Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Síða 59
Minningabrot
Ibúðarhúsið á Þórarinsstöðum. Eigandi myndar: Erla
Ingimundardóttir.
eldhúsinu. Fólkið var þama líka við
sína innivinnu s.s. sauma- og
prjónaskap. Þarna inni var stór
veggklukka, mjög falleg. Pabbi
sagði mér að hún hefði slegið eins
og Ráðhúsklukkan í Kaupmanna-
höfn. Eitthvað hafði slagverkið
verið ruglað í viðgerð á klukkunni,
hún sló ekki lengur á 15 og 45
mínútum, bara á heilum og hálfum
tímum. Ég man að hljómurinn var
mjög fallegur þegar hún sló. A
þessa klukku lærði ég þegar mér var
kennt að þekkja á klukku.
í baðstofunni var orgelið hans
Tóta. Þar var oft safnast saman og sungið.
Oft stóðum við Þórunn hjá Tóta þegar hann
var að spila og sungum með. Við lærðum þá
mikið af vísum og lögum. Kolaofn var til
upphitunar.
Þegar komið var inn í stofuna voru tvö
herbergi á hægri hönd var annað svefn-
herbergi Finnu en hitt svefnherbergi
Sigurðar. A veggnum á móti eldhús-
dymnum vom dyr inn í aðra stofu.
Þá er komið inn í nýrri hluta hússins.
Þessi stofa sem nú er komið inn í var kölluð
borðstofa, en þar inni var stórt borðstofu-
borð og stólar í stíl við það. Þarna var borð-
stofuskápur, sem þá var kallaður,”buffet“.
Buffetskápurinn var með tveimur hurðum,
skúffur voru fyrir ofan skápana, svo var hátt
bak á skápnum með stóram spegli í. Ein lítil
skrauthilla var sitt hvoru megin við
spegilinn. Svona skápar voru oft mjög
fallegir. Þessi skápur var fullur af leirtaui,
bæði matar- og kaffistellum. Þetta leirtau
var bara notað spari, þegar gestir komu eða
annað tilefni gafst. Mér þótti þetta
afskaplega flott. Ofan á skápnum stóðu
ýmsir fallegir munir.
Skriíborðið hans Sigurðar var í þessari
stofu, hann var hreppstjóri í Seyðisfjarðar-
hreppi í mörg ár. Þessi stofa var líka
stundum kölluð skrifstofa. Þarna vom líka
stórir bókaskápar. Stofan var hituð upp með
kolaofni.
Úr borð/skrifstofunni var svo gengið inn
í betri stofuna og voru þær dyr á hægri
hönd. Þama inni var aldrei verið nema
þegar gestir komu á sumrin. Ég man ekki
eftir öðrum húsgögnum þama en tveimur
eða þrernur djúpum stólum og einu mjög
fallegu dökku borði, sem væri kallað
sófaborð í dag. Kannski hefur verið þama
eitthvað fleira en ég man ekki eftir því, enda
kom maður ekki nema örsjaldan þama inn.
Úr þessari stofu var svo gengið fram í
forstofu og útihurðin á henni beint á móti
dyrunum á litla ganginum sem ég talaði um
í upphafi. Þrjár til fjórar steyptar tröppur
vom þama og steypt stétt á milli trappanna
forstofu- og eldhúsmegin.
Ég hef áður talað um að fara fram í
Hánefsstaði. Það var líka talað um að fara
fram í betri stofu úr eldhúsinu og einnig
fram í gang eða búr úr eldhúsinu.
Efri hæðin. Þegar komið var upp stigann
var komið upp á dálítinn pall. Af pallinum
var gengið inn í kvistherbergið til hægri,
vinnukonuherbergið til vinstri en á
57