Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 75

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 75
Minningabrot Heimilið okkar Veturinn 1944 fór ég með pabba og mömmu suður á Djúpavog á vertíð. Pabbi var landformaður við bátinn hans Vilhjálms á Hrólfi, Garðar Svavarsson, og mamma var ráðskona, sá um matinn fyrir mennina sem unnu við bátinn. Um vorið fórum við svo norður á Vopnaijörð þar sem þau voru ásamt systur hennar mömmu, Þórunni og hennar manni, Sigurjóni Ólafssyni og bræðrum þeirra systra og einum frænda, við bát sem Sigurjón átti og hét Sleipnir. Þau komu frá Vestmannaeyjum Eftir sumarvertíðina á Vopnafírði kom- um við aftur heim í Þórarinsstaði en þá um haustið keyptu þau Svalbarð. Þegar þau keyptu húsið var það nú heldur óhrjálegt en þau löguðu það allt, máluðu og vegg- fóðruðu. Pabbi var afslaplega laginn og gerði við allt sem aflaga fór. Ég held að hann hafí ekki þolað að hafa hlutina í ólagi. Foreldrar mínir voru ákaflega samhentir og vildu hafa allt snyrtilegt og vel frá gengið í kring um sig. Pabbi og mamma eignuðust kú ekki löngu eftir að við fluttum í Svalbarð. Kindur áttu þau aldrei og ég held að sá búskapur hafí aldrei höfðað til þeirra. Nokkrar hænur átti mamma og þótti henni notalegt að geta gripið til eggjanna þegar á þurfti að halda. Mamma var alla tíð heimavinnandi eins og við segjum í dag. Hún var mikið fyrir handavinnu og var afskaplega vandvirk. Hún saumaði öll fot á okkur systumar, kjólana sína og buxur á pabba. Það var ótrúlegt hvað hún gat gert úr litlum efnum. Mér era minnistæðir kjólamir sem hún saumaði sér á eftirstríðsárunum þegar ekki var nokkra tusku að fá í verslunum. Hún saumaði sér kjóla úr „hveitipokunV. í þá daga var hveitið keypt í 25 kg lérefts- pokum. Svona pokar þóttu góðir í lök. A pokunum voru stafir og stimplar sem þurfti að ná úr og var það nú oft ansi erfítt en gekk þó oftast með því að leggja þá í klór. Úr þessu efni saumaði hún sér kjóla og gekk í mörg ár í drifahvítum kjólum við sín eldhúsverk. Eftir áramótin 1944-45 fór pabbi á vertíð til Homaíjarðar eins og margir aðrir heimilisfeður. Um sumarið vann hann svo við Þórarinsstaðaútgerðina. Þá er þar aðeins einn bátur eftir, Þór, og ég held að þetta hafí verið síðasta sumarið sem gert var út þaðan. Þetta sumar fæddist eldri systir mín, Jónína Valdís. Veturinn 1946 er pabbi heima en hefur enga vinnu. Um sumarið vann hann hjá Eðvald á Hrauni, beitti línu við bátinn hans. Enga aðra vinnu var að fá. Pabbi var heima veturinn 1947 en þá fæddist yngri systir mín, Guðný. Hann vann aftur hjá Eðvald sumarið 1947 í febrúar 1948 förum við fyrst á Djúpavog þar sem pabba bauðst vinna. Við komum heim aftur í maí. Það var sama ástandið, engin vinna. Eitthvert smá snatt um sumarið. Enn hafði fólkinu fækkað. Trúlega hafa pabbi og mamma ekki verið tilbúin að slíta rætumar á Seyðisfirði en þama sjá þau vafalaust, að ekki þýddi að ætla sér að búa við þessar aðstæður. Og um áramót eða í janúar 1949 fluttum við alfarin frá Seyðisfírði á Djúpavog. 73
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.