Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Side 129
Frá Jökuldalsfólki
vinnumanni sínum sem var jötunn að afli og
svo lauk skiptum að þeir prestur gengu á
milli og komu á sættum milli manna, og
skildi Hallgrímur bæta Magnúsi þá beit er
orðin var, og ekki framar beita land
Magnúsar eða að öðrum kosti svara til fyrir
rétti. Varð Hallgrímur að sætta sig við það
þó honum líkaði stórilla, og bjó hann fá ár á
Skeggjastöðum, flutti vorið 1844 að
Fremraseli. (Sjá Sigf. Sigf'. VIII. h. bls.166-
7, Húsámessbardaginn).
Dálítið um jarðamat
Eins og áður er fram komið var jörðin
Hnefrlsdalur að fornu mati 30 hundmð að
dýrleika með hjáleigunni Gagurstöðum,
sem sýnist hafa verið 6 hundruð að
dýrleika, og ekki er önnur jörð á Jökuldal
svo há í mati fyrr en í Jarðabók frá 1861, að
nýtt mat á Hákonarstöðum er orðið hærra,
eða 39,5 hundruð vegna nýbýlanna
Sænautasels og Veturhúsa sem byggst
höfðu í Heiðinni, en heiðarbýlin eru þó ekki
sérmetin. Þá er matið á Hnefdsdal orðið
33,7 hundmð með hjáleigunni, senr þá er
hafrn á föst byggð. Einnig má nefna til
fróðleiks hækkað mat á Möðrudal, eða 32,9
hundmð vegna tveggja nýtilkominna afbýla
í fyrmefndri heiði, þ.e. Gestreiðarstaða og
Fögrukinnar, og einnig er Viðidalur
tilgreindur, sem þó er gömul hjáleiga frá
Möðmdal, og einnig mætti nefna eyðibýlin
Kjólstaði og Sótastaði sem ekki em nefnd í
jarðabókunum, en studdu prestsbúskapinn í
Möðmdal forðum daga meðan búið var á
þeim.
Landnámsbýlið Gauksstaðir
í þjóðsögum Sigfúsar frá Eyvindará getur
nokkurra gamalla sagna úr Jökuldælu hinni
fomu, sem nú er sögð töpuð með öllu. Tekið
skal fram að mjög er óvíst um áreiðanleika
þessara sagna, og virðist sem surnt i þeim sé
býsna torsótt. Samkvæmt Jökuldælu er
landnámssaga dalsins nokkuð snúin á
köflum, verður að segja, nefnilega að
„Skjöldólfur nam land austan Jökulsár milli
Hneflu og Hölknár á Efra Dal, en byggði
bæ sinn hins vegar norðan Jöklu, þar sem
hann þóttist sjá betur yfír landnám sitt!“ Þar
með henti hann að setjast í landnám
Hákonar, sem hafði helgað sér allálitlega
sneið af dalnum eins og landnámsmanna
var siður. Af öðm eins og þessu hlaut að
leiða vígaferli, og um þá viðburði getur
Jökuldæla ineð meiru. Síðan kemur
landnámsmaðurinn Gaukur, vænn að
íþróttum og atgjörvi, járnsmiður góður,
skartmaður og vígamaður. Hann settist í
landnám Skjöldólfs og byggði bæ sinn
austan við Jöklu, þar sem hét að
Gauksstöðum. Þess bæjar er ekki getið í
jarðabók Jóhanns Klein fógeta frá árinu
1681, en samkvæmt Jarða- og bændatali
býr? eða er máski einungis skráður eigandi
Gagurstaða árið 1758 Árni Magnússon,
Ólafssonar frá Hnefdsdal, en hann býr í
Hnefilsdal 1762 eins og áður er fram
Gamla baðstofan á Gauksstöðum.
Eigandi myndar: Ljósmyndasafn Austurlands.
127