Heilsuvernd - 01.09.1953, Qupperneq 27
HEILSUVERND
87
dóma. Sumir þeirra fengu hvítlauk, en hinir ekki og engin
meðul heldur. Þeir, sem hvítlaukinn fengu, losnuðu fljótt
við höfuðverk, niðurgang og önnur sjúkdómseinkenni. En
merkilegasta niðurstaðan var sú, að hjá þeim gjörbreyttist
bakteríugróður í ristli. Hinar skaðlegu rotnunarbakter-
íur eyddust, en aðrir nytsamir gerlar tímguðust og þrifust
hið bezta.
Samkvæmt skýrslum, sem tveir amerískir læknar hafa
safnað og birt í læknatímariti, hafa ýmsir læknar notað
hvítlauk við of háum blóðþrýstingi með góðum árangri
og gengið úr skugga um, að sá árangur er hvítlauknum að
þakka. Hann hefir og reynzt vel við ýmiskonar meltingar-
truflúnum, svo sem niðurgangi og loftmyndun í þörmum.
Ennfremur til varnar gegn lungnabólgu, barnaveiki, tauga-
veiki og berklum. Hann er talinn eyða slími og lækna
astma og ýmsa bakteríu- eða vírussjúkdóma í öndunar-
færum, kvef og hálsbólgu. Amerísku læknarnir tveir birtu
og skýrslu um 12 sjúklinga, sem þeir höfðu sjálfir haft
undir höndum og læknað með 'hvítlauk. Var þar um sinn
sjúkdóminn að ræða hjá hverjum, og suma á háu stigi.
Dr. Deutschmeister, læknir af gyðingaættum starfandi
í ísrael, skýrir frá því, að meðal flóttamanna í síðustu
heimsstyrjöld hafi mikið borið á alvarlegum maga- og
þarmasjúkdómum. En Gyðingar sluppu við þá, og þakk-
ar læknirinn það því, að þeir borðuðu mikið af hvítlauk.
Hann hefir einnig birt í læknariti einu skýrslu um mikinn
fjölda magasjúklinga, sem hann hefir læknað með hvítlauk.
Galinn við notkun hvítlauks er hin sterka lykt, sem hon-
um fylgir og er óþægileg þeim, er neyta hans ekki sjálfir.
Og þessi lykt fylgir einmitt þeim efnum lauksins, sem
mestan lækningamátt hafa. Hann kemur því ekki að til-
ætluðum notum, nema hann sé borðaður ósoðinn og tugg-
inn vel eða honum haldið í munni um tíma, sérstaklega
þegar um er að ræða sjúkdóma í munni, hálsi eða öndunar-
færum. (WMM).