Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 124

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 124
Múlaþing Brynjólfur biskup Sveinsson í Skálholti átti nokkur jarðarhundruð vitt og breytt um Austurland á meðan hann var og hét, þ.e. stóru karlarnir bröskuðu með jarðir, og má líkja því við hlutabréf okkar tíma, en jarðirnar hafa máski verið öruggari fjárfesting en hlutabréfm nú. Hann átti nokkur jarðarhundruð í Hnefilsdal á 17. öldinni eins og fyrr er fram komið, en spyrja mætti hve stóran hluta. I gömlum skjölum frá Víðivöllum í Fljótsdal segir: ,pessi 9 hndr. í Hafrafelli fékk Brynjólfur biskup, loflegrar minningar, Rannveigu fyrir nokkur hundruð í Hnefilsdal. (Jarðabréffrá 16. og 17. öld).“ í Ættum Austfirðinga nr. 4727 segir: „Rannveig Bjarnadóttir (frá Hnefilsdal) átti Jón Jónsson bónda á Víðivöllum fremri í Fljótsdal um miðbik 17. aldar. Þeirra börn Jónar tveir; Vilhjálmur; Ingibjörg..“ í Ættum Austfirðinga nr. 4728: „Jón Jónsson fékk frá móður sinni (þ.e. Rannveigu) 9 hundruð í Hafrafelli og bjó þar.... Ennfremur nr. 4730: „Vilhjálmur Jónsson seldi Brynjólfi biskupi 4. 2. 1670, 5 hundruð í Hnefilsdal með samþykki móður sinnarJ Ennfremur nr. 4640: „4ndrés Árnason frá Skorrastað (4201) hygg ég að hafi flutt upp á Hérað... og sé hann faðir þeirra bræðra Arna og Olafs (4705) Andréssona er búa í Hnefilsdal 1681; hefur Andrés líklega búið í HnefilsdaX..“ Kona hans mun hafa verið Ingibjörg Jónsdóttir (og Rannveigar) frá Víðivöllum fremri (4732)-----og hefur hann þannig eignast part úr Hnefilsdal móti bræðrum hennar Jóni og Vilhjálmi.“ Einnig skal á það bent að samkvæmt Ættum Austfirðinga voru þau Andrés Ámason (4641) og Rannveig Bjamadóttir náin að frændsemi, því móðir Rannveigar var Ingibjörg (4726) Sigurðardóttir (4200) frá Skorrastað, sé ættfærslan rétt, en hins vegar ætla ég mér ekki þá dul að spá í hverra manna Bjami faðir Rannveigar var, enda er það ekki gert í Ættum Austfirðinga, og er líklega skortur á traustum heimildum þar um m.m. Hinn 11. 4. 1673 gaf Brynjólfur biskup Áma Andréssyni umboð sitt til að byggja sinn helmingur Hnefilsdal - - og að „eigendur Hnefilsdals“ hafí skipt jörðinni: Andrés Árnason og Jón Jónsson, (sonur Rannveigar)? Ennfremur segir neðanmáls við nr. 4641: Ólafur og Ámi Andréssynir bræður eiga /2 Hnefílsdal 1696, og höfðu fengið hann í arf eftir föður sinn 3. maí 1664. Þar sem jörðin Hnefílsdalur var að fomu mati 30 hundmð með gögnum og gæðum, þar með talin hjáleigan Gagurstaðir sbr. Johnsens jarðatal frá 1847 o. fl., mætti spyrja hve stór hluti jarðarinnar hundmðin biskupsins frá Rannveigu hafí verið, og hvort hann hafi átt - eða eignast fleiri, sem vissulega gat verið þó tíminn væri stuttur,- hann lést 1675. Svo má spyrja hve stóran hluta Rannveig hafí átt í jörðinni, eða hvort hún hefur verið einkabam foreldra sinna og máski átt hana alla á sínum tíma og hvort parturinn Hólastóls - þ.e. sáluhjálpargjöf Hrafns Brandssonar árið 1528 - hafí þá þegar löngu verið horfín úr eigu biskups- stólsins? Trúlega fást aldrei svör við þessum spumingum, en álíta má þó að kirkjan hafí ekki verið ginkeypt fyrir að láta sín jarðarhundmð, nema fá í staðinn önnur og ekki lakari. I Ættum Austfirðinga við nr. 9375 er tilgáta um að kona Áma Andréssonar í Hnefílsdal hafí verið Ingibjörg Ásmunds- dóttir blinda, en afkomendur þeirra virðast ekki koma við sögu hér, en seinni kona Ólafs bróður hans sem síðar bjó í Bót, var Guðrún Magnúsdóttir frá Njarðvík (4705,1366). 122
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.