Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Síða 71

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Síða 71
Minningabrot ég sérstaklega eftir brekku, í Borgar- tanganum minnir mig. Þar var oft bras á úteftirleiðinni. Eg held núna að það hafi verið kröpp beygja í brekkuna og bíllinn misst ferðina og að svo hafi verið mjög laust í brekkunni. En þetta er nokkuð sem ég ímynda mér. Ég fínn ekki þennan stað núna þegar ég keyri út ströndina. Eftir að bíllinn kom var margt miklu léttara með alla flutninga, þá stoppaði bíllinn við húsin og ekki þurfti að bera kaupskapinn eins langt. Einnig varð sú breyting eftir að bíllinn kom á Eyrarnar, að fólk brá sér i bíó um helgar. Á sumrin var oft farið um hverja helgi. Hernámið Þegar ísland var hernumið 1940 kom óskaplegur fjöldi af hermönnum á Seyðisijörð. Bandarískir hermenn reistu rnikinn „Kamp“ eins og íbúðarhverfi þeirra voru kölluð, úti á Eyrum. Kampurinn var fyrir innan Þórarinsstaði, alveg við túngirðinguna, ég held reyndar að girðingin hafí verið færð dálítið inn í túnið. Þetta svæði sem Kampurinn var reistur á, heitir Háahraun. Þama var mjög gott berjaland, sem að sjálfsögðu varð alveg ónýtt. íbúðarhúsið Hagi lenti inni í Kamp- inum. Þarna voru reistir mjög margir braggar eins og þessar byggingar voru kallaðar. Ég veit ekki hvað braggamir vom margir, en ég hef heyrt að þama hafí búið 350 - 400 hermenn. Þarna var miklu meira en íbúðahverfí, þama var sjúkraskýli. Þama voru líka 4 fallbyssur í jaðrinum á kampinum og snéru í áttina út tjörðinn og þá um leið að Þórarinsstaðahúsinu. Skot- grafir voru nokkrar og vígi úr sandpokum. Varðskýli var yst í hrauninu, þar sem það var hæst og þar var vörður allan sólar- hringinn með sjónauka að fylgjast með Hermaður í seyðfirsku umhverfi. Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands. skipa- og bátaumferð og flugvélum og að sjálfsögðu allri umferð manna. Þetta var óskaplegt ófrelsi. T.d. þurfti fólkið sem bjó á Þórarinsstöðum og bæjunum þar fyrir utan að hafa passa til að komast niður á Eyrar því það þurfti að fara gegnum Kampinn. Passann þurfti að sýna á tveimur stöðum á leiðinni. Þegar farið var frá Þórarinsstöðum niður á Eyrar þurfti að sýna passann rétt fyrir framan hliðið á Þórarinsstaðagirðingunni. Þar var vopnaður vörður í byrgi og hann þurfti að hringja eitthvað og skrifa svo niður nafn þess sem átti passann og síðan gefa leyfi til að halda áfram. Vegurinn lá í gegn um útjaðar Kampsins og fram hjá Haga. Nokkuð fyrir innan Haga var annað byrgi, þar sem Kampurinn endaði. Þar var annar vörður, vopnaður, og þar þurfti að sýna passann aftur, og aftur þurfti að hringja og skrifa niður nafnið og fá leyfi til að halda áfram. Þegar komið var 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.