Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Qupperneq 29
Ljósá
sparlega með rafmagnið. Þó að ekki sé unnt
að meta árangurinn nákvæmlega er ljóst að
hann hefur verið umtalsverður. Rafveitan
lagði til mælana endurgjaldslaust og voru
þeir settir alstaðar nema í útihús, sjóhús og
heimili með mjög litla ljósanotkun.
Nýju straummælamir virtust vandræða-
gripir. Þeir voru prófaðir á tveggja ára fresti
og ekki varð betur séð en að skekkja væri í
stórum hluta þeirra. Biluðu mælamir vom
sendir út til viðgerðar en komu stundum
jafn skakkir aftur. Því var það að rafveitan
tók að kaupa mæla frá öðru fyrirtæki. En
sennilega voru mælamir sjálfir ekki skakkir
heldur mælingin, þ.e. að leitt hafi verið
framhjá þeim, eins og frekar verður vikið
að síðar.
Eftir að mælamir komu til sögunnar var
farið í hvert hús mánaðarlega, lesið af þeim
og gjöld innheimt í leiðinni. Þetta kallaði á
talsvert meiri vinnu en áður hafði tíðkast og
skiptu nefndarmenn henni með sér í byrjun.
Það fyrirkomulag varaði þó stutt og var
maður ráðinn til að annast álestur og
innheimtu gegn 5% þóknun. Arið 1930
hafði formaður rafveitunefndar, Jón Valdi-
marsson bamakennari, tekið að sér mæla-
lestur, innheimtu og bókhald og fékk fyrir
það kr. 800,- yfir árið.
Árið 1921 yfirfór Eiríkur Ormsson
einnig raflínur utandyra, strengdi þær
flestar upp á nýtt, og lagaði heimtaugar.
Ennfremur hafði hann umsjón með endur-
bótum á stífluveggjum Ljósárvirkjunar sem
höfðu stórskemmst þá um sumarið af
völdum vatns- og aurhlaups í ánni. Líklega
hefur stíflan verið hlaðin upp að nýju að
stórum hluta með sama grjóti og notað
hafði verið í upphafi. Enn var ekki bmgðið
á það ráð að færa stífluna ofar í ijallið.20
Barnmörg fjölskylda - starfslýsing
Jónasar
Jónas rafveitustjóri eignaðist níu böm með
konu sinni, Margréti Pálsdóttur. Því fylgdu
naum íjárráð og kom það frarn í því að bæði
vom þau snemma hlynnt starfi verkalýðs-
félaganna á staðnum. Verkamannafélagið
Árvakur var stofnað árið 1916 og gekk
Jónas í það strax á fyrstu ámm þess eins og
flestir verkamenn á staðnum. Verkakvenna-
félagið Framtíðin var stofnað árið 1918.
Margrét gekk í það á öðrum fundi þess og
var kjörin gjaldkeri árið 1921.21
Árið 1928 var gerður nýr starfs-
samningur við Jónas. Þar er lýst þeim
störfúm sem honum var ætlað að sinna.
Samningurinn var á þessa leið:
1. Stöðvarstjóri skal hafa kr. 2200,- í árslaun.
2. Skylt er honum að hafa á hendi alla gæslu
og hirðing stöðvarinnar og raf-tauganna.
3. Nú stöðvast vélamar af einhverjum
ástæðum um lengri tíma og skal þá stöðvar-
stjóra skylt að vinna fyrir rafveituna þau störf
er hann getur án sérstaks endurgjalds.
Sérstaklega skal tekið fram að honum ber að
hreinsa krap úr þrónni og ristinni þegar þörf
krefur.
4. Kveikja skal þegar bregða tekur birtu og
loga til kl. 2 að nóttu. Að morgni skal kveikja
eigi síðar en kl. 6.30. Frá 22. des. til 2.
janúar, að báðum dögum meðtöldum, skal
loga allar nætur án sérstakrar aukaþóknunar
til stöðvarstjóra.
5. Nú óskar einhver ljósa utan hins ákveðna
ljósatíma og skal stöðvarstjóra skylt að láta
það í té gegn sérstakri þóknun frá
ljósbeiðanda.22
20
21
22
Arnþór Jensen 82, Tilkynning um raforkuveitu 1930 og 1935, Fundargjörðabók Rafveitunefndar 8.10. 1922.
Einar Bragi: Verkalýðshreyfingin 42 og 225.
Fundargjörðabók Rafveitunefndar 12.10. 1928.
27