Heilsuvernd - 01.09.1953, Side 18
78
HEILSUVERND
stóli. Þröngt er um brjóstholið, öndunin grunn og dauf.
Sumum gæti virzt þessi maður njóta hvíldar. En svo er
ekki. Það vantar allan röskleika í hvíldina. Hjartað er kúg-
að undan of miklu álagi. Það getur ekki annað sínu hlut-
verki. Hvíldin er endurnýjun og brottflutningur ónýtra og
óhollra efna. Hreyfing undir beru lofti með djúpri öndun
myndi því veita þessum manni betri hvíld, blóðið streymdi
þá örar og hreinsaði líkamann. Gleymum aldrei, að hvíldin
er innri hreyfing, hreyfing blóðsins, sem örvast við djúpa
öndun. Og hæfileg alhliða hreyfing líkamans gerir öndun-
ina greiðari.
Þótt undarlegt sé, er allmikil hætta á, að öndunarhreyf-
ingin skekkist. Algengt er, að þegar nýr nemandi í radd-
þjálfun (söng eða tali) er beðinn að sýna, hvernig hann
andar að sér, belgir hann upp brjóstið, ypptir öxlum og
dregur kviðarholið inn. Hjá sama manni myndi líklega
öndunarhreyfing í svefni verða eðlilegri og byrja þannig,
að kviðarholið þenst fyrst út og þvínæst brjóstholið neðan
til með útþenslu rifjanna. Það á sem sé að byrja að láta í
botninn á pokanum og síðan fylla hann hærra og hærra.
Það er erfitt að skilja til fulls, af hverju menn gera sér ekki
grein fyrir því, hvernig eðlilegust öndunarhreyfing er. En
þess ber að minnast, að margt í okkar hugsunarhætti,
klæðnaði við vinnu, steliingum og hreyfingum við vinnu,
er óeðlilegt. Margar áhyggjur liggja á okkur eins og mara,
og við gáum þess ekki, að við þurfum að gefa okkur tíma
til að anda. Og sá sem temur sér rólegan og djúpan andar-
drátt, verður bæði rólegri og röskari en ella í huga og
athöfn. (Meira seinna).
HEILSUHÆLI NLFÍ.
Stjórnir NLFÍ og Heilsuhælissjóðs NLFÍ hafa tekið á leigu land
í HveragerSi, beggjamegin Varmór, sunnan Fagrahvamms, í því
skyni að reisa þar heilsuhæli. Er nú unnið að uppdráttum, og
er ætlunin að hefja byggingarframkvæmdir á þessu hausti til þess
að geta tekið einhvern hluta hússins í notkun á næsta sumri.