Heilsuvernd - 01.09.1953, Page 12
72
HEILSUVERND
band við það, að þeir hafi „gengið með Guði“, eins og það
er orðað, en það þýðir i raun og veru það, að þeir hafi
hagað lífi sínu í samræmi við lögmál lífsins og tilverunnar.
Og í þessari ritningu kristinna manna er einnig dreymt um
framtíðina, hvað 'þetta snertir. Hjá Jesaja spámanni segir
t. d. svo í 65. kafla 7.—21. versi: — „Og ég vil fagna yfir
Jerúsalem og gleðjast yfir fólki mínu, og eigi skal framar
heyrast þar gráthljóð eða kveinstafir. Eigi skal þar fram-
ar vera nokkurt ungbarn, er aðeins lifi fáa daga, né nokk-
urt gamalmenni, er eigi nái fullum aldri; því að sá er þar
ungur maður, er deyr tíræður, og sá, sem ekld nær tíræðis-
aldri, skal álítast bölvaður. Og þeir munu reisa hús og búa
í þeim, og þeir munu planta víngarða og eta ávöxtu þeirra“.
— Þannig segir í hinni helgu bók.
Á síðustu áratugum hefir orðið mikil breyting, að m. k.
með oss íslendingum, á lengd mannsævinnar. Ung-
barnadauði hefir mjög minnkað, eins og kunnugt er,
og meðalaldur hækkað svo mjög, að undrum sætir. Mun
hann nú vera kominn upp í 60 ára eða meira. Allt er þetta
með réttu þakkað breyttum og bættum lifnaðarháttum,
er séu eðlileg afleiðing aukinnar þekkingar og menningar.
Virðist því fullkomlega rökrétt að gera ráð fyrir því,
að aldur manna geti enn hækkað að miklum mun, ef þekk-
ing á lögmálum lífsins á eftir að aukast og mannkynið ber
gæfu til að hagnýta sér þá þekkingu og lifa í samræmi við
hana. Hækkun sú á aldri manna, sem átt hefir sér stað
síðustu áratugina, gefur ótvírætt í skyn, að þrátt fyrir
allt sé að mörgu leyti rétt stefnt, — að lífshættir manna
hafi færzt í heillavænlegra horf og að mennirnir hafi það að
meira eða minna leyti á valdi sínu að lengja líf sitt, að
m. k. að ákveðnu marki. — Náttúrulækningastefna nú-
tímans heldur því og fram, að mannkyninu sé í lófa lagið
að lengja líf sitt að mjög miklum mun frá því, sem nú er,
og að réttu lagi ættu menn almennt að geta orðið 100
ára eða jafnvel 120 ára, og er þá að vísu ekki nærri jafn-