Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Page 63
Minningabrot
A fkoma fólksins sem bjó á Eyrunum byggðist á útgerð. Eigandi myndar:
Ljósmyndasafn Austurlands.
geymt. í Svalbarði átti
heima kona sem hét
Vilborg Jónsdóttir. Hún
bjó með bömum sínum
þar en hún var ekkja.
Hennar maður hafði
verið Arni Friðriksson,
kennari. Hann kenndi
pabba mínum. Þegar ég
man eru þrjár dætur
hennar giftar í Dan-
mörku, Þóra og Sigfríð
og Margrét í Þýskalandi.
(Eg er ekki viss um að
það sé rétt hjá mér að
Margrét hafi búið í Þýskalandi, kannski
frekar í Danmörku. Hennar maður var
þýskur, af Gyðingaættum). Guðbjörg, systir
þeirra, giftist Englendingi og fluttist til
Suður-Afríku. Huld, giftist Norðmanni en
bjó hér á landi. Tvo syni átti hún, Friðjón og
Aðalstein en hann fórst með togaranum
Max Pemperton á stríðsárunum. Þegar þessi
kona flutti með börnum sínum, Friðjóni og
Huld sem þá var gift, frá Seyðisfirði 1944
keyptu pabbi og mamma húsið af henni.
Hermes byggðu Júlíus Brynjólfsson,
hann var bróðir Guðmundar í Brekku, og
kona hans Soffia Guðmundsdóttir, dóttir
Guðmundar og Ingibjargar í Dagsbrún.
Hermes var steinhús á einni hæð. Þessi hjón
Júlli og Fía, eins og þau voru alltaf kölluð,
voru mjög mikið vinafólk foreldra minna.
Þau eignuðust íjóra syni. Elsta son sinn
Reyni, misstu þau af slysförum, annar sonur
er Reynir Trúmann, þriðji Jóhann Brynjar
og fjórða soninn Smára misstu þau líka af
slysförum.
Hjá Júlla og Fíu voru foreldrar Júlla
þegar ég man fyrst. Þau voru Brynjólfúr
Arnbjamarson og Jóhanna Jónsdóttir. Eg
man eftir Brynjólft, gömlum manni með
hvítt alskegg og gekk hann við staf. Hann
var fæddur 1859 og mun hafa látist 1939.
Jóhanna var fædd 1866, hún bjó alla tíð hjá
Júlla og Fíu. Hún lést árið 1964. Jóhanna
var lágvaxin og grönn, afskaplega snör og
kvik í hreyfíngum. Hún var ein af þeim
konum sem aldrei féll verk úr hendi. Mér
fannst óskaplega merkilegt að horfa á hana
prjóna því hún þurfti ekki að horfa á
prjónana hún gat talað og horft í allar áttir
en prjónamir gengu ótt og títt fyrir því.
Þessi gömlu hjón áttu sér merkilega
sögu. Þau komu frá Grindavík og hafa
sennilega verið mjög fátæk því þau fóru frá
þremur bömunt, Jóhanna frá fímm því hún
átti tvö áður en hún giftist Brynjólfí. Frá
Grindavík fóru þau gangandi norður í
Vopnafjörð. Nokkrum vikum eftir að þau
komu þangað fæddi Jóhanna ijórða barn
þeirra hjóna, stúlku sem hét Valgerður og
var fædd 1900. Á Vopnafirði vom þau eitt
eða tvö ár en þá komu þau til Seyðisfjarðar
og þá með skipi. Fóru þau að Skálanesi sem
er ysti bær við Seyðisíjörð sunnanverðan.
Þar vom þau stuttan tíma, fóru þaðan að
Króki sem var kotbýli ekki langt frá
Skálanesi. Þar voru þau heldur ekki lengi,
því þá fóru þau í Þórarinsstaði þar sem þau
voru í vinnumennsku um tíma, mér er ekki
61