Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Qupperneq 160
Múlaþing
38. Mekkín Sölvadóttir, Hrafnsgerði, f.
7. mars 1846, lést árið eftir.
39. Mekkín Torfadóttir, 3ja ára fóstur-
barn á Vaðbrekku, Jökuldal 1845.
40. Mekkína Þuríður Jóhannesdóttir,
Þverá, Reykjahverfi (sjá nr. 12).
Mekkínarnafn á 20. öld
í manntalinu 1910 eru 14 Mekkínar skráðar
á öllu landinum þar af 11 í Múlasýslum, og
einn karlmaður ber nafnið Mekkínó. Er
spuming hvort nafnið hefur nokkum tíma
verið algengara.10 A áratugnum 1921-1930
er aðeins ein stúlka skírð Mekkín, og ein
önnur á næsta áratug. A fímmta áratugnum
er engin stúlka skírð þessu nafni, en einn
drengur er skírður Mekkínó.11 Sennilega
hafa mannanafnalögin frá 1925 haft einhver
áhrif i þessu efni, því þar er bannað að skíra
útlendum nöfnum, og nafnið var ekki á skrá
yfir viðurkennd mannanöfn.
Frá 20. öld er höfundi kunnugt um 11
konur sem skírðar hafa verið Mekkínar-
nafni, sumar þó sem öðru nafni, sem færist
nú mjög í vöxt. Af þessum 11 era a.m.k. 6
fæddar eftir 1950 og sýnir það að nafnið
helst enn við í austfirskum ættum, en hefur
vitanlega dreifst víða um landið með
auknum fólksflutningum. Hér verða þessar
Mekkínar ekki taldar upp, enda líklegt að
mikið muni vanta í þá upptalningu ef gerð
væri.
I Vesturheimi er mér kunnugt um íjórar
Mekkínar, en þær era þar eflaust miklu
fleiri. Frá þeim er skýrt i Vestur-lslenskum
æviskrám. Ein þeirra er innflytjandi en
hinar þrjár era fæddar í Kanada og hafa
verið skírðar eftir formæðrum sínum.
Kunnust þeirra er Mekkín Sveinson Perkins
rithöfundur, fædd 18. sept. 1887 og dáin 24.
júlí 1964. Hún heitir eftir Mekkínu
skyggnu, föðurömmu sinni, en foreldrar
hennar vora Gunnar Sveinsson kaupmaður
frá Egilsstöðum í Fljótsdal og Kristín
Finnsdóttir frá Klyppstað. Hún samdi sögur
og ljóð og þýddi nokkrar íslenskar
smásögur á ensku.
Heimildir
1 Ásgeir Blöndal Magnússon, 1989: íslensk
orðsifjabók. Rvík
2 Gísli Jónsson, 1988-89: Nöfn Norð-Mýlinga
1703-1845. íslenskt mál, 10-11: 7-32.
3 Guðrún Kvaran og Sigurður Jónsson frá
Amarvatni, 1991: Nöfn Islendinga. Rvík.
4 Einar Jónsson, 1953-1968: Ættir Austfirðinga I-
IX. hefti. Rvík.
5 Olafur Lámsson, 1960: Nöfn Islendinga árið
1703. Safn til sögu Islands og ísl. bókmennta.
Annar flokkur 11,2. Rvík.
6 Bjöm Magnússon, 1984\ Nafnalykill af
manntali á Islandi 1801. Rvík.
I Manntal á Islandi 1816. Rvík.
8 Bjöm Magnússon, 1986: Nafnalykill að
manntali á Islandi 1845. Rvík.
9 Um mannaheiti á Islandi árið 1855. Skýrslur
um landshagi á Islandi IV. Hið ísl.
bókmenntafélag. Rvík. 1958.
10 Islensk mannanöfn samkvœmt manntalinu 1.
des. 1910. Rvík 1915.
II Þorsteinn Þorsteinsson, 1961: íslenzk
mannanöfn. Nafngiftir þriggja áratuga,
1921-1950. Rvík.
12 www. islendingabok.is. (vefsíða)
158