Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Page 120
Múlaþing
og notkunin svipuð. En er það nóg til að
álykta að þetta hljóti að vera einn og sami
staður? Líkindin eru svo almenn að hvorki
fomleifafræðingur né bókmenntafræðingur
gæti fallist á að þau væm nægileg rök til að
álykta að þetta væri einn og sami staðurinn.
Vel er mögulegt (og kannski alls ekki
ólíklegt) að fleiri sel kunni að leynast á
þessu landsvæði frá svipuðu tímabili. Sem
dæmi má nefna að ekki verður annað séð en
að höfundur Hrafnkels sögu geri ráð fyrir
nokkrum seljum í nágrenni Reykjasels.
Smalinn sem leitar í sögunni sauða á
þessum slóðum „spurði alla sauðamenn að
seljum“ eftir því fé sem týnt var.15 Okkur
skortir hins vegar frekari upplýsingar um
önnur sel sem þama kunna að leynast sem
og um einkenni Reykjasels sem getið er í
Hrafnkelssögu. Sökum þessa verða allar
tilgátur um staðsetningu selsins hreinar
getgátur.
Þótt mörgum fínnist hugsanleg tengsl
rústanna við Hrafnkelssögu áhugaverð
felast ef til vill meiri möguleikar í að bera
selið saman við aðra uppgrafna staði frá
svipuðu tímabili og kanna hvað það getur
sagt okkur um staðhætti og landnot á þeim
tíma. Fornleifafræðin leitar svara við
spurningum eins og þessum: I hvaða
tilgangi var selið byggt? Af hverju eru
Pálstóftir staðsettar þar sem þær em? Hvers
konar vinna fór fram í selinu? Áreiðanlegar
ritheimildir sem veitt geta vitneskju um
minjastaðinn era yfirleitt fremur ungar.
Landið þar sem Pálstóftir era hefur um
langt skeið verið í eigu Valþjófsstaðar sem
er um 40 km austar, í Fljótsdal. Upphaf
þessa eignarhalds kirkjustaðarins er óljóst
en það nær a.m.k. aftur á 14. öld.16
Valþjófsstaður er án efa landnámsjörð (en
hugsanlega af annarri kynslóð), en jarðar-
innar er fyrst getið sem mikilvægrar valda-
miðstöðvar seint á 12. öld.17 Hvort jörðin
réði þá yfir því landi sem Pálstóftir era á
verður ekki sagt, en jafnmiklar líkur era á
að það hafi í upphafi tilheyrt öðru
landnámi, hugsanlega annarri jörð í sama
dal eða öðram nálægum. Fjölmörg bæjar-
stæði era á Brúardölum og í Hrafnkelsdal
sem vitað er að vora í byggð á sama tíma og
Pálstóftir voru í notkun og er e.t.v.
nærtækara að ætla að selið hafi verið frá
einhverju þeirra.18
Sveinbjörn Rafnsson gerði ítarlega
úttekt á rústum í nágrenni Pálstófta, þ.e. í
Hrafnkelsdal og á Brúardölum, á áranum
1978-1985. Samhliða skráningunni gróf
Sveinbjöm fjölda lítilla könnunarskurða í
rústirnar í þeim tilgangi að reyna að
aldursetja minjastaði með hjálp gjósku og
kolefnisgreininga.19 Þegar niðurstöður
Sveinbjamar eru fléttaðar saman við kumla-
rannsóknir sem gerðar hafa verið á svæðinu
og ritaðar heimildir, verður ljóst að svæðið
hefur byggst mjög snemma. Erfitt er hins
vegar að skera úr um hversu snemma.
Pálstóftir er eini staðurinn á þessu svæði
sem hefur verið grafmn upp að fullu og þar
sem upphaf byggðar er tímasett nákvæm-
lega með kolefnisgreiningu og gjósku-
15 Hrafnkelssaga, kafli 5 (íslendinga sögur ogþœttir, ristj. Bragi Halldórsson, Jón Torfason, Sverrir Tómasson, Ömólfur Thorsson,
annað bindi, Reykjavík, bls. 1399).
^ Elín Hreiðarsdóttir 2005. ‘Fomleifaskráning á Valþjósfsstað á Fljótsdal’. Fornleifastofnun íslands, Reykjavík, bl. 10; Sveinbjöm
Rafnsson 1990. Byggðaleifar í Hrafnkelsdal og á Brúardölum, Rit Hins íslenska fomleifafélags, Reykjavík. Bls. 15-18.
* 7 Elín Hreiðarsdóttir 2005, op cit. bls. 11.
Sveinbjöm Rafnsson 1990. Byggðaleifar í Hrafnkelsdal og á Brúardölum, Rit Hins íslenska fomleifafélags, Reykjavík.
^ Sveinbjöm Rafnsson 1990. Byggðaleifar í Hrafnkelsdal og á Brúardölum, Rit Hins íslenska fomleifafélags, Reykjavík.
118