Fiskifréttir - 14.12.2001, Page 53
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001
53
FRETTIR
Nýja hafrannsóknaskipið í smíðum hjá Ferguson skipasmíðastöðinni
í Skotlandi.
Naust Marine:
Afgreiöir aiian vindu
búnaö í skoskt
hafrannsóknaskip
Ferguson Shipbuilders Ltd. í
Skotlandi hafa pantað hjá Naust
Marine allan vindubúnað fyrir
nýtt hafrannsóknaskip sem
Ferguson er að smíða fyrir
CEFAS hafrannsóknastofnunina
í Skotlandi.
Um er að ræða 8 sérhæfðar kap-
alvindur fyrir allt að 24 iínu kapal
með 3 ljósleiðurum fyrir rann-
sóknatæki, auk ATW togvindukerf-
is og hefðbundinna hjálparvinda.
Að sögn forráðamanna Naust Mar-
ine náði fyrirtækið þessum árangri
þrátt fyrir harða samkeppni við
helstu vinduframleiðendur heims.
Verðmæti samningsins er um 130
milljónir króna en jafnframt hefur
Naust Marine í vinnslu fleiri er-
lendar pantanir upp á rúmlega 200
milljónir króna samtals.
Kraninn á bryggjunni í Grindavík.
Samherji - Fiskimjöl & Lýsi:
Nýr löndunar-
krani í Grindavík
Athygli ehf:
Sjó-
manna-
almanak
2002
Athygli ehf. hefur sent frá
sér Sjómannaalmanakið 2002,
en þetta er í 77. skipti sem þessi
handbók kemur út. Hún er í
tveimur bindum, annars vegar
hefðbundið almanak og hins
vegar skipa- og hafnaskrá.
I almanakinu eru m.a. flóða-
töflur, vitaskrár, sjómerkjaskrá,
sólartöflur og aðrar nauðsynlegar
upplýsingar fyrir sjófarendur. I
skipa- og hafnaskránni eru ítar-
legar upplýsingar um íslenska
skipaflotann með myndum ásamt
upplýsingum um kvóta, útgerðir,
hafnir, þjónustuaðila o.fl. Þá
fylgir með geisladiskur með
skipa- og hafnaskránni og er
hægt að fá sendan uppfærsludisk
með nýjustu upplýsingum fjór-
um sinnum á árinu 2002.
Nýlega var tekinn í notkun öfl-
ugur löndunarkrani við fiski-
mjölsverksmiðju Samherja hf. í
Grindavík. Kraninn er fram-
leiddur af fyrirtækinu ACTA í
Danmörku, en umboðsaðili þess
á Islandi er Framtak véla- og
skipaþjónusta í Hafnarfirði.
Kraninn er afar stór, tæpir 12
metrar á hæð og með 20 metra
langri bómu. Hann er útbúinn
þráðlausri fjarstýringu, sem gerir
stjórnanda hans mögulegt að vera
um borð í því skipi sem verið er að
landa úr og stjórna honum því af
fyllstu nákvæmni. Á honum eru
tvö glussaspil fyrir ftskidælu og
flutningsbarka og dælustöð er inn-
byggð í undirstöðu kranans.
Vegna stærðar sinnar nýtist
kraninn við löndun úr jafnvel
stærstu fiskiskipum og segir Oskar
Ævarsson rekstrarstjóri Samherja í
Grindavík að tilkoma kranans sé
geysimikilvæg viðbót við tækja-
búnað verksmiðjunnar og auðveldi
mikið alla vinnu við löndun.
Starfsmenn Fiskimjöls & Lýsis og
Framtaks sáu í sameiningu um
uppsetningu kranans.
Myndin var tekin eftir að samningur hafði verið undirritaður. Frá
vinstri: Árni Möller efnaverkfræðingur, Per Törnqvist frá Interna-
tional Paint, Birgir Mikaelsson sölumaður og Omar Gunnarsson
efnaverkfræðingur.
Harpa Sjöfn:
Áfram meö Inter-
national málningu
Þegar málningarverksmiðj-
urnar Harpa og Sjöfn sameinuð-
ust þann 1. september sl. og til
varð Harpa Sjöfn hf. var hið
sameinaða fyrirtæki bæði með
umboð fyrir Sigma og Interna-
tional skipamálningu. Ljóst var
að ekki gengi að þjóna báðum
þessum framleiðendum og varð
niðurstaðan sú að ákveðið var að
vinna með International. Var
samstarfssamningur fyrirtækj-
anna undirritaður á Islandi í lok
síðasta mánaðar.
Samningurinn miðast við að
Harpa Sjöfn hf. veiti íslenskum
sjávarútvegi og öðrum skipaeig-
endum hámarksþjónustu í sam-
ræmi við alþjóðlega staðla Interna-
tional en fyrirtækið er með þjón-
ustunet um allan heim. Internation-
al Paint er stærsti framleiðandi
skipamálningar í heiminum með
um þriðjung heimsmarkaðarins.
Ráðgjöf og sérfræðiþjónusta stend-
ur viðskiptavinum Hörpu Sjafnar
hf. til boða í söludeildum félagsins
bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Sjómannaalmanak Skerplu 2002
Sjómannaalmanak Skerplu
2002 er komið út. I bókinni eru
rúmlega eitt þúsund litmyndir af
íslenskum skipum auk tækni-
legra lýsinga á þeim. Myndirnar
eru fieiri en áður og upplýsingar
um skipin ítarlegri.
Skipaskráin er í tveimur hlutum,
annars vegar þilfarsskip og hins
vegar opnir bátar. Auk skipaskrár-
innar er bókin fullgilt íslenskt sjó-
mannaalmanak. í bókinni er m.a.
að finna kafla um aflaheimildir,
hafnir, kort, sjávarföll, vita, fjar-
skipti, veður, öryggi, siglingar og
lög og reglur. Bókinni fylgir marg-
miðlunardiskur sem hefur að
geyma skipaskrána, hafnaskrána
og gular síður með fjölmörgum
tengingum.
SJÓMAIMIMA
RALMANAK
ffSis
m sinum
wtamonnum
man