Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 43

Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 43
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001 43 una. En út um efri kranann rann lýsið. Ekki þótti vera fullsoðið í kötlunum fyrr en lýsi hætti að koma úr þeim. Það tók 18-20 klukkustundir að sjóða kjötið. En allt að því sólarhringinn að sjóða beinin, og var þó alltaf 60-70 punda dampur á, á máli kyndar- anna. En þá voru beinin líka orðin svo meyr, að það var hægt að mylja þau í lófa sínum og í katlinum hafði lækkað allt að því um helm- ing. Uppi á loftinu var mikið gólf- rými, enda þurfti þess með, þegar kominn var þar stór hvalsskrokkur, og margir menn að starfi. Meðfram útveggjum voru katlarnir í röðum og komu opin aðeins upp úr gólf- inu, ásamt loki. Var það einna lík- ast og ef askop kæmi upp í gegnum borðplötu aðeins með barmana og lokið." Magnús getur þess að kjöt af meðalstórum hval hafi fyllt tvo katla af stærri gerðinni en bein úr þremur hvölum hafi þurft til að fylla beinaketilinn. Síðan segir hann: „Það unnu alltaf tveir menn við hvern ketil. Fóru ofan í til skiptis, því að engum var unnt að vinna lengi í einu niðri í heitum katli. Þegar suðumaðurinn var búinn að hleypa mestu gufunni út, tókum við að skrúfa laus lokin uppi og niðri og opna ketilinn. Streymdi þá upp sjóðandi gufa fyrst á eftir, svo að varla var komandi nálægt götun- um. Við fórum þó svo fljótt sem hægt var, að braska við að krækja upp plötum, sem lágu í lögum í katlinum. Vöru þær lagðar jafnóð- um og látið var í ketilinn og skipt- ist rúmið þannig í nokkur hólf, annars hefði kjötið ekki soðnað. - Við höfðum langa járnkróka til að krækja í plöturnar og draga þær upp. Urðu þeir svo heitir að ekki var unnt að halda um þá nema að hafa tusku í höndunum til að hlífa sér við hitanum. Þegar við höfðum krækt það miklu upp af plötum, að sambandið var fengið við efra opið undir gólfí, fór annar niður til að raka út, því sem hægt var að ná til, með skaftlangri tindaröku. Að því búnu varð að fara ofan í til að moka út, notaði maður við það bæði kvísl og skóflu. Kjötið var oftast í sam- felldri kássu, sérstaklega þegar það var af gömlum skrokkum, eins og oft var þetta sumar, því að það veiddist svo mikið að skrokkarnir söfnuðust fyrir. Þegar maður fór að róta í þessu, stigu upp hitabylgjur, svo að mann sveið í andlitið og stundum einnig í líkamann, í gegn- um fötin. Við blotnuðum fljótt af svita og gufu og tók þá að renna í augun, og fylgdi því sár sviði, svo að maður varð að halda augunum aftur öðru hverju. Þegar maður hafði unnið þannig eins og 10 mín- útur, var maður að þrotum kominn og varð að fara upp úr til að kæla sig, fór hinn þá ofan í, og þannig gekk þetta sitt á hvað, þar til ketil- inn var tómur. - Ekki þurftum við alltaf að fara í katlana svona heita, en það var samt allt of oft. Þegar við höfðum lokið dagsverkinu, sem venjulega var um nónbilið, fórum við inn til kyndaranna (í fýr- HVALVEIÐAR húsið) til að hafa fataskipti. Fórum þar úr hverri spjör og kæddum okkur aftur í þurr föt, sem biðu þar SJÓVÁ-ALMENNAR flncs *• l the BIG VISH will be there! 4 ^ fejnfí imiib Lzœumxjotsiijb i resi tmxu 95% Sýningarrýmis þegar pantað Sýningin hefur sífellt farið stækkandi á 20 ára ferli Metárið 1999 voru gestir 16.993 og sýnendur 851 Sýningin 2002 verður haldin í nýju knattspyrnuhöllinni og ► í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi. íslensku sjávarútvegsverðlaunin verða afhent á hátíðarkvöldi á Broadway - enn er hægt að gerast stuðningsaðili að hátíðinni Að íslensku sjávarútvegsverðlaununum standa tímaritin World Fishing og Fiskifréttir Stuðningsaðili: Sjóvá-Almennar. Frekari upplýsingar um sýningarrými, gestakomur og hátíðarkvöld veitir: Marianne Rasmussen-Coulling tel: +44 1962 842 950 fax: +44 1962 842 945 email: marianne.nexus@btinternet.com Bjarni Thor Jonsson tel: 354 567 6004 gsm: 354 896 6363 email: bjarni@icefish.is !*•* S* ■ eða skoðið heimasíðu okkar www.icefish.is Fiski HHíii'ií 0FFICIAL ICELANDIC PUBUCATION OFFlCIAL INTERNATIONAL PUBLICATI0N N E X U S COMMERCIAL FI5HING EVENTS 0RGANISER ICELANDAIR 0FFICIAL AIRLINE AWARDS SP0NS0R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.