Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 62

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 62
Múlaþing atvinnu við bátana, en það voru margir bátar gerðir út frá Eyrunum á þessum árum, þó enn fleiri hafi þeir verið fyrir mitt minni, en það hefur verið skráð á öðrum stað. Ég ætla að segja lítilsháttar frá húsunum á Eyrunum og fólkinu sem átti þar heima. Byrja á næsta húsi innan við Þórarinsstaði og halda inn eftir. Hagi hét næsta hús innan við Þórarins- staði. Þangað hefur verið 10-15 mínútna gangur. Þetta var eina húsið sem sást frá Þórarinsstöðum og er eiginlega ekki hægt að segja annað en Hagi hafi verið mitt á milli Þórarinsstaða og Eyranna þó nær Eyrunum. Þetta var tvílyft steinhús. Hjónin sem byggðu Haga og bjuggu þar hétu Dórótea Ingimundardóttir og Jón Þorsteins- son Þessi Jón Þorsteinsson, f. 5. sept. 1900, var sonur hjónanna í Haga í Mjóaíirði þar sem Guðfinna á Þórarinsstöðum var á unglingsárum og kallaði hún Jón oft bróður sinn. Þau hjónin áttu tvo syni, Ingimund og Þorstein. Jón var sjómaður mótoristi (vélamaður) á Þór. I kjallaranum í Haga var lítil íbúð e.t.v. ekki nema eitt herbergi og eldhús. Aðeins er í mínu minni, að þar áttu heima hjón sem hétu Ásgeir Stefánsson og Þóra Jónsdóttir. Þau áttu dóttur sem hét Ingibjörg. Hún giftist suður að Kirkjubæjar- klaustri. Ingibjörg var á aldur við mömmu mína. Gullsteinseyri var alveg niðri við sjóinn. Það var steinhús á einni hæð og herbergi í risi. Þar áttu heima Guðmundur Einarsson Bekk og kona hans Vilborg Jónsdóttir. Þeirra börn voru uppkomið fólk og farið að heiman þegar ég er krakki og þekkti ég það ekki neitt nema son þeirra sem var mjög fatlaður gekk við hækju og staf. Hann hafði fengið lömunarveiki þegar hann var bam. Þessi maður hét Einar Bekk. Hann var stundum fenginn til að kenna börnum að lesa og þá sennilega ef bömunum hefur gengið það eitthvað erfiðlega. Guðmundur vann við útgerð hjá mági sínum Eiríki í Sjávarborg. Ég heyrði þá sögu að í íjömnni nálægt þessu húsi væri steinn sem gull væri undir. Ef ætti að reyna að ná gullinu myndi brenna bærinn á Dvergasteini, sem var prestsetur fyrir norðan ijörðinn. Brekka var litlu framar en Gullsteins- eyri. Húsið var tveggja hæða steinhús og stóð í mjög brattri brekku. Það byggði Guðmundur Brynjólfsson. Hans kona var Guðmunda Guðmundsdóttir. Þau áttu ijórar dætur sem allar voru yngri en ég. Þær eru: Þórhanna fædd 1938, Magna Sigurveig fædd 1940, Hrefna fædd 1942 eða 3 og Jóhanna Margrét fædd 1945. Ég lék mér mikið við þrjár eldri dætumar eftir að við fluttum í Svalbarð. Guðmundur var sjómaður á Nirði. Hann hafði lært skósmíði og gerði stundum við skó. Dagsbrún var tvílyft timburhús með háalofti og kjallara. Þar áttu heima tvær ijölskyldur í sitt hvomm hluta hússins. í ytri endanum áttu heima Þórarinn Þorsteinsson, bróðir Jóns í Haga og Regína Eiríksdóttir. Þau áttu þrjú börn, Þorberg, Sveinhildi og Þórdísi, sem öll vom fullorðin þegar ég man fyrst. Þórarinn var formaður á Þór. í innri endanum bjuggu Guðmundur Bjarnason og Ingibjörg Ólafsdóttir. Þeirra börn vom allt fullorðið fólk, systumar á aldur við mömmu mína. Þau voru: Rebekka, Soffía, Hildur og Haukur. Guðmundur var formaður á Nirði. Ingibjörg var í mörg sumur ráðskona í Sjólyst. Sjólyst, sem ég hef áður sagt frá var næst fyrir innan Dagsbrún. Beint upp af Sjólyst uppi á dálitlum mel var Svalbarð, timburhús á steyptum grunni, á einni hæð með nokkuð bröttu risi og var þar manngengt háaloft þar sem ýmislegt var 60
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.