Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 23

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 23
Ljósá stimpil sem opnaði og lokaði fyrir aðrennslispípuna. Hverfíll og rafali voru ástengdir. Rafalinn var fyrir jafnstraum, með fjórum pólum, afl 26 kW, spenna 2 x 115 V. Hann var frá fyrirtækinu a/s Elektrisk Bureau, Oslo. í prentuðum heimildum hefur rafalinn ítrekað verið sagður 15 kW, þ.e. mun minni en hverfíllinn. Það er ekki rétt og er villan komin úr annars ágætri grein eftir Amþór Jensen frá árinu 1951, þar sem virkjuninni var í fyrsta skipti lýst nákvæmlega á prenti. Ekkert hefur varðveist af upphaflegu véla- samstæðunni. Rafmagnstöflu var komið fyrir á vegg, þar sem hún er enn. Hún er úr marmara, merkt Elektrisk Bureau, þ.e. sama aðila og framleiddi rafalinn. Einn hinna upphaflegu mæla á töflunni var voltmælir, sem sýndi spennuna út og varð mesta spennufall 20 V. Enginn mælir sýndi útsendan straum. Nú em þrír mælar á töflunni og em tveir þeirra sennilega frá upphafsámnum. Eftir að uppsetningu vélanna lauk fékk Halldór Guðmundsson vélstjórana á gufuskipinu Botníu, sem var á Eskifirði um það leyti, til að taka þær út og einnig yfírfara frágang í töflu. Að því loknu hvarf Halldór á braut.10 Raflínur vom lagðar um þorpið sumarið 1911. Náðu þær frá Mjóeyrarvík og inn að Bröttuhlíð eða um 2 km. Húsin stóðu við eða stutt frá aðalgötu bæjarins, Strandgötu, og hafa flestar heimtaugar verið teknar beint frá línunni sem lögð var meðfram henni. Götuljós, sem voru um tuttugu talsins, hafa sömuleiðis flest verið við Strandgötu. Þar sem um var að ræða jafnstraumsvirkjun voru engir spennar í kefínu. Spennan var alstaðar 115 V. Ráðinn var maður til þess sérstaklega að leggja húsarafmagnið. Var það Indriði Helgson sem nýlokið hafði námi í rafvirkjun. Hann var að störfum allan næsta vetur og fram á sumarið 1912. Halldór Guðmundsson hafði eftirlit með störfum hans meðan hann var á staðnum. Fimmtudaginn 30. nóvember 1911 var byrjað að hleypa straumi á Rafveitu Eskifjarðar. Fyrst var kveikt á götu- ljósunum. Tveimur dögum síðar fengu all- nokkur hús rafmagn og enn fleiri hús á sunnudeginum. Mánudaginn 7. desember var straumur kominn á alstaðar þar sem lögnum var lokið og reyndist allt vera í góðu lagi. Þar með tók Rafveita Eskiíjarðar formlega til starfa, sú fyrsta á íslandi sem náði til heils sveitarfélags. Heimildir greina ekki frá opinberum veisluhöldum í tilefni þessa merka atburðar. En ekki leikur vafí á að rafmagninu hefur verið vel fagnað.11 Tímamót í rafsögunni Gætt hefur tilhneigingar til að gera fremur lítið úr þeim sögulegu tímamótum sem þarna urðu. Jakob Gislason raforku- málastjóri skrifaði til að mynda yfírlitsgrein árið 1964 sem hann nefndi „Þróun rafveitu- mála á íslandi.“ Þar telur hann upp 38 kaupstaða- og kauptúnarafveitur sem hafí verið byggðar á árunum 1904-1934. Sú fyrsta hafí komið i Hafnafirði, 1904, sú næsta á Eskifirði 1911, sú þriðja á Siglufírði 1912 (reyndar 1913), sú fjórða á Seyðisfírði 1913 (reyndar nr. þrjú) o.s.frv. en gerir ekki umtalsverðan greinarmun á þeim. Þessar rafveitur voru æði ólíkar, höfðu nánast það eitt sameiginlegt að vera staðsettar í þéttbýli. Rafveitan í Hafnarfírði náði t.d. aðeins til 16 húsa árið 1904, sem var vel 10 Kristján Kristjánsson viðtal, vettvangskönnun höfundar 2003, munaskrá RARIK: MR 7.305, Tilkynning um raforkuveitu 1930 og 1935, Amþór Jensen 81. H Tilkynning um raforkuveitu 1930 og 1935, Amþór Jensen 80-81, Rafvirkjatal 500, Austri 1911 s. 173. 21
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.