parið og þegar hrognin komu út
í sjóinn syntu þeir inn í hrogna-
kássuna og sprautuð sviljum yfir
allt. Það var eins og þeir væru að
reyna að frjóvga eitthvað af þeim
hrognum sem hugsanlega höfðu
ekki frjóvgast.“
Hrygnt í slöttum
Þorskurinn hrygnir við suður-
ströndina frá mars og fram í maí.
Bæði hængar og hrygnur tæma sig
ekki í fyrsta skiptið og eru að losa
sig við svil og hrogn á mislöngum
tíma. Hængurinn gerir aðeins hluta
af sviljunum tilbúinn og framleiðir
þann vökva sem þarf til að sprauta
þeim út með í hvert skipti. A sama
hátt losa hrygnurnar sig aðeins við
hluta hrognanna við hverja hrygn-
ingu. Um það bil sólarhring áður
en hrygning á sér stað fer þessi
hluti hrognanna að draga til sín
vökva úr hrognasekkjunum.
Þannig tvöfalda hrognin stærð sína
áður en þau eru tilbúin til frjóvgun-
ar. Hrygnan myndi ekki lifa það af
ef öll hrognin drægju í sig vökva í
einu þar sem ekki væri pláss fyrir
öll fullþroskuðu hrognin í hrogna-
sekknum. Ef hrygnan er stór og
með mikið af hrognum í sér getur
það tekið hana allt upp í tvo mán-
uði að hrygna. Hún er þá að losa
sig við hrognin í 20-30 slöttum
þannig að ástarleikir hennar hæng-
anna eiga sér stað annan eða þriðja
hvern dag á hrygningartímanum.
Varnarhimna á eggin
Fljótlega eftir hrygningu verða
efnabreytingar í ysta lagi hrognsins
sem gera það m.a. að verkum að
það verður ógegndræpt. Þessi hlíf
utan um eggið gerir því kleift að
lifa í breyttu umhverfi því seltu-
hlutfall í sjónum er öðruvísi en í
kviði hrygnunnar. Svil komast ekki
inn í hrognin eftir að þau hafa
myndað þessa vamarhimnu. Þess
vegna verður frjóvgun að eiga sér
stað á fyrstu mínútunum eftir
hrygningu. I þeim tilraunum sem
gerðar hafa verið er það mjög
breytilegt hve stór hluti hrognanna
frjóvgast við mökun. Einnig verður
að taka með í reikninginn að ekki
lifa öll egg sem frjóvgast. í til-
raunaeldisstöðinni drápust frá 10%
eggjanna upp í að meira eða minna
leyti öll eggin á klaktímanum.
Hvort slíkt gerist í náttúrunni er
ekki vitað en þó talið að mikill
fjöldi eggja fari forgörðum.
Rekið mikilvægast
Eggin eru um 1,2-1,6 mm að
stærð og þau eru laus hvert frá öðru.
Þau eru eðlisléttari en sjór og fljóta
því strax upp. Ef sjór er mjög fersk-
ur, t.d. í árósum, eru þau alveg uppi
við yfirborðið. Ef sjór er fullsaltur
eru þau á 15-20 metra dýpi. Hrogn-
in rótast síðan í efstu lögum sjávar
eftir veðri og vindum. Þar þroskast
þau og undirbúa sig undir klakið en
það tekur um 2 vikur hjá hrognum í
7°C sjávarhita sem er algengt á Sel-
vogsbanka á vorin. í kaldari sjó tek-
ur klakið lengri tíma. Þegar eggin
verða fullþroska og lirfan vel mótuð
inni í þeim á klakið sér stað.
Lirfurnar eru einnig eðlisléttari en
sjórinn og eru þær því sömuleiðis í
efstu lögum sjávar. Fyrstu vikurnar
eru lirfurnar leiksoppar örlaganna
að því leyti að vindar og straumar
stjórna ferðum þeirra.
„Við teljum í raun og veru að
flutningur á hrognum og lirfum af
hrygningarslóð inn á uppeldissvæð-
in út af Norðurlandi hafi hugsanlega
einna mest áhrif á styrk hvers ár-
gangs. Ef rekið heppnast má vænta
þess að nýliðunin verði góð. Hins
vegar getur margt farið úrskeiðis.
Straumar geta borið eggin og seiðin
suður á bóginn þar sem þau hafa
ekki skilyrði til að lifa. Stór hluti
getur einnig borist að ströndum
Grænlands en þau geta lifað þar ef
skilyrði eru góð. Sá þorskur sem
vex upp af þeim kemur þá aftur til
Islands sem fullorðinn fiskur til
þess að hrygna,“ sagði Guðrún.